Norðurslóð - 25.08.1993, Page 4
Svarfdælsk byggð & bær
TímamóT
Brúðkaup
Þann 20. ágúst voru Sigríður Arnadóttir fréttamaóur hjá Ríkisútvarpinu
og Helgi Már Arthúrsson fréttamaður hjá Ríkissjónvarpinu gefin saman í
Tjamarkirkju. Heimili þeirra er aö Kaplaskjólsvegi 65, Reykjavík. A
myndinni hér að ofan má sjá brúðhjónin ásamt sr. Birgi Snæbjörnssyni
prófasti, sem gaf þau saman, og afa brúóarinnar, Bimi Þórðarsyni, sem allir
eldri Svarfdælingar þekkja.
Laugardaginn 21. ágúst voru gefin
saman í Dalvíkurkirkju Þorgerður
Hafdís Þorgilsdóttir, Hánefsstöð-
um, og Kristján Þorsteinsson,
bóndi Uppsölum. Heimili þeirra er
aó Uppsölum. Sr. Torfi Stefánsson
Hjaltalín á Möðruvöllum gaf brúó-
hjónin saman.
Afmæli
Þann 6. ágúst varð sjötíu ára Anna
Sölvadóttir, húsfreyja í Ytra-
Garðshomi.
Þann 19. ágúst varð áttatíu ára
Anton Gunnlaugsson, verkstjóri
Karlsbraut 29, Dalvík.
Skírnir
14. ágúst var Andri Oddur skírður á Dalvík. Foreldrar hans eru Bima
Margrét Amþórsdóttir og Magnús Steinar Magnússon, Dalbraut 2, Dalvík.
21. ágúst var Sigurður Haukur skírður á Dalvík. Foreldrar hans em
Marsibil Sigurðardóttir og Valur Hauksson, Drafnarbraut 7, Dalvík.
21. ágúst var Rebekka Rún skírð á Dalvík. Foreldrar hennar eru
Ragnheióur Rut Friðgeirsdóttir og Sævar Freyr Ingason lögregluþjónn,
Hjarðarslóð 6d, Dalvík.
Norðurslóð ámar heilla.
Andlát
Þann 14. ágúst fór l'ram frá Tjamarkirkju útför Engilráðar Sigurðar-
dóttur á Bakka. Prestur var sr. Sigurður Guðmundsson á Akureyri,
fyrrverandi vígslubiskup.
Ingibjörg Engilráó, en svo hét hún fullu nafni, fæddist á Göngustöóum
íUrðasókn l.júní 1S96ogandaðistáDalbæ 10.ágúst 1993og varþvíá98.
aldursári er hún lést. Foreldramir voru Osk Pálsdóttir og Siguróur Jónsson,
heiðurshjón á Göngustöðum. Þann 30. nóvember 1918 giftist Engilráð Þór
Vilhjálmssyni á Bakka. Þau hófu búskap á Hnjúki í Skíðadal og bjuggu þar
1917-1923, síðan á Bakka, fyrst í ábúð Vilhjálms, föður Þórs, en eftir það
á jörðinni allri til 1960. Afram dvöldu þau þó bæði á Bakka þar til Þór
andaðist 1973 en hún þangað til fyrir fáum árum, að hún fluttist á heimili
aldraóra á Dalvík.
Engilráó á Bakka var mikilsmetin dugnaðarkona, sem aldrei lá á liði
sínu á sínum langa æviferli í þjónustu vió fjölskyldu sína. Vandalausum,
sem á vegi hcnnar urðu, reyndist hún hjartahlý drengskaparkona.
Böm þeirra Þórs eru Kristín, fyrrverandi bóndakona á Bakka, Osk,
lengi ráðskona í Húsabakkaskóla, Eva, húsfreyja í Reykjavík, Helga,
bóndakona á Bakka, Rannveig, bóndakona á Litlu-Hámundarstöðum, og
Vilhjálmur, vinnuvélastjóri í Reykjavík.
Fjölmenni var við útförina, enda var hin látna vinsæl kona og kynsæl og
átti fjölda afkomenda þegaryfir lauk, langri farsælli ævi.
Þann 18. ágúst. lést Karitas Kristjánsdóttir frá Árhóli
Þann 19. ágúst lést Rannveig Stefánsdóttir, Dalbæ.
Þeirra verður minnst í næsta tölublaði Norðurslóðar.
