Norðurslóð - 28.07.1993, Qupperneq 2

Norðurslóð - 28.07.1993, Qupperneq 2
2 — NORÐURSLOÐ NORÐURSLÓÐ Útgefandi: Rimar hf. Ritstjórar og ábyrgðarmenrr. Hjörleifur Hjartarson, Laugahlíð, Svarfaðardal Jóhann Antonsson, Dalvík Framkvæmdastjóri: Sigríður Hafstað, Tjörn. Sími 96-61555 Blaðamennska og tölvuumbrot: Þröstur Haraldsson, Dalvík Prentun: Dagsprent hf. Akureyri Sameining sveitarfélaga Vegna hinna miklu breytinga sem orðið hafa á byggð landsins, þar sem sífellt hefur fjölgað á höfuðborgarsvæðinu á meðan landsbyggðin hef- ur tapað fólki, er svo komið að fjöldi sveitarfé- laga í landinu getur vegna fámennis engan veg- inn staðið undir þeim skyldum sem á þeim hvíla samkvæmt lögum né heldur geta þau boðið íbú- um sínum uppá þá fjölbreytni og þjónustu sem sjálfsögð þykir í dag. Þá hefur fjöldi lítilla og vanmáttugra sveitarfélaga verið hemill á það að ríkið eftirléti sveitarfélögunum ýmis þau verk- efni sem eðli sínu samkvæmt eiga fremur heima þar, verkefni sem bæði auka áhrif heimamanna á eigin aðstæður og hafa í för með sér ný störf. Það má því segja að smæð sveitarfélaganna sé í sjálfu sér hvati til enn frekari byggðaröskunar. Núorðið virðast flestir gera sér grein fyrir þessu og víða um land hafa menn reynt að bregðast við. Lélegar samgöngur voru lengi hemill á sam- vinnu og/eða sameiningu sveitarfélaga. A síð- ustu árum hafa orðið miklar samgöngubætur og sífellt unnið að þeim, svo víðast er samgöngu- Ieysið ekki lengur sá Þrándur í Götu sem það áður var. A undanförnum árum hafa nokkur sveitar- félög stækkað við sameiningu, ýmist í sókn eða nauðvörn. I vörn þar sem þeim hefur ekki verið stætt á öðru þar sem fámenni einstakra sveitar- félaga var orðið slíkt að þau gátu enganveginn uppfyllt lagaskyldur sínar; í sókn þar sem til- tölulega öflug sveitarfélög sameinuðust til að styrkja stöðu sína enn frekar. Ljóst er að þessi þróun mun halda áfram. Eins og fram kemur í umfjöllun blaðsins um sameiningu sveitarfélaga, hvílir nú sú laga- skylda á sveitarstjórnum og umdæmanefndum í kjördæmunum að hafa samráð um tillögu að nýrri skiptingu Iandshluta í sveitarfélög, tillögu sem síðan verður lögð í dóm íbúanna hinn 20. nóvember n.k. Það skiptir miklu að kynning á þeim valkost- um sem bjóðast sé góð þannig að allir séu sér fullkomlega meðvitaðir um það hvað er verið að samþykkja eða hafna og hvaða afleiðingar það getur haft í för með sér. Fólk mun spyrja hvaða áhrif stærra sveitarfélag geti haft á hagi þess, skólagöngu barnanna, heilbrigðisþjónustu, þjónustu við aldraða og börn, tómstundir og ekki síst atvinnuhorfur. Umræðan um sameiningu sveitarfélaga hefur oft byggst meira á tilfínningum en staðreyndum. Ottinn við áhrifaleysi og fækkun fyrirmanna í héraði hefur einnig sett sinn svip á umræðuna. Það er þó Ijóst að vænlegra er til árangurs að íbúarnir kjósi sjálfir að sameina sveitarfélög sín undir merkjum sóknar en að þau séu vegna fá- mennis sameinuð næsta sveitarfélagi með vald- boði. SJ FRÉTTAHORNIÐ Sundlaugarbyggingin á Dalvík er nú óöum að taka á sig mynd. Búið er að ákveða að laugin sjálf verður steypt með flísum á köntum og „yfirfloti" eins og allar nýjar laugar eru í dag, þ.e. vatnið stendur jafnhátt kanti og á þaó að minnka bylgjuhreyfmgar í lauginni. At- hugað var um kaup á tilbúinni laug þar sem slíkar laugar voru sagðar mun ódýrari en steyptar. Nokkur dráttur varð á að tilboð um slíka laug kæmi og þegar til kom reynd- ist sá kostur ekki ódýrari. Laugin verður steypt í haust og gengió frá lögnum. I haust verður lóðin einn- ig grófjöfnuð og gengið frá húsinu að utan. Það hefur nú verið ein- angrað að utan og