Norðurslóð - 27.01.1993, Qupperneq 6
6 — NORÐURSLÓÐ
Minning
Jónína Jóhannsdóttir
Fædd 1. maí 1907 - Dáin 26. nóvember 1992
Það er erfitt að fást við þá hlið lífs-
ins þegar dauðinn aðskilur ástvini.
I sérhvert sinn sem ástvinur skilur
við þennan heim þá sitjum við eftir
með tárin í augunum og eigum
erfitt með að sætta okkur við orð-
inn hlut. Þannig leið okkur syst-
kinunum þegar amma okkar, Jón-
ína Jóhannsdóttir, kvaddi þennan
heim þann 26. nóvember sl„ 85 ára
að aldri.
Frá því við fyrst litum dagsins
ljós varammaalltaf hjá okkur. Við
bjuggum hjá henni þegar hún bjó á
Skeiði og eins eftir að hún flutti til
Dalvíkur. Það var alltaf gott að
koma heim, vitandi það að amma
sæti heima við eldhúsborðið með
prjónana í höndunum, en hún taldi
aldrei eftir sér að leggja þá frá sér
og segja okkur sögur frá því að
hún var ung. Margt hafði hún tek-
ist á við á sinni lífsleið og miðlaði
þá gjaman reynslu sinni til okkar,
ef henni jróttu aðfarir okkar ógáfu-
legar.
Ömmu skorti aldrei krafta og
því kom andlát hennar okkur öll-
um á óvart, en svona var hennar
ósk, engin veikindi. Við systkinin
erum öll þakklát fyrir að hafa feng-
ið að alast upp með ömmu og njóta
samveru hennar, því að aldrei get-
um við fullþakkað það sem hún
gaf okkur.
Astarþakkir fyrir allt það sem
þú gerðir fyrir okkur, elsku amma,
blessuð sé minning þín.
Sigurvin, Hólmfríður,
Einar Sveinn og Jónína
Samheitagáta Árna Rögnvaldssonar
Priggja orða samheiti
Úrlausn:
Aðstoð hjálp liðsinni
afbaka rangsnúa skrumskæla
angra erta hrella
álit skoðun umsögn
átelja atyrða umvanda
ávítur skammir snuprur
bam krakki snáði
bágur hrakinn vesæll
belti gjörð lindi
berja ljósta slá
bið dok töf
böl eymd neyð
fiey skekta kæna
gleði kæti fjör
greiður létlur þægur
gróði arður ábati
hasar slagur áflog
kapp dugur elja
kæpa gjóta kasta
snúra spotti reim
Þegar dregið var úr aðsendum lausnum þess-
arar samheitagátu, kom upp nafn Sigrúnar
Dagbjartsdóttur Seldal í Norðfirði. Hún fær
sendan 1000 kallinn sem Ami Rögnvaldsson lét
fylgja sinni gátu.
Njót vel.
Lausn á jólakrossgátu
Lausn krossgátunnar í jólablaðinu var svo-
hljóðandi:
Jólin úti, jólin inni
jólagáta, orð í kross
hressa upp á hrörlegt minni
hugur límdur er hjá oss.
Léttist óðar htndin mín
lausn á hlaðið skrifa Itress.
Hana sendi heim til þín
hafðu þökk og vertu hless.
Fréttatengdu setningarnar:
- Bundið slitlag lagt frá Holti að Húsabakka
- Isbjöm varð safngripur
- Ný sundlaug í byggingu
- Blautt og sólarlítt í sumar
- Gagngerar endurbætur á Tjamarkirkju í tilefni
100 ára afmælis. Dýrt fyrirtæki sem þarf
fjárstuðning
- Varp margra fugla mistókst
- Sorpbrennslunni á Sauðanesi lokað
- Unglingalandsmót haldið sem markar ný svið
- Snjóleysi kom í veg fyrir landsmót skíða-
unnenda en í vetur verða þeir sko ekki snjó-
lausir, er snjóbyssa fer að keppa við móður
náttúru, sem aldrei lætur að sér hæða.
Af 31 réttri lausn reyndist vinningshafinn vera:
- Eydís Eiríksdóttir, Sunnubraut 3,
540 Blönduósi.
Óskar blaðið henni til hamingju.