íþróttir
Framhald afforsíðu
piltana í 4. flokki sem unnu sér rétt
til þátttöku í úrslitakcppni síns ald-
ursflokks, 13-14 ára. Sú keppni fór
fram á Dalvík, Ólafsfirói og Ár-
skógsströnd og þar komst sameig-
inlegt lið Dalvíkur og Leifturs í
undanúrslit en tapaði fyrir KR.
Og ckki má gleyma frækilegri
frammistöðu yngsta knattspyrnu-
fólksins sem tók þátt í árlegu
Króksmóti á Sauðárkróki um miðj-
an ágúst. Þar kepptu pollar og pæj-
ur allt niður að 5 ára aldri og dal-
vísku keppendurnir komu heim
hlaðnir góómálmum.
Það ætti þvi ekki að vcra nein
ástæða til að kvíða framtíð knatt-
spyrnunnar hér um slóðir. -ÞH
*
, Vegagerð í Olafsfjarðarmúla:
Ovissa um verklok í haust
Vegageröarmenn í Múlanum voru í kaffi þegar blaðamaður Norðurslóðar
heimsótti þá á dögununi og mættu glaðbcittir til myndatöku þrátt fyrir
ótíðina og crfiðleika henni samfara.
Verulegar tafir hafa orðið á
vegaframkvæmdum í Ólafs-
fjarðarmúla og er ekki enn útséð
um hvenær tekst að Ijúka því
verki. Sem kunnugt er, er það
verktakafyrirtækið Verklegar
framkvæmdir hf. sem tók að sér
verkið og áttu þeir að skila veg-
inum 15. ágúst s.I. tilbúnum
undir slitlag.
Að sögn Guðbrands Þorvalds-
sonar verkstjóra hefur tíðarfarið
sett verulegt strik í reikninginn og
uróu þeir að gera uppihald á verk-
inu þegar rigndi sem mest í síðustu
viku þar sem buróarlagið óöst jafn-
harðan upp og það var lagt. Þá
voru þeir illa tækjum búnir í byrjun
auk þess sem verkið var stærra en
upphaflega var gert ráð fyrir. Veg-
arkafla var bætt við niður við Hól
og einum tólf ræsum hér og þar.
Fengist hefur frestun á verkskilum
hjá Vegagerðinni bæði vegna þess-
ara breytinga og vegna erfiðra skil-
yróa en að svo stöddu sagði Guð-
brandur ómögulegt aó segja til um
hvort tækist að ljúka verkinu fyrir
vetur. Ef tíöin færi að batna taldi
hann þó að það myndi hafast.
Búið er aó leggja undirlag á 6,6
km af þeim 9,2 km sem leggja á og
er nú stefnt að því að ganga endan-
lega frá 5 km undir slitlag áður en
allt verður sett á fullt við að klára
að undirbyggja þann kafla sem
uppá vantar.
hjhj
Hestaíþróttir:
*
Svarfdælskur Islandsmeistari
Það er ekki á hverjum degi sem
við Svarfdælingar eignumst ís-
landsmeistara en það gerðist
engu að síður 25. júlí síðastlið-
inn. Þá vann Bergþóra Sig-
tryggsdóttir í Helgafelli Jrað af-
rek að krækja sér í Islands-
meistaratitil í fjórgangi í flokki
barna 13 ára og yngri á íslands-
móti í hestaíþróttum sem haldið
var á Akureyri. Ilesturinn sem
Bergþóra vann á heitir Jónas, 11
vetra, í eigu Sigurhönnu systur
hennar.
Þess má geta aó Agnar Stefáns-
son frá Dalvík var einnig atkvæða-
mikill í fiokki barna bæði á þessu
móti og á fjórðungsmótinu í sum-
ar, var í fjórða sæti í fjórgangi í
bæði skiptin auk þess sem hann
komst í verðlaunasæti bæði í tölti
og hindrunarstökki á Islandsmót-
inu.
En það var sem sagt Bergþóra
sem náói í Islandsmeistaratitilinn
og af því tilefni hcimsótti Noröur-
slóð hana á dögunum og lagði fyrir
hana nokkrar spurningar.
íslandsmeistarinn ungi Bergþóra
Sigtryggsdóttir. Á myndina vantar
hcstinn Jónas.
Hvernig undirbjóst þú þig fyrir
mótið?
- Eg hef bæði náttúrulega æft
mig sjálf og svo var Kolla (Kol-
brún Kristjánsdóttir formaður
Hrings) með okkur í ströngum æf-
ingum fyrir mótið.
Er mikið lagt upp úr barnastarfi
hjá hestamannafélaginu?