síðan verður settur á það svokallaður „ímúr“ sem er stytting á „íslenska múr- blandan“ en það er efni sem Sem- entsverksmiójan og Grundartanga- verksmiðjan hafa þróaó í samcirn ingu og þykir hafa reynst afar vel. í vetur verður svo gengiö frá húsinu að innan. Þá eru allar horfur á því að við getum synt í nýrri laug á næsta ári. Vegfarendur á Dalvík hafa vart komist hjá því að verða varir þeirra gatna og malbikunarfram- kvæmda sem nú eru í gangi. Loks hefur verið ráðist í að jaróvegs- Sundlaugarbyggingunni á Daivik miðar vel. skipta Böggvisbraut fyrir neðan kirkju (kirkjubrekku) og er þaó strax í áttina þó ekki verði brekkan malbikuð í ár. Malbikun á þeim vegaköflum sem þess bíða mun fara fram strax í byrjun ágúst, en þaö er í Túnunum, syðsti hluti Böggvisbrautar, vegurinn upp aó heimavist og endurnýjun á malbik- inu í brekkunni norðan við frysti- húsið. Byggingafrantkvæmdir við nýja þjónustuálmu við Dalbæ, dvalarheimili aldraðra, munu hefj- ast í haust. Samió hefur verió vió Daltré h/f um framkvæmdina og eiga þeir að skila húsinu fokheldu í júní á næsta ári. Það mun væntanlega gleója augu allra að „nýi skóli“ veröur málaöur í sumar. Eldri hluti húss- ins er nú orðinn meira en áratugs gamall þannig að segja má að málning sé orðin meira en tíma- bær. Skólamál Framhald afforsíðu margir hverjir eru fjölskyldumenn á fertugsaldri og ckki líklegir til að sætta sig við grunnskólaaga í hí- býlum sínum. Að sögn Þórunnar Bergsdóttur skólastjóra hafa nú þegar 32 framhaldsskólanemar sótt um á heimavist í vetur en vistin tekur 40 manns. Það liggur því nokkuð beint við að leggja heima- vistina að öllu leyti undir fram- haldsdeildina en þá þarf að skipu- leggja hvernig staðið verói að mál- um varðandi grunnskólanemend- urna úr nágrannabyggóunum sem ekki komast lengur á heimavist. Þessi breyting kallar einnig á gagngera endurskoðun á eignar- haldi og rekstri heimavistarinnar sem hingað til hefur verið rekin sameiginlega af sveitarfélögunum eftir ákveðnum kostnaóarskipting- arreglum. Þau mál eru að sögn í skoóun hjá bæjaryfirvöldum. Skýrslan Á vegum Fræðsluskrifstofunnar var Guðmundur Þór Ásmundsson fenginn til að gera úttekt á þessum málum og gera tillögur um nýtt fyrirkomulag. Þann 22. júní s.l. skilaói hann af sér skýrslu sinni Samvinna fhmn sveitarfélaga við Eyjqfjörð um skólahald. I skýrslunni rekur hann fyrst al- mennar skyldur sveitarfélaga varð- andi skólahald. Þar kemur nt.a. fram aó samkvæmt lögum ber sveitarstjórnum skylda til að sjá börnum fyrir grunnskólanámi, annað hvort með heimaskóla eða samningi vió skóla í öðru sveitar- félagi. 10. bekkur hefur nokkra sérstöðu þar sem þar eru gerðar kröfur til þess að boðið sé upp á valgreinar og aukna sérhæfingu. Til að slíkt sé gerlegt þarf nem- endafjöldinn að ná ákveðnu lág- niarki. Einnig kallar það á flciri kennara og ýmsa aðstöðu sem lítil sveitarfélög hafa ein og sér fæst ráð á að veita. Niðurstaða Guð- ntundar er því sú að ekki sé hægt að mæla með því aó 10. bekkur verði færður aftur heim til ná- grannabyggða Dalvíkur þó heima- vistin leggist af. I lokasamantekt skýrslunnar segir Guðmundur eft- irfarandi: „Lagt er til aó áfram>verði hald- ið samstarfi um 10. bekk fyrir sveitarfélögin 5 á Dalvík, ekki séu sjáanlegir betri kostir, enda óeöli- legt að draga úr samvinnu sveitar- félaganna á sama tíma og umræða á sér staó um aukna samvinnu og jafnvel sameiningu þeirra. Þessa samvinnu þarf aó gera formlega með samningi. Lagt er til að heimavist fyrir grunnskólanemendur á Dalvík verði lögð niður. Þess í stað verði nemendur úr Hrísey og Árskógs- hreppi fluttir daglega til