Norðurslóð - 30.06.1995, Page 5
NORÐURSLÓÐ —5
MÁ ÉG KYNNA?
Sigríði
Sigurðardóttur
leikskólastjóra
„Helga hringdi og ég
ákvað að slá til“
Eins og kunnugt er hafa nýir aðilar
tekið við rekstri leikskólans Fagra-
hvamms á Dalvík. Það eru þær
stöllur Helga Snorradóttir og Sig-
ríður Sigurðardóttir og tóku þær
við rekstrinum þann 1. júní s.l.
Helga er heimamaður, borin og
bamfædd á Dalvík, alin upp í
sveitinni og er nú aftur komin til
Dalvíkur og sest að í Reykholti.
húsi afa síns og ömmu, eftir langa
fjarveru með viðkomu í Reykja-
vík, Skagafirði og Ólafsfirði. Sig-
ríður er aftur á móti nýtt andlit á
svæðinu og eins og lesendur
þekkja er fátt betur fallið til að
vekja forvitni Norðurslóðar en
þegar nýtt fólk sest í hin og þessi
ábyrgðarstörf í bænum. Blaðamað-
ur fór þvf á stúfana og bað Sigríði
að segja nokkur deili á sjálfri sér.
Ég er fædd á Akureyri 1959.
Foreldrar mínir voru Marsilía Sig-
urðardóttir og Sigurður Oddsson
frá Glerá, þau eru bæði látin. Ég er
yngst fjögurra systkina og ólst upp
á Glerá fyrstu 6 æviárin en þá flutti
fjölskyldan inn í bæinn. Til
Reykjavíkur flutti ég 1981, fór í
Fósturskólann og útskrifaðist það-
an 1984. Árið 1991 kláraði ég
stjórnunarnám frá Fósturskólanum
og næsta vor lýk ég prófi frá Kenn-
araháskólanum í gegnum fjarnám.
1988-91 var ég með einkarekinn
leikskóla, Höfn hf., að Marargötu
Dagbjört Asgrímsdóttir
Fædd 8. mars 1906 - Dáin 31. maí 1995
Einn af elstu borgurum Dalvíkur
var jarðsungin frá Dalvikur kirkju
þann 10. júní sl. Það var Dagbjört
Ásgrímsdóttir, sem hin síðari árin
var jafnan kennd við Lambhaga á
Dalvík.
Dagbjört fæddist á smábýlinu
Vatni f Haganesvíh. Þar í plássinu
ólst hún upp að mestu hjá foreldr-
urn sínum, síðast á býlinu Dæli.
Foreldrar hennar voru hjónin Sig-
urlaug Sigurðardóttir og Ásgrímur
Sigurðsson srniður og bóndi í Dæli
í Fljótum.
Dagbjört dreif sig í það þrátt
fyrir lítil efni, að ganga í Kennara-
skólann í Reykjavík og þaðan
brautskráðist hún með heiðri vorið
1933. Það sama vor hóf hún bú-
skap á Grund með unnusta sínum
og síðar eiginmanni Stefáni
Björnssyni, bóndasyni frá Atla-
stöðum.
Árið 1960 brugðu þau búi á
Grund og fluttu til Dalvíkur í húsið
Lambhaga, setn þau voru síðan
jafnan kennd við.
Dagbjört Ásgrímsdóttir hafði
gilt og gott kennarapróf upp á vas-
ann. Samt neytti hún þess aðeins
sáralítið um dagana. Það gerðu
lífsaðstæður hennar: barneignir,
uppeldi og heimilishald langa ævi.
Samt var ég undirritaður svo hepp-
inn að njóta kennslu hennar einn
vetrarpart 1934-35. Hreppurinn
kom á svolitlu unglinganámskeiði,
sem kallað var og stóð um mán-
aðartíma.
Við nemendurnir vorum urn 20.
Eg veit ekki hvort þetta námskeið
var frumraun Dagbjartar í kennslu,
býst varla við því samt. en víst er,
að hún stóðst það með prýði og
skilaði okkur heim til foreldra okk-
ar og heimila fróðara og víðsýnna
fólki en hún tók við.
Ég á ennþá prófskírleinið, und-
irritað af Dagbjörtu og prófdómara
Helga Símonarsyni á Þverá.
Svo líður tíminn. „I dag mér á
morgun þér“ segir máltækið. Helgi
lifir enn í hárri elli heima á þverá,
Dagbjört kennari hvílir í Dalvík-
urkirkjugarði. Og undirritaður
höktir á eftir og nálgast óðuni
endamarkið.
Ég votta aðstandendum Dag-
bjartar í Lambhaga virðingu og
samúð. Aðstandendur Norðuslóðar
þakka henni ágæta samvinnu.
Hjörtur E. Þórarinsson
•j
Dalborgin EA317 (áöur Ottar Birting) í sinni nvju heimahöfn.
Snorri Snorrason, útgerðarmaður:
Dalborg EA 317 til veiða á
Flæmska hattinum
(Mynd: Ó.Á.)
