Norðurslóð - 29.03.1995, Blaðsíða 6
TÍMAMÓT
Skírnir
12. febrúar var Þórður Elí skírður í Dalvíkurkirkju. Foreldrar hans
eru Guðrún Flulda Þorsteinsdóttir, Bárugötu 2, Dalvík, og Bergþór
Arnar Ottósson, Skútahrauni 4b, Reykjahlíð.
24. febrúar var Valþór Ingi skírður að Flólavegi 15, Dalvík. For-
eldrar hans eru Heiða Hilmarsdóttir (Daníelssonar) og Hilmar Þór
Valgarðsson, Brimnesbraut 5, Dalvík.
18. mars var Ingi Þór skírður að Lækjarstíg 5, Dalvík. Foreldrar
hans eru Guðný Gunnlaugsdóttir og Arngrímur Jónsson (Tryggva-
sonar), Lækjarstíg 5, Dalvík.
Sigurjón Jó-
hannsson, Hlíð,
varð 70 ára 28.
febrúar sl.
Björgvin Jóns-
son skipstjóri,
Dalvík, varð 85
ára 24. mars sl.
8. mars lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur-
eyri Agúst Bjarnason frá Grímsey.
Agúst fæddist 25. nóvember árið 1917 að
Kirkjubæ í Hróarstungum, sonur Júlíönu Krist-
mundsdóttur og Bjama Jónssonar. Er Agúst
var á fyrsta ári flutti hann með móður sinni til
Grímseyjar, þar sem hann varð eftir í fóstri
þegar móðir hans fór þaðan. 15 ára gamall fékk
hann heimili hjá hjónunum Jakobi Helgasyni
og Svanfríði Bjamadóttur og var æ síðan sem einn úr þeirri fjöl-
skyldu. Arið 1947 flutti hann með fjölskyldunni til Dalvíkur og
eftir að Jakob lést tók Guðrún fóstursystir hans að sér að annast um
Ágúst.
Ágúst fór á sjóinn ungur að árum og var á sjónum stærstan hluta
af sinni starfsævi. Var hann sjómaður al' Iífi og sál og fylgdist einn-
ig vel með því sem gerðist á sjónum eftir að hann kom í land.
Árið 1980 gekk Ágúst í hjónaband með Sigurást Kristjánsdóttur
og bjuggu þau á Dalvík en Sigurást lést árið 1984. Árið 1985 eign-
aðist Agúst heimili á Dalbæ, dvalarheimili aldraðra á Dalvík, og bjó
þar til æviloka.
Ágúst var jarðsunginn frá Dalvíkurkirkju 15. mars.
Guöjón Ingvar Elías Hjaltason, Skíðabraut
15, Dalvík, andaðist á FSA 8. mars sl.
Guðjón fæddist á Akranesi 14. desember
1921. Hann stundaði sjómennsku frá unga
aldri og var oftast á aflahæstu skipunum enda
vel liðinn af samstarfsmönnum sínum.
Guðjón gil'tist Soffíu Leifsdóttur frá Akra-
nesi og áttu þau saman einn son, Leif Rúnar,
sem nú býr í Borgarnesi ásamt konu sinni Al-
dísi Lárusdóttur. Þau eiga 4 börn. Sambýliskona Guðjóns síðustu
14 árin var Hildigunnur Kristinsdóttir, Dalvík, og áttu þau heima á
Skíðabraut 15.
Guðjón var jarðsettur frá Akraneskirkju 20. mars sl. Sóknar-
presturinn þar, sr. Björn Jónsson, jarðsetti.
Þann 28. febrúar sl. andaðist í Islendingabænum Gimli í Kanada
Petrína Þórunn Soffía Árnason á 99. aldursári sínu. Hún vardótt-
urdóttir Arngríms heitins Gíslasonar málara og konu hans, Þórunn-
ar Hjörleifsdóttur ljósmóður í Gullbringu.
Petrína giftist 1913 Guðjóni Ámason, Eyfirðingi að ætt, en hann
andaðist í Gimli fyrir fáum árum. Þau hjónin áttu tíu börn og eru sjö
enn á lífi í Gimli og nágrenni. Einn sona þeirra var Theodór Árna-
son. Ted, sem lengi var bæjarstjóri í Gimli.
Norðurslóð sendir samúðarkveðjur.
