Norðurslóð - 29.03.1995, Blaðsíða 1
wmm
Svarfdælsk byggð & bær
19. árgangur Miðvikudagur 29. mars 1995 3. tölublað
Kostnaður við snjómokstur er þegar orðinn nokkuð meiri en áætlað var að verja til hans allt árið 1995. Mynd: þh
s
Ofærðarveturinn
Hér er verið að lesa af regnmælinum á Tjörn fyrir liálfum mánuði, en hann
stendur 145 sm upp úr jörð. Viku eftir að þessi mynd var tekin hatði hríðin
fært mælinn í kaf og gott betur því það voru 40 sm jafnfallinn snjór ofan á
mælinil. Mynd: KEH
Óhætt er að fullyrða það þessi
vetur sé einhver mesti ófærðar-
vetur sem komið hefur hér á
seinni árum og líklega slær hann
öll met. Snjór er líka með al-
mesta móti, alla vega á láglendi.
Það hefur t.d. aldrei áður gerst
síðan úrkomumælingar hófust á
Tjörn að úrkomumælirinn hatl
allur farið á kaf. En það gerðist
nú á dögunum og hefur liann
verið tvndur í nokkra daga á
meðan stöðugt bætir á snjóalög-
in. Það á þó að heita að hann
standi utan seilingar allra skatla
145 cm. upp úr jörðinni.
Þannig er því víðast hvar háttað
að kennileiti sem fólk hefur til að
ntiða snjódýptina við eru horfin
undir snjóbreiðuna og við flesta
bæi ná skaflar mun meiri hæð en
heimamenn hafa áður séð. Hins
vegar er snjórinn tiltölulega laus í
sér og ekki viðlit að menn konii sér
saman um hvort þetta sé mesti snjór
sem komið hefur í seinni tíð þó
blaðamanni sé nær að halda það.
I síðasta tölublaði Norðurslóðar
voru rakin nokkuð snjómoksturs-
mál í sveitinni sem þá voru langt
komin með að slá öll met.
Skemmst er frá því að segja að
síðan það var ritað hefur varla stytt
upp svo heitið geti og í þau örfáu
skipti sem menn hafa lagt í að
ryðja vegi (helst til að hægt væri að
sækja mjólk til bænda) hafa þeir
oftast verið orðnir ófærir aftur inn-
an sólahrings. Hálft í hvoru prísa
menn sig sæla í sveitinni fyrir það
að kennarar skulu vera í verkfalli
því skólahald hefði hvort eð er
raskast verulega og vafamál hvort
yngri bömin sem eru í daglegum
akstri hefðu fengið nema örfáa
kennsludaga þennan tíma síðan
verkfallið hófst. Þá má greina frá
því Svarfdælingum til hugarhægð-
ar að nú kostar Vegagerðin mokst-
ur tvisvar í viku á litla sveitar-
hringnum í stað einu sinni áður
eins og sagt var frá í síðasta blaði.
Reyndar hefur veðrið hamlað því
að við fengum þann reglubundna
mokstur en vissulega hlýtur þetta
að þýða mikinn sparnað fyrir sveit-
arfélagið.
Því er svo við þetta að bæta að
frá því þetta er ritað urðu nokkrar
breytingar til batnaðar. 19. mars
var komið kyrrt og bjart veður en
síðan snérist hann til sunnanáttar
með hlýindum í nokkra daga. Tók
þá upp gríðarlega mikinn snjó og
skaflar sigu saman. Fannbreiðan
Svarfdælabúð
10 ára
Síðastliðinn föstudag, þann 24. mars, var haldiö upp á það í
Svarfdælabúð að 10 ár voru liðin frá opnun hennar. Raunar var
afmælisdagurinn á sunnudeginuin 26. en af eðlilegunt ástæðum
þótti mönnum réttara að halda upp á daginn á opnunartíma
verslunarinnar. í tilefni dagsins var boöiö upp á 10% afslátt af
öllum vörum og einnig var viðskiptavinum boðið upp á kaffi,
Frissa fríska og risavaxna afmælistertu. Þá var boðið upp á lif-
andi tónlist sem Lúðrasveit Tónlistarskólans fiutti við góðar
undirtektir.
Þessa dagana standa yfir svokallaðir Norðlenskir dagar og
kynntu ýmsir norðlenskir framleiðendur vörur sínar á afmælisdag-
inn með sérstökum afslætti.
Það ntá rifja upp hcr að nýja verslunin þótti á sínum tíma mikil
bylting til framfara t verslunannálum hérá staðnuin og segir urn það
í 10 ára gamalli Norðurslóð:
„...ekki er að efa að Svarfdælir hafa mikinn áhuga á að þessi
verslun, svo glæsilega búin sem hún sýnist ætla að verða, komi til
með að hafa verulega breidd í vöruúrvali og að verðlag vcrði í lík-
ingu við það sent hagstæðast býðst á Akureyri".
Það er engu líkara en snjóbrettakappinn sé að renna sér niður Hæjarfjallið
þegar hann svífur um loftin blá. Mynd:-ÞH
^íý íþrótt: Snjóbretti
Islandsmót
haldið á Dalvík
Snjóbretti eru vinsælt leiktæki
um þessar mundir og um síöustu
helgi var haldið fyrsta óopinbera
Islandsmótið í keppni á þessunt
brettum. Fór það fram á Dalvík
og tókst með ágætum þótt veður-
guðirnir væru afar mislyndir unt
helgina.
