Norðurslóð - 30.06.1992, Side 3

Norðurslóð - 30.06.1992, Side 3
NORÐURSLOÐ —3 Horft Sólarríka Somerset Somersethérað er ca. 200 km. vest- an við London. Að norðan nær það að strönd Bristolflóa en sunnanvið eru héruðin Dorset og Devon, sem liggja að hafinu. Engar stórar borgir eru í héraðinu. Helst mætti nefna Taunton í rniðju héraði, bráðsnotra ,.landsbyggðar"-borg og Bridgewater (Brúará) iitlu norðar. Margir telja Somerset fegursta hérað Englands og sjálfur trúi ég því fyllilega, þó að ég hafi ekki, því miður, haft tækifæri til að skoða þau öll, ekki ennþá. Veður- far er ágætt, vetur mildir, sjaldan snjór og sumur sólrík. Héraðsbúar eru nriklir „föðurlandsvinir”. Oft heyri maður þetta slagorð. sem er víst tekið úr ijóði einhvers sveita- skáldsins: Oh, thou sunnie Somerset Where tlie cider-apples grow. O, þú sólríka Somersetlþar seni víneplin va.xa. Þetta með víneplin og eplavínið, sem úr þeim er unn- ið, er ekki oröin tóm, svo sem síð- ar mun sagt verða. Nautastöð mjólkurfélagsins var og er enn, í smábænum Ilminster, ég fékk herbergi hjá gömlum mæðgum (mér fannst þær vera jafnöldrur) í nágrannabænum Chard og lítinn bíl fékk ég til um- ráða til milliferða og við sæðing- arnar. Og svo hófst starfið. Ekki þarf að útskýra þessi mál fyrir nútímafólki. þetta eru svo hversdagslegir hlutir, að sæða kýr og kindur. En þá var öldin önnur, ég sagði mæðgunum, að ég ynni á búfjárræktarstöðinni í llminster. sem satt var. Ekki fyrr en um jól sagði ég þeim frá eðli starfsins, tæknifrjóvgun. Alveg voru þær dolfallnar, tæknifrjóvgun, hver ósköp voru nú það? En ekki létu þær mig samt gjalda starfsins og um vorið kvöddumst við með tár- um ég og frú Long og frú Go- lesworthy, rétt eins og við frú Gal- braith í Edinborg vorið áður. Þessi vetur, 1944-45, er mér minnisstæður, lfklega skemmtileg- asta árið mitt í Bretlandi. Eg kynntist þessum hluta Bretlands afskaplega vel og lærði á furðu- skömnium tíma að rata heim á bæ- ina til allra þeirra hundraða bænda, sem skiptu við sæðingastöðina. Sumir urðu brátt vinir mínir. „Konidu út í skemmu, ég ætla að sýna þer svolítið” sögðu þeir gjarnan að afloknu embættisverki. Þá vissi ég hvað klukkan sló, cídergerð, sem löglegt var, epla- vínsbrugg að sveitarsið. Og það brást ekki. úti í skemmuhomi var eplapressan: Það var trépallur fet frá gólfi eða svo, ofan á honum lag af vel hreinum hveitihálmi, þar of- aná lag af söxuðum eplum, þá ann- að hálmlag, þá annað lag epla- mauk o.s.frv. ein 10 lög af hvoru. Ofaná öllu saman var svo lokið og skrúfupressa ein mikil, sem var skrúfuð niður nokkrum sinnum á dag eftir því sem hálm- og epla- massinn féll saman. Út úr túðu á neðstapalli draup mjöðurinn ofan í kerald í gólfinu. Þama inn dró nú bóndi gestii.n, alls ekki nauðugan. seildist eftir ausu og glasi, fyllti ausuna í ker- aldinu, helli í glasið og bar upp að birtunni og rétti gesti. Þetta var misjafn drukkur eins og gengur hjá bruggurum; sumt veikt, annað sterkt, sumt kristalstært, sumt tölu- vert gruggugt - en alltaf vel þegið. Það var virkilega gaman að aka eftir bugðóttum sveitavegunum í gegnum litlu þorpin með skrýtnu nöfnunum. Eg man þau sum ennþá ótrúlegt en satt: Buckland saint til baka um hálfa öld Lokaþáttur Piccadillv Circus, miöpunktur Lundúnaborgar, þar sem allir straumar mætast. Björn Th. Björnsson listfræðingur, rithöfundur og vinsæll fyrirlesari. Marie, Hinton saint George, Combe saint Nicholas. Staðirnir voru sem sé kenndir við dýrlinga þá forna, sem kirkjurnar voru helgaðar í katólskum sið. Og stríðið dróst á langinn Eg frétti aldrei af neinum löndum mínum á þessum slóðum og talaði þar aldrei íslenskt orð nema