Norðurslóð - 30.06.1995, Blaðsíða 4
4 — NORÐURSLOÐ
fþróttapistill
Meistaraflokkunum gengur vel í deildinni
Almenningsíþróttir í sókn - Tugir þátttakenda í Jónsmessuhlaupi
Norðurslóð hefur ráðið sér
íþróttafréttaritara á Dalvík. Sá
heitir Guðmundur HJónssonog
mun hann sjá um reglulega
íþróttapistla í sumar og jafnvel
lengur. Hér kemur fyrsta vers:
Þá er boltinn farinn að rúlla á
fullri ferð og skokkarar búnir að
draga fram hlaupaskóna. Sem sagt
íþróttir eru l'lestar komnar vel af
stað. Við byrjum yfirlitið á knatt-
spymu.
Meistaraflokkur karla mætir
sterkur til leiks með nýjan þjálfara,
Bjarna Sveinbjömsson, fyrrunt að-
almarkaskorara Þórsara á Akur-
eyri. Bjarni leikur líka með liðinu
og er þegar byrjaður að skora fyrir
Dalvík. Tveir aðrir leikmenn hafa
bæst í hópinn frá síðasta ári, Grétar
Steindórsson, miðvallarspilari frá
Breiðablik í Kópavogi, og Atli
Már Rúnarsson, markvörður sem
kemur frá Akureyri. Grétar hefur
reyndar verið meiddur í síðustu
leikjum en Atli hefur spilað alla
leiki og leikið vel.
Byrjunin hjá meistaraflokknum
er mjög góð og í dag er liðið eina
taplausa liðið í 3. deildinni. Hins-
vegar steytti Dalvík enn einu sinni
á skeri í bikarkeppni K.S.Í og tap-
aði fyrir Magna frá Grenivík eftir
vítaspyrnukeppni, en Dalvíkingar
voru miklu betri í leiknum sjálfum
en tókst ekki að skora.
Meistaraflokkur kvenna leikur í
2. deild og mætir með mikið breytt
lið. Allar stúlkurnar frá Akureyri
sem voru með á síðasta ári eru
farnar og nokkrar eldri og reyndari
stúlkurnar eru hættar þannig að
liðið í dag er að mestu leyti skipað
ungum stúlkum. Þjálfari liðsins er
Kristján Sigurðsson frá Brautar-
hóli í Svarfaðardal. Það er sömu
sögu að segja af meistaraflokki
kvenna og karla. Þær hafa byrjað
mjög vel í deild en duttu strax út í
bikamum.
Leikir meistaraflokks kvenna:
Dalvík - Leiftur 2-1
Dalvík - K.S. 1-0
Bikarkeppni:
Dalvík - Leiftur Ólafsfirði I -3
3 næstu leikir hjá stelpunum eru
útileikir þannig að næsti heima-
leikur er ekki fyrr en þriðjudaginn
25. júlí.
Leikir í yngri flokkum hafa riðlast
nokkuð vegna slæmrar tíðar og lé-
legra vallaraðstæðna en eftir að
snjó tók upp hefur vatn legið á
vallarsvæðinu og þá sérstaklega
hlaupabrautinni.
Úrslit yngri fl.
3. 11. karla
Dalvík/Leiftur - Tindastóll 1-4
Þór Ak. - Dalvík/Leiftur 2-1
4. fl. kvenna
Dalvtk - Leiftur 14-1
Dalvík - KA 3-0
Dalvík b-lið - KA b-lið 2-2
Skriðulækur
Framhald afbls. 2
tíunda ári. Ég var staddur suður á
svo nefndum Steinhól spölkorn frá
heimili mínu og aðeins steinsnar
norðan við Skriðulækinn. Allmik-
ill snjór var í Skriðugilinu upp og
niður fjallið þótt komið væri fram
yfir mánaðamót júní-júlí og því
meir sem ofar dró í fjallið. Sá ég
strax þegar vatnsflaumurinn braust
fram úr gilinu efst í brúninni og sá
hvernig hann sprengdi snjóskafl-
ana og bylti þeim með sér niður
gilið og því æðislegar eftir því sem
neðar dró. Oft stóð vatnsflaumur-
inn eins og gos upp úr snjósköflun-
um er þeir sprungu í sundur hátt í
loft upp, bylti þeim síðan með sér
niður gilið. Vatnsflaumurinn æddi
með ógnarhraða ýmist undir eða
ofan á snjósköllunum og sprengdi
og reif með sér stór snjóstykki og
næstum fyllti gilið. Og fyrr en
varði var flóðbylgjan komin ofan á
móts við þar sem ég stóð á Stein-
hólnum og horfði stjarfur á þessar
hamfarir. Var fyrsta flóðbylgjan
fyrirferðarmest þar sem hún flutti
með sér óhemju af snjó og snjó-
hrannirnar hlóðust upp á gilbarm-
ana beggja vegna lækjarins alla
leið niður á flatlendi.