Dalvíkur. Lagt er til aó á sama tíma og daglegur akstur verði tekinn upp að hluta í Svarfaðardal þá geri Grímseyjarhreppur formlegan samning vió Svarfaðardalshrepp um heimavist og skólagöngu sinna nemenda í 8. og 9. bekk ásamt heimavist og akstri nemenda í 10. bekk á Dalvík. Verói alfarið tekinn upp daglegur akstur í Svarfaðardal verói leitað leiða til þess að fá áfram afnot af hluta heimavistar- innar fyrir Grímseyinga. Einnig verði samið um lausn á helgardvöl þeirra á Húsabakka. Þessi kostur leysir einnig ákveðinn vanda Húsabakkaskóla hvað varðar sam- kennslu og kennslumagn auk þess sem nemendur í 10. bekk úr Svarf- aðardalshreppi geta sótt skóla á Dalvík úr heimavist á Húsabakka". Eftir að skýrsla þessi kom fyrir sjónir manna hafa sveitarstjórnir og skólayftrvöld viðkomandi sveitarfélaga ráðið mjög ráðum sínunt og eru nú línur teknar að skýrast töluvert. I stuttu ntáli rná segja að í llestu sé reynt að fara eftir tillögum Guómundar. Búió er að skipuleggja daglegan flutning Hríseyinga og Árskógsstrendinga og nú standa ytlr samningavið- ræður milli Grímseyjarhrepps og Svarfaðardalshrepps um santning sem gilda á milli svéitarfélaganna um samstarf í skólamálum. Nýir tímar á Húsabakka Þaó má því ljóst vera aó margt verður með öðru sniði í skólum hér á svæðinu næsta vetur og á það þó einkum við um Húsabakkaskóla. Það skal tekið fram að enn hefur samningur ekki verðið geróur milli Svarfaðardals- og Grímseyjar- hrepps en fyrir því er gagnkvæmur vilji og þarf eitthvað stórkostlegt að gerast til að þaó gangi ekki eftir. Stefnt er að þvl að taka upp dag- legan akstur fyrir nemendur 4. bekkjar og yngri. Vió þaó bætist ekki svo ýkja mikið við þann akst- ur sem fyrir var en nemendum l. bekkjar gefst þá kostur á daglegum skóla sem verður aó teljast jákvætt. Þá kcrnur það fram í skýrslunni að kcnnslustundakvóti Húsabakka- skóla eykst til rnuna mcð komu Grímseyinga. Mun víst ekki af veita. Það er því síst Svarfaðardals- hreppi eða Húsabakkaskóla I óhag að taka við nemendum frá Gríms- ey þó ekki sé um fjáhagslegan ávinning aó ræða. Þá hel'ur verið auglýst eftir fólki til að sjá um rekstur heimavistarinnar um helgar en þar er um aó ræða l'ullt starf l'yrir cina manneskju cöa hlutastarf fyrir fleiri. Stel'nt er að því að næsta vetur korni aðeins 8. bekkur úr Grímsey til kennslu á Húsa- bakka cn eldri bekkirnir haldi áfram í Dalvíkurskóla þó nernend- ur búi í heimavistinni en eftir þaó sitji Grímseyingar á Húsabakka í 8. og 9. bekk ásamt jafnöldrum sínum úr Svarlaðardal og verói síðan samferða þcirn til Dalvíkur. Aukin samvinna Enn eru ýmis mál varðandi hió nýja fyrirkomulag óleyst og er ljóst að þörf er mun rneiri sam- vinnu milli skólanna á svæðinu en vcrið hel'ur hingað til. Um það segir Guómundur: „Samvinna af þessu tagi kallar á úrvinnslu, samhæftngu og tillits- semi í tengslum vió geró stunda- skráa og skipulagningar, sérstak- lega hvað varðar I0. bekkinn. Eins þarf að huga að e.k. neyðarathvarfi fyrir aðkomna nemendur 10. bekkjar á Dalvík, helst utan núver- andi heimavistar, en samvinna verði um mötuneyti fyrir grunn- skólanema og framhaldsdeild.” Aó sögn Þórunnar skýrast línur á næstu dögurn varðandi athvarf fyrir utanbæjarkrakkana en hvað varðar aðstöðu til heimanáms benti hún á bókasafn skólans sem væri öllum ncmcndum opió til slíks. Vissulega væri óþægilegt hve skammur tími væri til stefnu og ýmis skipulagsmál sem þyrl'ti aó leysa fyrir skólabyrjun en alls staðar væri verið að vinna í þessurn málum og góóur vilji fyrir því að leysa þau tímanlega. hjhj

x

Norðurslóð

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.