Það var talsvert annar bragur á
keppendum og allri umgjörð um
þetta mót heldur en ríkti á hefð-
bundnu stórsvigsmóti sem fram fór
mikli
ununyndaðist í hjarnbreiðu svo
ekki þurfa menn að hafa áhyggjur
af því að sá snjór fjúki í skafla og
fylli djúpar traðir. Það tók snjó-
mokstursmenn marga daga að
hreinsa götur og þjóðvegi enda
snjórinn orðinn blautur og þungur
og svo mikið af honum.
Til marks um það hversu mikill
snjór hefur fallið hér á Dalvík má
nefna nokkrar tölur sent Svein-
björn Steingrímsson bæjartækni-
fræðingur tók saman fyrir blaðið. í
síðasta mokstri nú fyrir helgina var
ekið í sjóinn um 40.000 rúmmetr-
um af snjó, en það jafngildir hátt í
25.000 tonnum.
Og að sjálfsögðu hefur allur
þessi mokstur kostað sitl. Svein-
birni sýndist kostnaður við snjó-
mokstur vera kominn í uþb. sex
milljónir króna það sem af er ár-
inu. A fjárhagsáætlun ársins eru
5,5 milljónir króna settar í þennan
lið og því ljóst að liann fer töluvert
fram úr. Til fróðleiks má nefna að
hreinsun bæjarins tók stærstan
hluta síðustu viku og kostnaður við
hana var ekki undir 2 milljónum
króna.
Það þarf ekki að nefna það að
þessi mokstur tekur því sem raunin
var í fyrra langt fram. Allt árið
1994 var mokað snjó lýrir 3,6
milljónir króna. Það eru því allar
horfur á að sú upphæð verði tvöfalt
hærri í ár.
Og þegar þessi orð höfðu verið
á tölvuskjá fest gerði enn eitt skot-
ið á laugardag. Það stóð þó stutt og
bætti ekki teljandi við skaflana.
-ÞH/hjhj
í fjallinu sama dag. I stað glans-
galla sem eru eins og smurðir utan
á keppendur er klæðnaður snjó-
brettafólks víðar og rúmgóðar bux-
ur og síð og víð úlpa eða peysa.
Og meðan skíðakappar bruna
niður hlíðarnar í algerri þögn að
frátöldu hvissinu í skíðunum er há-
vær tónlist lykilatriði á hverju
snjóbrettamóti. Það var búið að
koma l'yrir hljómtækjum með til-
hcyrandi hátölurum í hlíðum
Böggvisstaðaljalls og úr þeim
glumdi hrátt rokk.
Þessi umgjörð ber uppruna
íþróttarinnar vitni. Hún er greini-
lega ættuð úr bandarískum stór-
borgum og hel'ur þróast upp úr
hjólabrettunum sem vinsæl eru þar
vestra. Þeim tilheyrir hávær tónlist
og klæðnaðurinn er ekki ósvipaður
þcim sem sást í fjallinu á sunnu-
daginn. Og málfar kynnisins dró
dám af þessum uppruna því hann
talaði ntjög enskuskotið mál og
hógværð er greinilega ekki eitt af
aðalsmerkjum snjóbrettakappa.
En hvað sem umgjörðinni líður
þá var það íþróttin sem laðaði
mannfjöldann að stökkpallinum
sem búið var að ýta upp í miðri
hlíðinni. Mörgum þótti hún æði
glæfraleg, en kapparnir renndu sér
niður brekkuna upp á pallinn og
tók svo fiugið. Sumir fóru heilan
hring í loftinu og gerðu ýmsar
kúnstir áður en þeir lentu. Urðu
nokkrar umræður unt að þetta hlyti
að vera hættulegt sport. en kepp-
endur gera lítið út slysahættunni
og segja hana hlutfallslega mun
minni en í hefðbundinni skíðaiðk-
un.
Það var ntál manna að þessi
ágæta keppni væri góð viðbót og
tilbreyting frá hefðbundnum skíða-
mótum. Mótið dró að sér hátt í
hundrað keppendur og aðra snjó-
brettaunnendur víða að af landinu.
Jón Ægir Jóhannsson sem stóð fyr-
ir skipulagningu mótsins af hálfu
heimamanna sagði að gestirnir
hefðu verið hæstánægðir með að-
stæður í fjallinu og að það væri
ekki spurning hvort þeir kærnu aft-
ur heldur hvenær. Hefur jafnvel
verið rætt um að gera Dalvík að
framtíðarstað l'yrir Islandsmót á
snjóbrettum.
-ÞH
Messur um bæna-
daga og páska
Skirdagur:
Vallakirkja: Messakl. 21
Föstudagurinn langi:
Dalvíkurkirkja: Kyrrðarstund
kl. 20.30
Páskadagur:
Dalvíkurkirkja:
Hátíðarmessa kl. 8
Urðarkirkja:
Hátíðarmessa kl. 13.30
Tjarnarkirkja: Hátíðannessa
kl. 16
Páskamessan á Dalbæ auglýst
síðar.
Sóknarprestur