Björgunarstarf
Var það nú mjög jafn snemma að
fólkið frá réttinni á Ytra-Hvarfi
kom út að læknum að fyrsta flóð-
bylgjan æddi hjá. En um það bil í
brekkunni sem tún byrjuðu þraut
dýpsta gilið sem lækurinn rann í og
átti hann nú auðveldara með að
breiða úr sér enda fór hann fljót-
lega að halla sér mjög suður úr far-
veginum. Flæddi hann nú af mikl-
um krafti suður og niður og stefndi
á Skriðukotsbæinn sem stóð
skammt sunnan við lækinn. Bar
hann strax með sér allmikið af aur
og grjóti á Skriðukotstúnið norð-
5. fl. karla
Dalvík - Tindastóll 2-1
Dalvík b-lið - Tindastóll b-lið 6-0
Skipulagðar æfingar í frjálsum
íþróttum eru nýlega hafnar á
vegum U.M.F.S. Þjálfari er Jón
Sævar Þórðarson og verða æfingar
kl. 18 á mánudögum og miðviku-
dögum í sumar. Einnig hefur Jó-
Itann Bjamason þjálfað krakkana
12 ára og yngri. Þær æfingar verða
kl. 18 á mánudögum og fimmtu-
anvert en ekki var bærinn þó f
verulegri hættu ennþá. Fór nú
mannskapurinn sunnan við lækinn
og náði í hurðir og fleka sem til-
tækir voru úr útihúsum og jafnvel
úr bænum. Stóð fólkið svo í lækn-
um með hurðirnar og reyndi að
beina rennsli hans þannig að hætta
minnkaði á að hann flæddi meira
en orðið var yfir túnið og mun það
hafa tekist að mestu leyti. Ymist
hækkaði eða lækkaði lækjarfar-
vegurinn norðan við þar sem fólk-
ið stóð. Stundum gróf lækurinn
djúpt gil niður en fyllli það svo að
segja strax aftur og þannig stóð á
skrefi, að hlaupinu loknu, að þarna
var alldjúpt gil. Ofært var með öllu
yfir lækinn á meðan á hlaupinu
stóð fyrr en niður á jafnsléttu en
þar var farið yfir hann á hestum.
Hávaðinn í læknum var gífurlegur
svo næstum var ógerningur að tala
saman í námunda hans. Grjótkast
var mjög mikið og sáust oft stórir
steinar fljúga í loft upp langar leið-
ir. Allmikið af leir og grjóti bar
Skriðulækurinn með sér í þessu
hlaupi yfir slægjulönd beggja meg-
in lækjarins, sum hafa verið óhæf
til slægna síðan, en það sem hann
bar yfir mýrarnar niður á flatanum
gréri fljótt yfir og það sökk ofan í
mýrina og ef grafið er í hana nú
kemur í ljós allþykkt malarlag og
er það örugglega frá jressu hlaupi.
Er líða tók á daginn fór mjög að
draga úr hlaupinu og lauk því að
mestu fyrir kvöldið. Þótt mann-
skapurinn sem stóð í ströngu við
lækinn lengi dags væri nokkuð
þreyttur orðinn snéri hann eftir
kaffihressingu og smáhvíld að rún-
ingnum aftur og var honum ekki
lokið fyrr en langt var liðið á nótt.
23. september 1946
Að morgni Itins 23. september
1946 urðu menn þess varir að all-
mikil skriða hafði hlaupið um nótt-
ina úr fjallinu sunnan skriðulækj-
arins ofarlega. Hafði hún fallið all-
langt beint niður og rifið með sér
dögum aðra vikuna en 10.30 á
sömu dögum hina vikuna.
Þá hefur verið mikill kraftur í
hópi fólks sem stundar líkamsrækt
undir stjórn Ólafs Óskarssonar
íþróttakennara. Þessir tímar eru á
mánudögum, miðvikudögum og
föstudögum kl. 18 og er mæting
sérstaklega góð. Til marks um
áhugann þá var hlaupið Jóns-
messuhlaup laugardagskvöldið
24/6 og voru þátttakendur yfir 30.
Hlaupnar voru mismunandi vega-
fyrn af jarðvegi og grjóti en jaðar
hennar að sunnan var víða á annan
metra á hæð. Síðan hafði hún
steypst norður í Skriðugilið og
myndað þar stíflu í gilinu. Mikið
vatn var í Skriðulæknum því
óhemju norðan vatnsveður hafði
geysað allan daginn áður og fram á
nótt og voru lækir í foráttu og jörð
öll mjög gegnsósa af vatni. Stíflan
í læknunt hefur síðan brostið og
skriðan bylst niður gilið. Engir
sjónarvottar voru að þessu hlaupi
þar sem flestir munu hafa verið í
fasta svefni þegar það fór hjá.
Móðir mín sem vakað hafði um
stund unt nóttina hafði þó orð á því
að hún hefði heyrt drunur miklar.