Afmæli
Sigurjón Sig-
urðsson, Læk,
Skíðadal, varð 70
ára 4. mars sl.
Guölaug Kristj-
ánsdóttir, Upp-
sölum, varð 75
ára 24. mars sl.
Páll Guölaugs-
son, Miðkoti,
Dalvík, varð 85
ára 27. mars sl.
Andlát
Norðurslóð
ámar heilla.
FRÉTTAHORNIÐ
Hér eru þeir Blikamenn Friðrik Gígja (tv.) og Matthías Jakobsson að um-
stafla þorskhausum eftir að snjórinn gerði usla í þurrkhjöllunum við Ytra-
Holt. Snjórinn sligaði fjölmargar sperrur sem þurfti að endurnýja. Hjallarn-
ir grófust allir í fönn og sagði Matthías að tjón fyrirtækisins af þessum völd-
um næmi einhverjum hundruðum þúsunda króna. Mynd:-ÞH
þar af var ekki hægt að athafna sig
nema 17, hinir fóru í brælu.
Rækjutogarinn Baldur hefur
verið seldur frá Dalvík og með
honum 1.130 þorskígildistonna
kvóti. Það var Snorri Snorrason
sem átti skipið en frá og með síð-
ustu helgi verður hann gerður út
frá Olafsfirði undir merkjum fyrir-
tækisins Sæbergs hf. Fimmtán
mánuðir liðu frá því skipið kom til
Dalvíkur þangað til það var selt og
á þeim tíma var það gert út á rækju
á Islandsmiðum og Flæmska hatt-
inum úti fyrir ströndum Kanada.
Að sögn Snorra er ástæðan fyrir
sölu skipsins sú að breytingar og
viðgerðir sem gera þurfti á skipinu
eftir að hann keypti það reyndust
mun tímafrekari og kostnaðarsam-
ari en ráð var fyrir gert. Hann seg-
ist ekki vita hvert framhaldið verði
hjá sér.
Margir hafa nokkrar áhyggjur
af atvinnuástandinu á Dalvík
um þessar mundir. í febrúar voru
að meðaltali 36 manns án atvinnu á
Dalvík og í Svarfaðardal, jafn-
margir og í janúar. Að undanförnu
hafa tækninýjungar í Frystihúsi
KEA og rækjuvinnslu Söltunarfé-
lagsins fækkað störfum um 20 og
með sölu Baldurs hverfa rúmlega
10 störf. Ekki verður séð hvemig
þessi störf verða bætt, en ýmislegt
er í deiglunni þótt ekki sé ljóst
hvað kemur út úr því.
Svo virðist sem aðeins einn Dal-
víkingur ætli að veiða grá-
sleppu í ár, en það er Reimar Þor-
leifsson. Hann lagði net sl.
fimmtudag og vitjaði þremur nótt-
um síðar og dró þá átján net. Afl-
inn var:
3 grásleppur
3 rauðmagar
2 selir
1 gaddaskata
1 svartfugl
1 krabbi
Eins og sést á þessari upptalningu
fór Rcimar nákvæmlega að lögum
sem segja að allur meðalli skuli
koma að landi.
✓
Agætlega gengur hjá togurum
ÚD um þessar mundir. Björg-
vin hefur verið gerður út á rækju
og aflinn unninn um borð. Fyrir
nokkru kom hann til Dalvíkur með
mesta afla sem skipið hefur komið
með úr einni veiðiferð eftir að
rækjuveiðarnar hófust. Þá komu
upp úr skipinu tæplega 169 tonn af
rækju, þar af helmingurinn iðnað-
arrækja, en afgangurinn Japans-
rækja og soðin rækja sem fer á
Evrópumarkað. Verðmæti þessa
ágæta farms er um 38 milljónir. En
það tók sinn tíma að ná þessum
afla. 24 daga var skipið úr höfn, en
B jörgúlfur hefur að mestu verið
á grálúðuveiðum undanfarið
og landað stærstum hluta aflans í
gáma. Hefur veiðin verið ágæt. Nú
er skipið á karfaveiðum og hefur
stefnan verið sett á Þýskaland, en
þar á skipið pantaða löndun í byrj-
un apríl.
