Norðurslóð - 23.03.1994, Síða 4
4 — NORÐURSLÓÐ
Hálfkveðnar
vísur I
Hafíð hjá Leikfélagi Dalvíkur:
Metnaðarfull sýning á
hálfrar aldar afmælinu
Vafalaust kannast margir les-
endur Norðurslóðar við það,
hve ergilegt það getur verið að
kunna ekki eða muna ekki
vísur í heild sinni, vanta t.d.
seinnipart.
I þessum þætti, sem hleypur
af stokkunum hér og nú og
nefnist Hálfkveðnar vísur,
verður leitast við að hjálpa upp
á sakirnar og reynt að hafa upp á
týndum brotum af góðum fer-
skeytlum og öðrum vísum.
Fleira mun þó fljóta með í þess-
um þætti eins og strax mun
koma í ljós.
Það var einhverju sinni á
æskuárum mínum, líklega laust
eftir 1930, að ég var sendur til
Akureyrar í sérkennilegum er-
indagerðum. Það var önnur Ak-
ureyrarferðin mín. Sú fyrsta var
farin 2-3 árum áður og aðallega
í þeim tilgangi að láta taka
mynd af okkur systkinunum..
Nema hvað. I þetta skipti var
erindió það, að reka á eftir kú,
sem faðir minn var að selja til
Akureyrar. Sá sem kúna teymdi
var Jón Eyjólfsson, fyrrverandi
póstur, og mun hafa verið flutt-
ur úr sveitinni til Dalvíkur þegar
hér var komið sögu. Dótturson-
ur Jóns er Friójón Kristinsson,
safnvörður á Dalvík.
Við lögðum af stað með
kusu að morgni dags í besta
veðri, sólskini og hlýju. Báðir
vorum við ríðandi, Jón sat á
Hettu gömlu og teymdi kúna, ég
á Lalla og danglaði við og við í
vesalings kúna, sem ekki hafði
hugmynd um, hvað þetta feróa-
lag átti að fyrirstilla. Ferðin tók
2 daga, við gistum á Lækjar-
bakka, smákoti, sem stóð í tún-
inu ofan við Hvamm. Þar þekkti
Jón heimilisfólkið, konu og tvö
uppkomin börn hennar. Lítið
pláss var í baðstofukytrunni, þar
sem heimilisfólkið svaf, svo ég
var látinn sofa ofan við Jón í
mjóu rúmi þarna í baðstofunni.
Þá um kvöldió kenndi hann mér
vísu þar sem nafn mitt kemur
fyrir. Því miður nam ég ekki
vísuna alla en seinniparturinn cr
svona:
Hjartans góði Hjörturinn
hennar móður sinnar.
Aldrei hef ég heyrt fyrri hlut-
ann, þetta er sem sagt hálfkveð-
in vísa. Hér með auglýsi ég eftir
fyrripartinum.
Reyndar hefur Hjörleifur
kennari í Laugahlíð ort fyrripart
og tileinkað syni sínum, Hirti,
vísuna:
Vakir hljóður vinurinn
vœr með rjóðar kinnar.
HEÞ.
Leikfélag Dalvíkur ætlar að minn-
ast hálfrar aldar afmælis síns með
glæsibrag ef marka má fyrri hálf-
Ieik, ef svo má segja. Nú standa
yfir sýningar á Hafinu eftir Olaf
Hauk Símonarson en í haust „í
seinni hálfleik“ hyggst félagió
setja upp söngleikinn Land míns
föður eftir Kjartan Ragnarsson.
Það er í anda starfs félagsins á
liónum fimmtíu árum aó setja
þessi verk upp nú. Leikfélagið hef-
ur verið metnaóarfullt í starfi sínu
alla tíö og haldið á lofti þeirri leik-
hefð sem þróast hafði í þessu
byggðarlagi í næstum hálfa öld
áður en leikfélagið var stofnað. A
næsta ári er lióin öld frá því fyrsta
leikritió var sett upp hér í byggð-
arlaginu.
Olafur Haukur Símonarson
tekst á við eitt mesta deilumál
samtímans í leikriti sínu, það er
kvótamálin og spurninguna um
eignar- og ráðstöfunarrétt á veiði-
heimildum. Hafið er því leikrit
sem á erindi við okkur í dag og
hæfir vel sem afmælisleikrit leik-
félags í sjávarplássi. Til viðbótar
þessu er varpað ljósi á samspil
kynslóðanna og átök og uppgjör
þeirra í milli. Leikritið er í flesta
staöi vel gert frá hendi höfundar og
mjög fyndið á köflum.