En um morguninn blöstu vegsum-
merkin við - miklar stórgrýtis-
hrannir voru á bökkum lækjarins,
sérstaklega neðan við þar sent
klettagilinu lýkur í hlíðinni og eru
sumir steinamir fyrnastórir. í þessu
hlaupi hækkaði neðsti fossinn í
skriðugilinu um rúman metra -
lækurinn gróf sig þetta niður í urð-
ina og bergið neðan við fossinn.
Ekki olli hlaup þetta tjóni á landi
eða mannvirkjum.
31. maí 1987
Laugardaginn 31 maí 1987 kom
ntikið hlaup í Skriðulækinn. Mun
það hafa byrjað um kl.7.00 þennan
morgun og stóð það nokkuð fram
yfir hádegi. Þennan laugardags-
morgun veitti ég því athygli þegar
ég kom á fætur laust fyrir kl. 8.00 á
Skeggstöðum að síkið hér fyrir
neðan var orðið mjög mikið og
mórautt og gat ég ekki áttað mig
hverju þetta gegndi þar sem Skíða-
dalsáin var fremur lítil og ekki
trúlegt að hún hefði tekið upp á því
að brjóta sér leið út í gamla farveg-
inn. En þetta kont tljótlega í ljós
þegar ég fór suður í Hofsárkot eins
og venja mín var um þetta leyti
dagsins. Sá ég þá fljótlega hvers
kyns var og flýtti mér strax suður
að læknum. Gaf þá heldur á að líta.
Var stórfenglegt að sjá hvernig
lengdir, lengst 10 km en styst 3 km
og komust allir heilir á leiðarenda
með bros á vör.
Þá er ógetið um sundiðkun Dal-
víkinga og nágranna en aðsókn
hefur verið mjög góð að nýju laug-
inni og almenn ánægja ríkt með
við hina frábæru aðstöðu sem við
hljótum öll að vera stolt af. Ástæða
er til að hvetja fólk til að athuga
hvort ekki finnst eitthvað í þessari
íþróttaflóru sem því hentar og drífa
sig af stað. Guðm. H. Jónsson
kolmórauður vatnsflaumurinn
steyptist stall af stalli niður gilið.
Það mátti næstum segja að vatnið
hafi fremur oltið niður gilið heldur
en að það rynni. Svo þykkt var það
af leir, sandi og grjóti. Snjóhrannir
voru víða eftir á lækjarbökkunum
því snjór var enn víða í Skriðugil-
inu. Fylgdist ég um nokkurn tíma
nteð hamförum vatnsins hvernig
það reif eða gróf með feiknahraða
djúp gil á einum stað og fyllti aftur
upp gil sem hann var nýbúinn að
grafa á öðrum stað. Þegar hlaupinu
lauk skildi það sums staðar eftir
hátt í tveggja metra háa bakka við
lækinn. Annarsstaðar var slétt yfir
lækinn þar sem verið hafði alldjúpt
gil áður. Þegar ég nú stóð og horfði
á þetta hlaup rifjaðist upp fyrir mér
hlaupið 1919 sem ég hef getið um
hér að framan og fann ég nú og
vissi að mig hafði ekki misminnt
um neitt frá þeim tíma þótt liðin
hafi verið tæp sjötíu ár. Svo hafði
þessi minning greypst í hug minn.
Mér fannst þó að h laupið 1919 hafi
verið allmikið meira en þetta því
þá bar lækurinn mikið grjót og aur
yfír hluta af Skriðukotstúninu sem
sér mjög fyrir ennþá. Einnig bar
hann mikið grjót út og ofan á Hofs-
árkotsmýramar og skemmdi þar
slægjulönd. Hvorugt þetta gerðist í
þessu hlaupi 1987.
Mörgum smærri hlaupum en
þeim sem hér hefir verið getið um
man ég eftir en þau hafa ekki
valdið umtalsverðu tjóni eða eru
frásagnarverð að neinu leyti.
Sigvaldi lýkur frásögn sinni í
nœsta blaði.
Dalvík
Félagsmála-
stj'óri ráðinn
Nýr félagsmálastjóri hefur verið
ráðinn til Dalvíkur. Sá heitir
Halldór Sig. Guðmundsson. Var
hann valinn úr hópi níu umsækj-
enda. Halldór er Dalvíkingum að
góðu kunnur þar sem hann starfaði
áður sem forstjóri Dalbæjar en
hefur nú dvalið unt stund í Noregi
við nám. Halldór tekur til starfa
þann 1. ágúst næstkomandi.
* Frá Sparisjóðnum
Um breyttan opnunartíma
Frá og með 1. júlí verður Sparisjóðurinn á Dalvík
opinn í hádeginu mánudag til föstudags.
Sparisjóðurinn sendir kveðjur og óskir um betri tíð
með blóm í haga, sæta langa sumardaga.
Sparisjóður Svarfdæla
Dalvílc Hrísey Árskógi
s. 61600 s. 61880 s. 61785
Þakka alhugað
öllum sem
glöddu mig á
einn eða
annan hátt á
sjötugsafmæli
mínu.
Guð borgar
fyrir hrafninn.
Friðjón
Kristinsson