Sparis j óður
Svarfdæla
/ hörkufrosti og fannfergi sendir
Sparisjódur Svarfdæla
viðskiptavinum sínum nær og
fjær hlýjustu kveðjur með ósk
um góðan og gleðilegan þorra
Sparisjóður Svarfdæla
Sími 616 00 - Ráðhúsinu, Dalvík
Ráðning ljóðaget-
raunar Norður-
slóðar 1992
í sparnaðarskyni á plássi og tima verða spurningarnar ekki
endurteknar hér, heldur látið nægja að tilfæra Ijóðlínuna,
sem lausnin felst í og sjálft svarorðið eða -orðin feitletruð.
1. Atburð sé ég anda mínum nær. (Hallgrímur Pétursson eftir
Matthías Jochumsson)
2. Um jarlstign hafði seggur sótt. (Þórður kakali eftir Hannes
Hafstein)
3. í svanaltki lyftist moldin hæst. (Svanur eftir Einar Ðenedikts-
son)
4. Meðan yfir er húm. (Vögguljóð eftir Jón Sigurðsson frá Kald-
aðamesi)
5. Knálegir menn. (Sjómaður dáðadrengur eftir Ragnar Jóhann-
esson)
6. Mælifellshnjúkur blár. (Annes ogeyjar efúr Jónas Hallgríms-
son)
7. Langt frá þinni feðrafold. (Jónas Hallgrímsson eftir Grfm
Thomsen)
8. Fjólubláir draumar. (Svífur yfir Esjunni eftir Sigurð Þórar-
insson)
9. Um hásumar. (Þú bláfjallageimur eftir Steingrím Thorsteins-
son)
10. Háum vegg. (Guttavísur eftir Stefán Jónsson)
11. Á laufgrænum kvist. (Dagur er tíöinn eftir Steingrím Thor-
steinsson)
12. Suður um höfin. (Eftir Skafta Sigþórsson)
13. Hringinn í kring um Strútinn. (Eftir Sigurð Eiríksson Kal-
manstungu)
14. Upp undir Eiríksjökli. (Eftir Jón Sigurðsson)
15. Sem risar á verði við sjóndeildarhring. (Eftir Þorstein Erlings-
son)
16. Úr þeli þráð að spinna. (Rokkvlsa eftir Jón Thoroddsen)
17. Saumaskap og lestri. (Tóta litla eftir Gústaf Jónasson)
18. Gleðin. (Hvað er svo glatt eftir Jónas Hallgrímsson)
19. Að lífiö það er sterkara en dauðinn. (Eftir Káinn)
20. Gæðakonan góða. (Eftir Jónas Hallgrímsson)
21. Eg labbaði inn á Laugaveg um daginn. (Eftir Hannes Hafstein)
22. Fyrir sunnan Fríkirkjuna. (Ennþá brennur mér í muna eftir
Tómas Guðmundsson)
23. Stílvopn. (Feigur Fallandason eftir Hjálmar Jónsson í Bólu)
24. Mamma geymir gullin þín. (Sofðu unga ástin mín eftir Jóhann
Sigurjónsson)
25. Undan stórum steini. (Krummavísur eftir Jón Thoroddsen)
26. Á Grímseyjarsundi. (Síldan’alsinn eftir Harald Zophoníasson)
27. Uppá háa hamrinunt býr huldukona. (Ekkillinn eftir Davíð
Stefánsson)
28. Geigþungt er brirniö við Grænland. (Eftir Kristján frá Djúpa-
læk)
29. Abba labba lá. (Eftir Davíð Stefánsson)
30. Að lífið sé skjálfandi lítið gras. (El'tir Sigurð Þórarinsson)
31. Þegar slíkur þurrkur er. (Vakna Dísa eftir Friðrik Friðriks-
son)
32. Þögla nótt í þínum örmum. (Sefursóleftir Sigurður Sigurðsson
frá Amarvatni)
33. í Jyngbrekkum lækimir hjala. (Svarfaðardalur eftir Hugrúnu)
34. Þínir herskarar, tímanna safn. (Lofsöngur eftir Matthías Joch-
umsson)
35. Háum helst und öldum. (Óltmd eftir Grím Thomsen)
Dregið var úr 25 réttum lausnum. Sú heppna er Dagbjört Ásgríms-
dóttir, Dalvík. Hún fær senda bók.
777 hamingju.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúö og hlýhug viö andlát og útför
Helgu Vilhjálmsdóttur
kennara frá Bakka
Sérstakar þakkir til hjúkrunardeildar
Sjúkrahúss Sauöárkróks og Dalbæjar, Dalvík.
Systkinabörn
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og
vinarhug viö andlát og útför móöur minnar
og tengdamóöur
Jónínu Jóhannsdóttur
Dalbæ, Dalvík
Þuríður Kristín Sigurvinsdóttir
Jón Þórhallsson