þegar Jóhannes Nordal kom í heimsókn á útmánuðum, ók með mér um sveit- ir og gisti tvær nætur. Þá skrupp- um við til Exeterborgar í Devon. man ég. Jóhannes vildi m.a. sjá þá frægu dómkirkju þar. Ég fór reyndar til London tvisvar sinnuni og var í sendiherraboði hjá Stefáni Þorvarðarsyni sendiherra um jól- in. Þar man ég, að ég hitti Ama Björnsson, tónskáld, sem tilkynnti mér, að hann væri náinn frændi minn. En sleppum því. Allan þennan vetur geysaði Evrópustríðið. Hitler neitaði að gefast upp. Það var Þjóðverjum dýrt spaug. Allan tímann héldu bandamenn uppi grimmilegum loftárásum á þýskar borgir og skipti engu þótt allir vissu. að þar voru engin svokölluð hemaðarleg skotmörk. Enda var það ekki markmiðið. Það var að lokum fólk, einkum konur og börn, sem sprengjunum var miðað á. Það kallast sálfræðileg skotmörk á fínu máli. Mér var farið að ofbjóða. Fólk var farið að skrifa lesenda- dálkum blaðanna og láta í Ijós áhyggjur og efasemdir. í lok apríl var öllum sýnilegt, að Þriðja ríkið var komið að fótum fram. Það var aðeins spurning, hvem daginn. Bretland bjó sig undir sigurhátíð. A heimleiö á togara í maí 1945. Myndina tók Vigfús Þórðarson. Ráðningartími minn var úti 5. maí. Þá var aftur komið að skilnað- arstund. Ég sá mikið eftir því að yfirgefa Somerset. Vorið var í al- gleymingi. blómaskrúð um hæð og dal og almond-tréin meðfram Að- alstræti Tauntonborgar í fegurst- um blóma og angan þeirra ólýsan- leg. En það verðuraldrei á allt kos- ið. Ég kvaddi því kóng og prest og tók enn einu sinni lestina til London og hélt beint heim til Bjöms Th. vinar míns. Þar var þá einnig gestkomandi títtnefndur Jó- hannes Nordal. Þeir Björn voru bekkjarbræður úr M.R. og til Cambridge kom Björn í heimsókn til bekkjarbróður síns haustið áður meðan ég var þar. Sjötti maí leið, sjöundi maí leið og ekkert gerðist nema drepnar nokkrar þúsundir hermanna og enn fleiri óbreyttir borgarar í varnar- lausum borgum Þýskalands. Það dagaði að 8. degi maímánaðar 1945, ógleymanlegum degi í mín- um huga og allra annarra í Bret- landi og reyndar Evrópu allri. V- dag kölluðu menn hann og átti V- ið að merkja Victory = sigur. Loksins, loksins gat útvarpið flutt þau tíðindi, að Þjóðverjar hefðu gefist upp skilyrðislaust. Reyndar segir í sumum bókum, að Evrópustyrjöldinni hafi lokið formlega 9. maí. Það var nú samt síðari hluta dags 8. maí, sem hin óformlega sigurhátíð braust út í Lundúnaborg svo allt ætlaði um koll að keyra. Við fórum með vagni niður í miðborgina, auk mín voru það Jóhannes Nordal, Bjöm Th. Björnsson og, ég held áreiðan- lega, líka Sigfús Halldórsson, tón- Jóhannes Nordal doktor í hagfræði og félagsfræði, Seðlabankastjóri og einn af mestu áhrifamönnum þjóð- arinnar. skáld, sem var góður kunningi okkar. Götur miðborgarinnar voru sneisafullar af fólki. Fylkingamar slöguðu til og frá. Eina stundina fylltist torgið fyrir framan Kon- ungshöllina, Buckingham Palace, og þúsundimar hrópuðu í kór (og ég með ): „We want the King and Queen and Princesses”. þ.e. „við viljum fá kónginn, drottninguna og prinsessurnar” aftur og aftur og aftur. Seint og urn sfðir opnuðust dyr og út á svalir kom kóngafólkið, Georg konungur sjötti, Elísabet drottning (nú „drottningarmóðir- in" gamla) og dæturnar Elísabet, nú drottning, og Margrét Rós. Næsta kastið lagðist straumurinn í átt að bústað forsætisráðherrans við Downing stræti. Einnig þar upphófust hrópin. „Við viljum fá Winston” aftur og aftur. Viti menn, dyr opnast, út á svalir kem- ur Winston Churchill með vindil í hægri hendi en þeirri vinstri heldur hann upp og býr til V-ið með vísi- fingri og löngutöng. Þá upphefjast húrrahróp og