Norðurslóð - 26.05.1992, Qupperneq 5

Norðurslóð - 26.05.1992, Qupperneq 5
NORÐURSLÓÐ —5 að gapa („Gaba, gaba meira“, var hermt eftir honum því hann hafði sterkan sunnlenskan málhreim). Við rifum upp munninn eins og við gátum svo sást ofan í kok. Að munn- og hálsskoðun lokinni, lét hann okkur horfa á spjald sem hann hafði komið fyrir í hæfilegri fjarlægð. A spjaldinu voru mis- stórir stafir sem við áttum að lesa. Þá kom hann með stækkunargler og skoðaði vandlega í höfuð okk- ar, hvort hann fyndi ekki neina óværu eða merki þess, að hún hefði verið þar nýlega (nit). Svo komu nokkrar spumingar um heilsufar okkar undanfarið. Svo var þessu lokið okkur til mikils léttis, Sigurjón tók tösku sína og hvarf á braut og Þórarinn tók aftur til við kennsluna. Aldrei man ég eftir því þessa vetur, sem ég var í skólanum, að nokkur þyrfti að víkja úr skóla sökum sjúkdóma eða neins, er væri svo alvarlegt, að nokkrar sérstakar ráðstafanir þyrfti að gera vegna þess. Þama á Þinghúsinu liðu fjórir vetur af æfi minni og þama fékk eg næstum alla þá kennslu sem eg hefi fengið um æfina fyrir utan skóla lífsins sem eg hef gengið í gegn um eins og allir aðrir menn verða að gera og sem er þó líklega lærdómsríkasti skóli sem maður gengur í ef vel er nýttur og vel er eftir tekið. Kattarslagur Eftir einu atviki man eg frá bernsku minni í sambandi við þetta hús og það er jafnframt fyrsta minning mín frá þessum stað ég gæti hafa verið svona 7 til 8 ára. Það var haldinn svokallaður „katt- arslagur“ eða skemmtun þar sem eitt aðalatriðið var að slá köttinn úr tunnunni. Var hengd upp tunna, auðvitað úr tré, í gálga sem búinn var til framan við húsið og var þá venjulega hengdur dauður hrafn innaní tunnuna. Svo var leikurinn í því fólginn að krakkar og ungling- ar gengu í hring og þegar þau fóru fram hjá gálganum börðu þau í tunnuna með barefli sem þau voru með og sá eða sú sem brotið gat tunnuna var hetja kvöldsins og fékk einhver verðlaun. Eg hafði fengið að fara á þessa skemmtun, að sjálfsögðu með foreldrum mín- um, við mikla tilhlökkun og eftir- væntingu. Þama komu fram og voru á sveimi kring um tunnuna alskonar verur í sérkennilegum búningum - álfar og allskyns ver- ur bæði bjartar og dökkar. Sérstak- lega man eg eftir karli einum stór- um, loðnum og ferlegum. Hann var klæddur í gæruskinn. Hann hafði dimma og tröllslega rödd gekk við stóran og gildan stafsem hann lamdi fast niður í jörðina til áherslu orðum sínum. Við þennan karl var eg ákaflega hræddur - svo mjög að mynd hans hefur ekki horfið úr minni mínu síðan. Norð- an við Þinghúsið minnir mig að væri skúr með dyrum vestan á. Eft- ir kattarslaginn var eg á rjátli utan við dymar á þessum skúr og sá eg þá þar inni búninginn af hinum ljóta karli og fannst mér hann lægi þama og gæti þá og þegar sprottið upp. Var því best að forða sér sem skjótast frá þessum stað. Það hefur líka komist inn hjá mér að á þess- ari samkomu hafi tveir synir sr. Stefáns á Völlum, Sæmundur og Kristinn, verið eins og stráka er oft háttur að príla uppi á þaki á fyr- nefndum skúr. Datt þá annar þeirra ofan af þakinu á frosna jörð og fót- brotnaði. Eg man eftir miklu fjaðrafoki og umstangi í sambandi við þetta - mér finnst þetta hafa verið Sæmundur. Allar þessar minningar frá Þinghúsinu á Grund og um skól- ann þar hafa farið gegn um hug minn á nokkrum mínútum og skemmri tíma en tekur að segja frá - og áfram er ferðinni haldið og nýjar myndir fara gegn um hugann frá nýjum stöðum sem fyrir augu ber. Sparis j óður Svarfdæla Peningar eru afl þeirra hluta sem gera skal Sparisjóðurinn er viðskiptalífsins sem dælir blóði fjármagnsins um æðakerfi samfélagsins Geymið sparifé ykkar á heimaslóð skiptið við Sparisjóð Svarfdæla Dalvík ® 61600 A Svarfdælabúð Dalvík Garðverkfæri: í kjötborðinu: Allt í helgarmatinn Akríldúkur, jarðvegsdúkur Áburður í 5 og 10 kg pokum Kálkorn, trjákorn, graskorn, blákorn, skeljakalk, mosaeyðlr Tilboð A.E.G. Ryksugur A.E.G. Eldavélasett Bygginga vörudeild

x

Norðurslóð

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.