- Já, hjá íþróttadeildinni er tölu-
vert barnastarf. Það eru líka fleiri
tækifæri fyrir krakka á hestamót-
um.
Hvernig verður maður Islands-
meistari?
- Það veit ég ekki. Ætli maður
reyni ekki aó gera sitt besta. Svo
skiptir náttúrulega miklu máli aó
vcra á góðum hesti. Kannski skipt-
ir það mestu máli.
Er Jónas góður hestur?
- Já mjög góður.
Hvað er svona gaman við það
að stunda hestamennsku?
- Svona gaman? Eg get alls
ekki lýst því. Þaó er bara rosalega
gaman.
Hefur viðhorf þitt til hcsta-
mennskunnar breyst eftir að þú
varðst Islandsmeistari?
- Nei, það hcld ég ekki. Jú
kannski tek ég hestamennskuna al-
varlegar en áður. Eg ætla allavega
aó halda áfram.
Takk fyrir Bergþóra og til ham-
ingju með sigurinn. hjhj
Bikarmót Norðurlands í
hestaíþróttum á Flötutungum
Nýr keppnisvöllur gerður í Hringsholti
Mikill þróttur er í hestamennsku
hér um slóðir og stendur starf-
semi Hestamannafélagsins
Hrings og þá einkum íþrótta-
deildar þess í miklum blóma.
Næstu helgi 27.-29. ágúst fer
fram á vegum félagsins Bikar-
mót Norðurlands í hestaíþrótt-
um á Flötutungum.
Sjö ár eru liðin sióan félagið
hélt fyrsta bikarmótið af þessu tagi
og hefur það síðan verió árviss við-
burður á Norðurlandi. Hafa hesta-
mannafélög á svæðinu skipst á
halda mótin og nú cr sem sagt aftur
komin röðin að hestamannafélag-
inu Hring. Keppnin er sveita-
keppni og keppir ein sveit frá
hverju félagi eöa félagasambandi.
Að sögn Þorsteins Hólm Stefáns-
sonar formanns undirbúnings-
nefndar hafa Akureyringar alltaf
unnið hinn eftirsótta Dags-bikar
sem keppt er um á þcssu móti utan
einusinni að Austur-Húnvetningar
urðu hlutskarpastir.
Keppt veróur í hefðbundnum
greinum, svo sem fjórgangi, fimm-
gangi, tölti og gæðingaskeiði og
einnig í hindrunarhlaupi. Hefur
jafnvel komið til tals að hafa
hindrunarhlaupið á laugardeginunt
á Dalvík ef pláss finnst fyrir það. Á
laugardeginum fer að öðru leyti
fram forkeppni en á sunnudag
verða úrslit og gæðingaskeið.
Framkvæmdir
í Hringsholti
Aó undanförnu hafa staðið yfir
miklar framkvæntdir norðan vió
hesthúsið stóra í Hringsholti en þar
er félagið að leggja drög að hring-
velli og tilhlýðilegri keppnisaó-
stöðu í tengslum við hesthúsið og
alla þá aðstöóu sem fyrir er. Að
sögn Þorsteins er ljóst að sú að-
staða mun í framtíðinni aó nokkru
eða mestu leyti yfirtaka þá ágætu
keppnisaðstöóu sem félagió hefur
byggt sér upp á Flötutungum.
Hringsholt er núorðið hins vegar
óumdeilanleg miðstöó hesta-
mennskunnar í dalnunt og aóstæð-
ur þar um margt ákjósanlegri fyrir
menn og skepnur en frammi á
Tungum. Þangað er stutt að fara
fyrir flesta bæði til keppni og æf-
inga og rafmagn, hiti og húsaskjól
fyrir menn og hesta á næstu
grösum.
Hestamannafélagið á sern
kunnugt er stóran hlut í hesthúsinu
stóra í Hringsholti og er þar með
félagsaðstöðu sína og einnig stend-
ur til að byggja upp innanhúss-
reiðgerði og sýningaraðstöðu í
norðurenda hússins. Þeint fram-
kvæntdum var hins vegar frestað í
sumar og ákveóið að framkvæmdir
við hringvöllinn norðan við skyldu
hafa forgang.
Upphallega stóð til aó halda
Bikarmótið á hinum nýja velli en
sökum bleytu og ótíðar verður
ekkert af því að sinni þar sem verk-
inu hefur seinkað og engin boðleg
aðstaða er þar cnn til staóar.
hjhj