söngur. Þvílíkur söngur: „He is a jolly good fellow” o.s.frv. Mér er dagurinn býsna óljós í minni. Smátt og smátt slitnuðum við félagar hver frá öðrum og spil- uðum á eigin spýtur eftir það. Éitt man ég þó vel. Ég barst með straumnum um Piccadilly Circus, lítið, hringlaga torg þar sem marg- ar frægar götur mætast. Þar stend- ur einhver gyðjustytta á lágri súlu. Er það kannske sjálf Britannía? Styttan hafði verið fjarlægð í stríðsbyrjun en súlan stóð eftir. Þaðan heyrðust háreisti, hróp og köll og læti. Þegar nær kom sá ég hverskyns var. Ung stúlka hafði komið sér upp á súluna og var nú í óðaönn við að tína af sér spjarim- ar, sem hún kastaði jafnt og þétt niður þangað til hún stóð þarna allsnakin á stallinum. Umsvifa- laust byrjaði hún að dansa ein- hvem þokkafullan dans, fannst mér. En dýrðin stóð ekki lengi, einhverjir, líklega vinir hennar, klifruðu upp á stallinn seildust eft- ir dansmeyjunni, drógu hana niður og sveipuðu beran kvenmanninn í kápu, en fengu litar þakkir fyrir. Lýðurinn baulaði og blístraði og lét öllum látum nema góðum. Ekk- ert stoðaði það, mærin var horfin og kom ekki aftur þrátt fyrir klapp og köll. Mikið var um fána á stöngum, sem flokkar báru fyrir sér, lílkega til að geta betur haldið hópinn. Það voru menn og konur úr ýmsum herdeildum og hópar útlendinga, Frakkar, Pólverjar o.s.frv. Og þama blakti norski fáninn og kringunt hann hópur Norð- manna, það leyndi sérekki, flestir í úníformi. Það leið að kvöldi og það leið fram undir nótt. En livað um það, vomóttin var hlý og besta veður. Undir nóttina slangraði ég með þúsundum annarra inn í Hyde Park, stóra opna svæðið í miðborg- inni. Þar sá ég aftur norska fánann og hóp fólks sitjandi um kring í grasinu. Þangað stefndi ég og heilsaöi upp á fólk á minni bestu norsku. Og hver ert þú? spurðu Norðmenn. Ég sagði sem var og urðu þá miklir fagnaðarfundir. Is- lendingur, nú þá ertu 1 íka Norð- maður, sögðu þeir, og ég var um- svifalaust tekinn í þeirra lið og m.a.s. gefið að borða, því þeir áttu nesti, en ég ekkert. Það var líka útilokað að komast „heim”, allir sporvagnar löngu hættir að ganga. Það var heldur engin neyð að liggja úti í mjúku grasinu með kápuna fyrir kodda og himininn fyrir yfirsæng. Fólk hjúfraði sig saman og við sváfum þar til birti að degi. Home, sweet home - Heima er ávallt best Þetta var ævintýri, sem menn lifa ekki nema einusinni á ævinni, og flestir aldrei, sem betur fer. Ég hef oft ætlað mér að skrá niður minn- ingar mínar af þessum heimssögu- legu atburðum, en aldrei orðið af - fyrr en nú. Og þá finn ég, að flestir smærri drættir eru horfnir mér úr minni. Kannske koma þeir aftur upp á yfirborðið - þegar ég er genginn í bamdóm. En þá verð ég líklega hættur að geta skrifað. Svo þetta verður að duga. Ég átti pantað far heim með ein- hverjum togara. En þó ég ætti lífið að leysa get ég ekki munað hver hann var. Og heldur get ég ekki munað hvort heldur ég fór til Grimsby eða Hull til að ná þessu skipi. Þar kynntist ég aftur venju- legum Islendingum og lfkaði vel. Ungur háseti á skipinu hét Vigfús Þórðarson. Við urðum vinir og hann tók af mér meðfylgjandi mynd og sendi mér síðar hingað heim. Ég sté á land í Reykjavík eld- snemma morguns 17. maí 1945. Ég vissi, að það var þjóðhátíðar- dagur Norðmanna og nú var hann sannarlegur hátíðardagur fremur en nokkru sinni fyrr eða síðar þvf þá kom Hákon konungur siglandi heim úr útlegð sinni á Bretlands- eyjum. Hitt vissi ég ekki, að hann yrði líka brúðkaupsdagur minn þremur árum síðar. En það er önnur saga. Tjörn, II. maí 1992. Hjörtur E. Pórarinsson

x

Norðurslóð

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.