Leikstjóri sýningarinnar er Þór-
unn Magnea Magnúsdóttir og er
greinilegt að hún hefur unnið sitt
verk vel og náð góóum árangri
með leikendum. Leikmynd er
Sparisjóður
Svarfdæla
á Dalvík, í Hrísey, í Arskógi
sendir viðskiptavinum kveðjur guðs og sínar
og óskar þeim til hamingju með góðan
skíðasnjó, gott atvinnuástand og gott
menningarlíf í úteyfirskum byggðum.
Fyrir 110 árum stofnsettu feður vorir og
mæður Sparisjóðinn. Síðan hefur hann staðið
við hlið afkomenda þeirra í blíðu jafnt sem
stríðu og tekið þátt í gleði þeirra og sorgum.
I dag stendur hann á þremur styrkum rótum á
eyju, vík og strönd og starfar af krafti bæði á
sjó og landi.
Dalvíkingar - Svarfdælingar
Hríseyingar - Arskógsstrendingar
Standið vörð um sparisjóðinn.
Hann er vinur vina sinna.
Sparisjóður Svarfdæla
Dalvík - Hrísey - Árskógsströnd
Kristján Hjartarson, Guðný Bjarnadóttir og Steinþór Steingrimsson í hlut-
verkum sinum í Hafínu. Myndin er tekin á æfingu þegar leikmyndin var cnn
hálfköruð.
mjög haganlega geró. Það var
mjög merkilegt hversu sviðið í
Ungó virkaði stórt og rúmgott
enda var flestum hlutum komið
þannig fyrir að allt sýndist stærra
og meira en það er í raun. Eins er
með lýsingu og búninga, hvort
tveggja er vel gert.
Með hlutverk í leikritinu fara að
þessu sinni margir af reyndustu
leikurum félagsins. Það er gaman
að sjá á sviði nokkra sem ekki hafa
verið með nokkuð lengi. Enda er
það svo að ílest hlutverkin eru vel
mönnuð og ekkert þannig aó það
dragi sýninguna nióur. Surn atriði
sýningarinnar eru listavel útfærð
bæði frá hendi leikstjóra og leik-
enda. Sýningin fær í heild rnjög
góða dóma bæói hjá leikhúsgest-
um og einnig gagnrýnedum sem
um hana hafa skrifað í blöð. Að-
sókn að sýningum hel'ur líka verió
mjög góó. Sýningar eru þegar
orónar 14 og er ráðgert að sýna
leikritið enn um næstu helgi. J.A.
Litríkar þrautir
Einn velunnara Norðurslóðar er dr. Sturla Friðriksson land-
nýtingarráðunautur hjá Búnaðarfélagi íslands. Hann er
höfundur þessara skemmtilcgu Iieilabrota sem blaðinu bár-
ust á dÖgunum.
Hvemig er hvellur litur?
Hvemig er mjór þráóur litur?
Hvemig litur þráður gengur í gegn um söguna?
Hvemig er hversdagsleikinn litur?
Hvemig er veruleikinn litur?
Hvemig er almúginn litur?
Hvemig er miðnætti litt?
Hvemig er mesta skammdegió litt?
Langt er fram í hvemig litan dauóa?
1 hvaöa lit fer þaó nú í vandræóum?
I hvemig litum sýnir maður staöreyndir?
Hvemig litan þvær maður saklausan?
Hvemig eru þeir fátækustu litir?
Líkt og hvemig litur köttur er tíður gestur?
Líkt og hvemig litt strik fer maóur í flýti?
Hvaöa lit bætir maöur á annan til hins verra?
Hvort er nú einn litur öómm betri?
Hvemig er glíma á litinn?
Hvemig litan belg geldur maóur fyrir öóruvísi litan?
A hvemig litri grein er happamaður?
Dalvíkurbær
w Dalvíkingar
í tilefni af 20 ára kaupstaóarafmæli Dalvíkur
þann 10. apríl nk. hefur veriö ákveóið aó halda
yfirlitssýningu á verkum Brimars Sigur-
jónssonar. Þeir sem eiga verk eftir hann og
vilja láta á sýninguna hafi samband við Arnar
Símonarson í síma 6 11 63 eða bæiarskrifstof-
una á Dalvík, sími 6 13 70, fyrir 25. mars nk.
Hátíðarnefnd Dalvíkurbæjar