Norðurslóð - 28.07.1993, Qupperneq 3
NORÐURSLÓÐ —3
Jón Helgi til
Edinborgar
Séra Jón Helgi Þórarinsson
sóknarprestur vor er nú á förum
ásamt fjölskyldu sinni til Edin-
borgar í Skotlandi þar sem hann
hyggst setjast á skólabekk næsta
vetur. Sóknarprestur Olafsfirð-
inga, Svavar Alfreð Jónsson,
þjónar prestakailinu á meðan en
þar sem hann er sjálfur enn í
námsleyfi fram til 1. september
mun séra Sigurður Guðmunds-
son vígslubiskup á Akureyri
þjóna hér í ágústmánuði. Þess
skal getið að símanúmer Sigurð-
ar er 2 70 46. Hér með er þetta
auglýst.
En hvað er séra Jón nú að fara
aó iesa þarna úti? Norðurslóð
hringdi í hann á dögunum og náði
aó tefja ögn fyrir honum flutning-
ana með spurningum.
- Það heitir: guðfræói kirkju-
tónlistar. Þetta eru kúrsar um
kirkjutónlist aó fornu og nýju við
guðfræóideild háskólans í Edin-
borg en í tengslum viö Tónlistar-
háskólann.
- Hefur þetta eitthvert hagnýtt
gildi fyrir þig?
- Ja, hagnýtt segirðu. Það er nú
ekki gott að segja. En ég hef verið
viðloðandi sálmastarf og ýmislegt
varðandi tónlist innan þjóðkirkj-
unnar um nokkurt skeið og langar
til að láta meira til mín taka á því
sviði. Til þess þarf ég náttúrulega
aó öðlast meiri þekkingu og
reynslu.
- Og er öll fjölskyldan aðfara í
skóla þarna úti?
- Já, Margrét fer í nám í sam-
bandi við tölvur og skólastarf. Það
er reyndar í Glaskow svo hún
veróur aö fara á milli í lest, þaó er
með öllu svona klukkutíma ferð.
Strákarnir fara í skóla rétt hjá þar
sem við búum. Við erum sem sagt
komin með húsnæði sem við flytj-
um í í byrjun september. Það er
best aó koma því hér að að heim-
ilisfang okkar og sími er:
Jón Helgi Thórarínsson
12/7 Sienna Gardens
Edinburgh EH9 ÍPQ
Scotland
Síminn er (90) 44 31 667 3550
Faxtæki verður einnig tengt þessu
símanúmeri.
- Ég hvet að sjálfsögðu alla til
að senda okkur línu, eóa þá fax. Ég
tala nú ekki um ef menn eiga leió
til Skotlands, að heimsækja okkur.
- Hvernig leggst svo ferðin í
ykkur?
- Nú bara vel. Við eru orðin
býsna spennt núna þegar þetta er
aó bresta á. Við ætlum okkur að
njóta ferðarinnar, fara með bílinn
og ferðast bæði um Skosku Há-
löndin og svo eitthvað suður á
bóginn.
- Vertu þá blessaður Jón og
góða ferð til Skotlands. Skilaðu
kveðju til Margrétar og strákanna.
Þess má aó lokum geta að Jón
hefur lofaó að senda okkur nokkra
Edinborgarpistla í blaóió á meóan
á dvölinni stendur. hjhj
Prestshjónin á Dalvík, sr. Jón Helgi Þórarinsson og Margrét Einarsdóttir.
Stökur mánaðarins
XII
Enn birtist vísnaþáttur Norður-
slóöar og nú í 12. sinn. Nú eigum
við aó koma með þrjár stökur,
sem byrja á bókstöfunum N, O
og Ó. Ekki ætti okkur að verða
skotaskuld úr því, eða hvað?
Og nú byrjum vió:
N Nordan hardan gerdi gard,
geysi hardur vard’ann.
Borda jardar erdis ard
upp í skardið bard’ann.
Það var gamall talsmáti um
norðanverða Vestfirði og líka
urn útsveitir norðanlands að bera
Ð fram sem D ef það fór á eftir
R. Vísan þarf skýringar vió:.
Hvað var það sem norðangarð-
urinn barói upp í skarðið? Jú,
„borði jarðar" er hafið sem girð-
ir landið. „Erði“ þýðir þungur
plánki. „Plánki hafsins" merkir
þá skip. „Arður skipsins“ er því
fiskiafii, í þessu tilfelli líklega
harðfiskur af trönum. Merking
vísunnar er því sú, aó það hafi
gert svo mikinn norðanstorm, að
hann hafi feykt skrciðinni upp í
skaró. En hvaóa skarð, Siglu-
fjarðarskarð? Spyr sá ekki veit.
O Oft er sá í orðunt nýtur,
sem iðkar menntun kæra.
En þursinn heimskur þegja
hlýtur,
sem þrjóskast við að læra.
Þetta var cin af „hcilræðavís-
um“ séra Hallgríms Péturssonar,
og ekki sú lakasta.
Ó Ólán vex í illum reit.
ekk’eru Ieiðir kunnar:
Mig í kálfa báða beit
búrtík húsfreyjunnar.
Svo kvaó Bólu-Hjálmar þcg-
ar hann steig á skott tíkurinnar í
dimmum göngunum á bæ, þar
sem hann var gestkomandi, og
tíkin beit hann í báóa fætur.
Hann fékk reyndar svarvísu frá
húsfreyjunni allkaldranalega, en
hún verður ekki birt hér, því hún
er ekki við hæfi bama innan 14
ára aldurs, eins og þeir segja í
sjónvarpinu.
Þá höfum vió það, og næstu 3
stökur ciga að hefjast á bók-
stöfunum P, R og S. Stafurinn Q
er ekki notaður í voru ritmáli.
HEÞ
Dalvík
Sparisjóður
Svarfdæla
- Arskógi - Hrísey
sendir hásumarkveðjur til allra
byggða Ut-Eyjafjarðar
og óskar starfsfólki
og viðskiptavinum öllum
gæfu og gengis heima og heiman,
meira sólskins en minni þoku
við leik og störf sumarsins.
Hittumst heil að hausti
Sparisjóðurinn
^ 61600 Dalvík ® 61880 Árskógi ^ 61785 Hrísey
Svarfdœlabúð
Dalvík
Allt á srillið 03 í helsarmatinn
úr kjötboröinu
Lambakjöt
í 1/4 skrokkum, kr. 398,- kg
Lambalœri - Kótelettur
- Hryssir
á tilboösveröi
Hansikjöt - Londonlamb
Kjöt á grilliö meö
15% afslætti
Líttu inn - það borgar sig!