Norðurslóð - 23.03.1994, Page 6

Norðurslóð - 23.03.1994, Page 6
■MHÉ Svarfdælsk byggð & bær TÍMAMÓT Skírnir Þann 6. mars s.l. var skíröur á Sökku í Svarfað- ardal Arnar Gunnsteinsson, foreldrar hans eru Dagbjört Jónsdóttir og Gunnsteinn Þorgilsson á Sökku. Arnar fæddist 30. janúar sl. Þann 13. mars var skírö í Dalvíkurkirkju Elísa Elvarsdóttir, foreldrar hennar eru Björk Sturludóttir og Elvar Þór Antonsson Reyni- hólum 5, Dalvík. Elísa fæddist 3. janúar sl. Afmæli Þann 7. mars sl. varö 80 ára Guðjón Loftsson Bjarkarbraut 7, Dal- vík. Þann 15. mars sl. varö 80 ára Baldvina Hjörleifsdóttir Goóabraut 10 Dalvík. Þann 16. mars sl. varö 75 ára Baldvina Guðmundsdóttir frá Ups- unr, nú til heimilis á Dalbæ Dalvík. Þann 23. desember sl. varð 80 ára Laufey Sigurpálsdóttir, Karls- rauöatorgi 12, Dalvík. Þessi afmælisfrétt féll niður í janúarblaði og cr Laufey beöin velvirðingar á því. Noröurslóð árnar heilla. Messur um páska Föstudagurinn langi: Messa í Urðakirkju kl. 14.00. Sr. Svavar A. Jónsson predikar. Föstudagurinn langi: Krossljósastund í Dalvíkurkirkju kl. 21.00. Sr. Sigurður Guömundsson vígslubiskup annast þá stund. Páskadagur: Hátíöarmessa í Dalvíkurkirkju kl. 8 f.h. Sr. Siguró- ur Guömundsson predikar. Páskadagur. Messa á Dalbæ kl. 14.00. Sr. Svavar A. Jónsson predikar. Páskadagur. Hátíöarmessa á Vallakirkju kl. 14.00. Sr. Sigurður Guömundsson predikar. Annar páskadagur. Messa í Tjarnarkirkju kl. 14.00. Sr. Svavar A. Jónsson predikar. Hópurinn Scni sýndi með brúðarpar og brúðarmeyjar í forgrunni. Myn: hk Skemmtilegt framtak Sunnudaginn 13. mars sl. var skemmtileg sýning í Víkurröst á Dal- vík, nefndist hún „Útlit 1994“. Þarna var sýndur tískufatnaður, nýj- ustu línur í hárgreiðslu, klippingu og andlitsförðun, sýndir hattar og snyrtivörur kynntar. Þetta er í annað sinn sem þessi sýning er haldin á Dalvík. Þeir sem stóöu fyrir þessu framtaki voru: Sigrún Heimisdóttir, Auður Hclgadóttir og Brynja Magnúsdóttir, snyrti- og hárgreiöslukonur á Dalvík. Aðrir þátt- takendur voru: Saumastofan Árskógsströnd, Tískuverslunin Tara Dalvík, Ingibjörg Kristinsdóttir, Hugrún Marinósdóttir, Sigríöur Hafstaö, Blóma- búöin Ilex Dalvík og nokkrir aöilar frá Akureyri. Þessi sýning var mjög vel sótt og þótti takast hið besta. Sýningarfólk var um 30 talsins frá Dalvík og nágrenni, á öllum aldri og stóö sig vel. Kynnir var Hermína Gunnþórsdóttir. FRÉTTAHORNIÐ / Iannað sinn var efnt til svo- nefndra Norólenskra daga í verslunum hér viö Eyjafjörð og lauk þeim á föstudaginn. Þá var heilmikiö um dýrðir í Svarfdæla- búð. Auk kynningar á ýmsum norðlenskum framleiðsluvörum tók Kór Dalvíkurkirkju lagiö og hópur eldri borgara sýndi þjóð- dansa sem þau hafa æft í vetur undir leiösögn þeirra Gunnars Smára Björgvinssonar og Margrét- ar Brynjólfsdóttun Þar var dansaö af hjartans list eins og myndin ber með sér og vakti sýningin mikla hrifningu viðstaddra viöskiptavina Svarfdælabúóar sem gengu glaðir til innkaupa eftir að hafa fengiö ofurlitla menningu i kroppinn. Eins og viö greindum frá í síö- asta