Norðurslóð - 27.01.1993, Qupperneq 7
NORÐURSLÓÐ — 7
Minning ,
Friðrika Sigríður Armannsdóttir
Fædd 23. september 1913 - Dáin 30. desember 1992
Að gefa af eigum sínum er lítil
gjöf. Hin sanna gjöf er að gefa
afsjálfum sér.
- Og til eru þeir, sem gefa og
þekkja hvorki þjáningu þess né
gleði og eru sér ekki meðvitaðir
um dyggð sína. Þeir gefa eins
og blómið í garðinum, sem and-
ar ilmi sínum út í loftið.
Spámaðurinn - Kahlil Gibran
Að morgni gamlársdags fékk ég að
vita að hún Rikka vinkona mín
væri dáin. Hún hafði veikst á að-
fangadag og lést á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Akureyri þann 30.
desember sl. Fregnin kom ekki á
óvart, við vissum að tvísýnt var
um líf hennar. Mér finnast áramót
alltaf svolítið sorgleg, þá kveður
maður eitthvað sem aldrei kemur
aftur. En nú er söknuðurinn meiri
og öðruvísi. Samt er gleðin yfir því
að hafa þekkt hana Rikku og hafa
svo oft átt þess kost að umgangast
hana, sorginni sterkari.
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og
vináttu viö andlát og útför móöur okkar,
tengdamóöur og ömmu
Friðriku Sigríðar Ármannsdóttur
Skíðabraut 6, Dalvík
Ármann Gunnarsson Steinunn Hafstaö
Ottó Gunnarsson Friöbjörg Jóhannsdóttir
Elín Gunnarsdóttir Sævar Ingi Jónsson
og barnabörn
Kynni okkar hófust fyrir löngu
þegar ég var enn bam, 9 eða 10
ára, og kom til Dalvíkur í fyrsta
sinn. Þá kom ég á heimili hennar
Friðriku frá Urðum, hún var þá
ung kona og átti tvo litla drengi.
Seinna bættist svo dóttir í fjöl-
skylduna. Ætíð síðan var heimili
hennar mitt athvarf ef ég þurfti að
dveljast á Dalvík, en þá voru sam-
göngur aðrar en nú og algengt að
gista þar um nótt og jafnframt að
vera veðurtepptur.
Það var alltaf mikið um gesti á
heimili hennar, hún tók okkur öll-
um „opnum örmum“ og mér hefur
alltaf fundist það hugtak eiga sér-
staklega vel við um hana. Það voru
allir velkomnir að borði hennar.
Hún var mjög dugleg og myndar-
leg í verkum sínum, hvort sem um
var að ræða matargerð, handa-
vinnu eða eitthvað annað. Samt
var hún aldrei upptekin, hafði allt-
af tíma fyrir okkur sem heimsótt-
um hana, mér finnst að hún hafi
gefið okkur líf sitt.
Ég og fjölskylda mín öll send-
um bömum hennar, þeim Ar-
manni, Ottó og Ellu Hönnu, og
fjölskyldum þeirra samúðarkveðj-
ur.
Ég veit að framvegis þegar ég á
leið um Skíðabrautina mun ég líta
upp í gluggann hennar og sjá að
„rósóttu tjöldin“ eru dregin fyrir,
hún Rikka er ekki heima.
Blessuð sé minning hennar.
Lena
Lausn á jólamyndagátu
Svarfdælabúð
Dalvík
Bóndadagur
Þorrí byrjar
* Hangikjöt
* Sviðasulta
* Hrútspungar
* Lundabaggar
* Bringukollar
* Magáll
* Reyktar bringur
* Steik
* Hákarl
* Flatbrauð
* Harðfiskur
* Smjör
* Salat
* Rófustappa
Þorrabakkar fyrir tvo (hjónabakkar)
með 14 tegundum - kr. 1.490,-
s
Utbúum þorramat
í trog fyrir stóra og smáa hópa
Fyrir 1-10 manns
Fyrir 11-40 manns
Fyrir 41 og fleiri
- kr. 745,-
- kr. 708,-
- kr. 670,-