Heiðar Sigur jónsson unglinga-
landsliðsmaður í knattspyrnu
sem verið hefur helsti markaskor-
ari meistaraflokks Dalvfkur undan-
farin sumur hefur nú gert samning
við Þrótt í Reykjavík og hyggst
leika með því félagi í 2. deild Is-
landsmótsins í sumar. Heiðarer 17
ára og mikið efni í knattspymu-
mann, enda hefur hann þegar leik-
ið 7 landsleiki og skorað 1 mark.
Aðsóknin framar
öllum vonum
- Rætt við Skarphéðin Pétursson forstöðumann
Sundlaugar Dalvíkur
Hálft ár er nú liðið frá því hin
glæsilega sundlaug Dalvíkinga
var tekin í gagnið og er forvitni-
legt að vita hvernig aðsóknin
hefur verið þessa fyrstu mánuði.
Blaðamaður Norðurslóðar brá
sér í sund og potta í sólskininu
s.l. föstudag og vissulega er
þarna einn inesti sælureitur hér
um slóðir.
Hjá forstöðumanni sundlaugar-
innar, Skarphéðni Péturssyni,
fengust eftirfarandi upplýsingar:
Frá vígsludegi 4. október og fram
til áramóta höfðu samtals 7.135
gestir sótt laugina, ca. 60% full-
orðnir og 40% börn. Að sögn
Skarphéðins verður að telja þetta
mjög ánægjulegar tölur og þróunin
væri enn ánægjulegri. Á þeim
köldu og næðingssömu mánuðum
janúar og febrúar komu 2.696 gest-
ir í laugina og með hækkandi sól
eykst aðsóknin enn.
„Núna undanfarna daga þegar
sólin hefur loksins látið sjá sig
hefur aðsóknin tekið kipp. Við
höfum verið með um og yfir 100
gesti á dag. Það má alveg sjá af
þessu að bæjarbúar kunna vel að
meta nýju sundlaugina sína. Hér er
að koma fólk sem hefur ekki kom-
ið í sund í mörg ár en er núna að
taka við sér. Þeir sem á annað borð
komast upp á bragðið mæta reglu-
lega upp frá því. Við áttum von á
Skarpháðinn Pétursson
að krakkarnir færu að koma í stór-
um stíl sérstaklega eftir að verk-
fallið skall á en það hefur ekki bor-
ið svo mikið á því. Það er þá einna
helst núna eftir að sólin byrjaði að
skína. Við hleyptum vatni á renni-
brautina í gær og fyrradag og hún
er vinsæl bæði af börnum og full-
orðnum. Eldra fólki fjölgar einnig
jafnt og þétt og ég á von á að sjá
meira af því þegar sól hækkar á
lofti. M.a.s. er fólkið úr sveitinni
búið að uppgötva laugina og er far-
ið að koma hér á góðum dögum.
Gufubaðið er gríðarlega vinsælt
hjá okkur og sömuleiðis sólar-
lampinn, hann er alveg fullbókað-
ur nú um helgina,“ segir Skarphéð-
inn.
Búið er að lengja opnunartíma
laugarinnar um helgar til að koma
til móts við þarfir sundunnenda.
Einkum er þá verið að stíla upp á
að skíðafólk geti að afloknum góð-
um skíðadegi í fjallinu látið líða úr
sér í heita vatninu. Opnunartíminn
er því núna 10-17 laugardaga og
sunnudaga og 7-20 á virkum dög-
um með hléi frá 14-16. Að sögn
Skarphéðins er það 6-10 manna
hópur sem alltaf mætir kl. 7 á
morgnana en mest sé aðsóknin eft-
ir kl. 16 á daginn.
„Svo stílum við náttúrulega upp
á að ná til okkar túristunum þegar
líður fram á sumar. Það þarf vitan-
lega að kynna þetta. Það er nú í
smíðum auglýsingabæklingur sem
Iátinn verður liggja frammi á
helstu viðkomustöðum túrista.
Einnig vorum við með í auglýs-
ingu um skíðasvæðið sem send var
í skóla nú í vetur“.
Það er óhætt að mæla með því
að menn bregði sér í sund á kom-
andi góðviðrisdögum og þá er ekki
síður amalegt að setjast með kaffi-
bolla og kleinu eða rúnstykki upp í
glertuminn á eftir og njóta hinnar
stórbrotnu svarfdælsku fjallasýnar.
Er nokkursstaðar á landinu til-
komumeira kaffihús? Perlan í
Reykjavík? Nei varla?
hjhj