tölublaði Noröurslóöar er nú í bígerð aö koma upp útilista- verki á lóð Ráóhússins á Dalvík. Efnt var til hugmyndasamkeppni meöal listamanna og bárust 24 til- lögur. Fjórir listamenn voru valdir til að taka þátt í lokaðri samkeppni um útilistaverk og eru þaö þau Rúrí, Siguróur Guómundsson, Jó- hanna Þóróardóttir og Sólveig Eggertsdóttir. Listamennirnir fjórir komu noróur í síóustu viku til aö kynna sér aðstæóur, en þeir eiga aö skila tillögum í lok maímánaðar. Mánuói síðar á dómnefnd aö kveóa upp úrskurö sinn um hvaöa verk skuli valið og á það aö vera komið upp í septembcr. Dómnefnd ákvaó aó hafa þaö opið hvort lista- mennirnir skiluóu inn einu eöa tveimur verkum, en samkvæmt tcikningu Halldórs Jóhannssonar af lóðinni má koma fyrir tveimur verkum, öóru smærrá á horninu gegnt húsi KEA, hinu stærra á svæðinu sunnan og suðaustan Ráö- hússins. ann 10. apríl nk. verða liðin tuttugu ár frá því Dalvíkurbær fékk kaupstaöarréttindi. Af því til- efni hcfur bæjarstjórn ákveðið að efna til sýningar á listaverkum eftir Brimar Sigurjónsson. Þaö eru hæg heimatökin því bærinn á mörg vcrk eftir Brimar, en auk þess hef- ur verió auglýst eftir verkum sem eru í einkaeigu og eigendur kynnu aó vilja setja á sýninguna. Viö afgreióslu fjárhagsáætlunar bæjarins fyrir skemmstu var heimilað aó verja allt að einni milljón króna til að ráöa sérstakan ferðamálafulltrúa bæjarins. Nú cr vcrið aó undirbúa starfslýsingu fyrir fulltrúann og hafa í því sam- bandi komið upp hugmyndir um að starf hans gæti að cinhverju leyti tengst atvinnumálanefnd. Einnig hefur verið rætt um aö at- huga hvort Olafsfirðingar hafi áhuga á samvinnu í ferðamálum. Ferðamálanefnd leggur áherslu á að hægt verði að auglýsa eftir ferðamálafulltrúanum sem fyrst og eigi síðar en um miðjan apríl. Undanfarin ár hefur Friójón Kristinsson gegnt starll safn- varðar í Byggðasafninu í Hvoli, en hann hefur nú sagt því lausu. Aug- lýst var eftir safnverði og bárust tvær umsóknir. Onnur var frá Hclgu Steinunni Hauksdóttur sagnfræóingi og kennara viö Dal- víkurskóla og var hún ráðin til starfsins sem telst vcra hálf staða. Auk menntunar sinnar hefur Hclga Steinunn starfað við Árbæjarsafn í Reykjavík. Hana má auk þcss berja augum á fjölum Ungó þar sem hún þreytir frumraun sína á lciksviði í sýningu Leikfélags Dalvíkur á Hafinu eftir Olaf Hauk Símonar- son. Góður skíðavetur - Skíðalyfturnar hafa varla stöðvast eftir áramót Veturinn hefur verið cinstaklega hagstæður skíöafólki hér á Dal- vík. Skíðalyftan í Böggvisstaða- fjalli hefur gengið nokkuð linnu- laust og sjaldan orðið uppihald sökum veðurs. Skíðafélag Dal- víkur starfar af miklum þrótti og er starfsemi þess fjölbreytt. Haldin hafa verið skíðanám- skeið bæði fyrir byrjendur og lcngra komna. Fyrr í vetur var haldið 10 tíma byrjendanámskció fyrir 5 ára krakka og mættu 60 börn til leiks. Nú eru þcssir krakk- ar komnir á 10 tíma framhalds- námskeið. Þá eru um 60 krakkar úr 1.