Snorri Snorrason útgerðarmað-
ur á Dalvík hefur keypt togar-
ann Ottar Birting sem hatði sína
bækistöð á Fáskrúðsfirði. Tog-
arinn kom til háfnar á Dalvík 17.
júní sl. og hélt síðan til veiða á
miðvikudag. Áður en skipið hélt
á veiðar hafði það verið málað
blátt á lit og á það komið nýtt
nafn og einkennisstafir Dalborg
EA317. I hugum margra er
skipsnafnið Dalborg nátengt
nafni Snorra Snorrasonar enda
var liann skipstjóri á gömlu Dal-
borg EA317 í 14 ár eða svo. Svo
öllu sé til skila haldið er þetta
þriðja skipið á Dalvík sem ber
Dalborgarnafnið. Fyrst bar 70
tonna bátur sem Söltunarfélag
Dalvíkur h/f keypti 1975 þetta
nafn en aðcins í um eitt ár þang-
að til togarinn Dalborg kom.
Ottar Birting kom talsvert við
sögu í Smugudeilunni í fyrra.
Hann var tekinn fyrir meint land-
helgisbrot og fluttur til hafnar um
leið og Björgúlfur og mál þessara
skipa voru samferða í kerfinu í
Noregi á síðastliðnu ári. Norður-
slóð flutti nokkuð nákvæmar fréttir
í fyrra af gangi stríðsins þarna
norðurfrá og reyndi að tíunda það
þegar Dalvíkingar komu þar við
sögu. Það var ótrúlega oft sem
þessi stríðsrekstur tendist málum
hér, Bliki EA, Björgúlfur EA, að
ógleymdum Tona á Hrísum. Það
var hins vegar ekki hægt að tengja
Ottar Birting við staðinn. Nú hefur
Snorri Snorrason sem sagt bjargað
því með því að kaupa skipið.
Skipið var upphaflega byggt
1968 og þá fyrir Norðmenn. Síðan
hefur það nokkrum sinnum verið
endurbyggt. Það siglir undir ís-
lenskum fána en hefur ekki veiði-
leyfi í íslenskri landhelgi. Dalborg
EA fór til rækjuveiða á Flæmska
hattinn og er Snorri Snorrasson
yngri skipstjóri á skipinu og yfir-
vélstjóri er Sigurður Guðmunds-
son.
J.A.
Sigríður (th.) og Helga. Þær stöllur eru ekki eins hávaxnar og myndin gefur
tilefni til að ætla.
6 í Reykjavík. Ég seldi minn hlut í
þeim rekstri ‘91. Ég ætlaði reyndar
aftur að konta á fót einkareknum
leikskóla í borginni en af ýmsum
ástæðum gekk illa að finna
heppilegt húsnæði.
Hvernig stóð svo á því að þú
komst hingað?
Ja, ég sá þetta auglýst en svo
var það Helga vinkona mín sent
hringdi og vildi endilega að við
tækjum að okkur þennan rekstur
saman. Þá ákvað ég bara að slá til
og prófa eitthvað nýtt.
Hvernig kanntu svo við þig?
Mjög vel. Það mætti samt vera
hlýrra. En foreldrar og böm hafa
tekið ntér hlýlega. Það kom mér
reyndar á óvart hvað nýr aðili í
bænum vekur mikla eftirtekt en
svona er þetta sjálfsagt alls staðar.
Hvað reksturinn varðar er hann
ósköp svipaður því sem ég þekki.
Hér er pláss fyrir 25 börn í heils-
dagsvist sem er nokkuð minna en á
Marargötunni. Byrjunarerfiðleik-
arnir voru einkum fólgnir í því að
læra nöfnin á börnunum og komast
til botns í hver væri á hvaða tíma.
Eru fyrirhugaðar einhverjar
breytingar á rekstrinum?
Nei, ekki stórvægilegar, kann-
ski einhverjar áherslubreytingar
með haustinu. Við sjáum reyndar
líka um reksturinn á gæsluvellin-
um og nýtum það pláss fyrir leik-
skólakrakkana, það er breyting frá
því sem verið hefur.
Hver eru svo þín helstu áhuga-
mál utan vinnutímans?
Það eru t.d. stangveiði, golf,
skokk, líkamsrækt og lestur góðra
bóka.
Sigríður er einstæð móðir
tveggja stráka; Hauks 10 ára og
Ivars 8 ára og við spyrjum að lok-
um hvort fjölskyldan sé búin að
linna sér húsnæði í bænunt.
- Sem stendur bý ég í Reykholti
hjá Helgu og við hjálpumst að með
krakkasúpuna en ég hef vakandi
auga fyrir nýju húsnæði, sagði
Sigríður að lokum.
Norðurslóð þakkar fyrir spjallið og
býður Sigríði velkomna til starfa á
Dalvík. "
l'jhj
Frá
Dalvíkurbæ
Tilboð óskast í Mitsubishi rúgbrauð L 300, árgerð
1982.
Nánari upplýsingar hjá tæknideild Dalvíkurbæjar.
Söluskálinn
Dröfn
Dalvík
Esso og Shell
bensín og olíur
Margskonar ferðavörur
Pylsur - Hamborgarar
ís - Sælgæti - Gosdrykkir
Mólk og ýmsar matvörur
Líttu innr
alltaf heitt á könnunni!
Símar: 466 1236 - 466 1868
Fax: 466 3178