-4. bekk í stöðugri þjálfun og er það stór hluti af þessum árgöngum í skólanum. Þetta er skíðatölk framtíðarinnaren hópurinn grisjast cftir því sem ofar dregur í aldurs- stigann. Alls eru það um 100 krakkar sem þjálfa skíði reglulcga og er þaó dágóð prósenta af æsku- lýð bæjarins. Þá hafa verið í gangi byrjendanámskeið fyrir fulloróna. Nýlokió er námskeiði sem 16 manns tóku þátt í og nú cru 20 rnanns byrjaðir á öðru námskeiói. Þá hófust nú eftir hclgina leiðbcin- ingatímar fyrir gönguskíðafólk og eru þeir daglega kl. 18 fyrir þá sem áhuga hafa. Um síðustu helgi fékk félagið tvær heimsóknir, annars vegar komu 7-12 ára krakkar frá Húsavík og hins vegar krakkahópur frá Ak- ureyri 8 ára og yngri. Kepptu þau við jafnaldra sína á Dalvík í stór- svigi og í þrautabraut. Efnilegir skíðamenn Tvö af bikarmótum SKI voru hald- in fyrstu tvær helgarnar í mars í Böggvisstaðafjalli. Hið fyrra var í Sigurvegarar í stórsvigi 15-16 ára stúlkna, frá vinstri: Ása Bergsdóttir KR, Eva Bragadóttir Dalvík og Harpa D. Haeensdóttir KR. Sigurvegarar í stórsvigi 15-16 ára drengja, frá vinstri: Sveinn Bjarna- son Akureyri, Helgi Indriðason Dal- vík og Fjalar Úlfarsson Akureyri. flokkum 15-16 ára, karla- og kvennatJokki. Þar létu Dalvíkingar heldur betur til sín taka. I llokki stúlkna 15-16 ára sigraði Eva B. Bragadóttir í stórsvigi og hrcppti með því jafnframt silfurverðlaun í fullorðinsnokki. Helgi Indriðason sigraði með yfirburðum í stórsvigi pilta 15-16 ára og í sviginu varð hann í 3. sæti. Á síóara bikarmótinu í llokki 13-14 ára náói Sturla Már Bjarna- son bestum árangri Dalvíkinga og komst í fyrsta sæti í stórsvigi fyrri keppnisdaginn og þriðja sæti síðari daginn. Framundan eru Ileiri mót svo sem UMSE-mót og Firmakcppni en þar að auki taka dalvísk ung- menni þátt í ótal skíðamótum vítt og breitt um landið. Tveir Dalvíkingar, þeir Valur Traustason og Sveinn Brynjólfs- son voru valdir í 10 manna hóp til að keppa fyrir Islands hönd á heimsmeistaramóti unglinga í Bandaríkjunum nú fyrri part mars- mánaðar. Feróin gekk vel þó ekki hall þeir komið heini meó heims- meistaratitil en þarna eru á ferðinni skíóalandsliðsmenn framtíðarinnar cf heldur fram sem horfir. Þolanleg aðsókn Að sögn Jóhanns Bjarnasonar for- manns skíðafélagsins hcfur að- sóknin í skíóalyfturnar verið þol- anleg í vetur og ekki væri hægt að kvarta undan veðrinu eða snjó- leysi, þetta væri bcsti skíðavetur um langa hríö. Gestir frá ferða- málaráði heimsóttu Brekkuscl í lébrúár og létu afar vcl af öllum aðstæöum til skíðaiðkana. Annars hefur verió fátt um lengra að komna gesti. Nemendur úr Þela- mcrkurskóla komu í tveggja daga skíðaferð og gistu cina nótt í Brekkuseli en þar er pláss fyrir 40 manns í svefnpokum. Lyftan er opin frá 10-17 allar helgar en eitthvað skemur virka daga. Um páskadagana er stcfnt aö því að hafa opið kl. 10-17 og sjálfsagt verður fólki boóið upp á ferðir upp á topp aftan í troðaranum ef aðstæóur leyfa. Þá sagði Jóhann að stefnt væri að fjölskyldudegi á vegum skíóafélagsins í apríl en eftir væri að ákveða nánar dagsetningu og dagskrá. hjhj

x

Norðurslóð

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.