Norðurslóð - 28.01.2004, Síða 3

Norðurslóð - 28.01.2004, Síða 3
Norðurslóð - 3 og heldur einkum utanum kennsl- una á Dalvík en Þórarinn í daln- um. Hvert barn sem orðið er fullra 14 ára á að hafa Iært...! í 2. gr. laganna um fræðslu barna frá 1907 segir „Hvert barn sem er fullra 14 ára á að hafa lært...“ og síðan er það talið upp, fyrst „að lesa móðurmálið skýrt og áheyrilega." Þegar fræðslunefnd kemur saman 19. okt. 1912 hafði henni borist þremur dögum fyrr bréf frá ekkju á Dalvík sem kvartar undan því að börn henn- ar tvö, drengur og stúlka, séu nú orðin 14 ára gömul án þess að hafa náð því fræðslutakmarki sem fræðslulög ákveði. Hún skorar því á fræðslunefndina að hún sjái börnunum fyrir full- nægjandi fræðslu næsta vetur á þann hátt sem hún álítur heppi- legastan. Hún segist vænta þess að nefndin svari þessari mála- leitan hið allra fyrsta „en verði henni ekki sinnl neyðist ég til að snúa mér til æðri staða.“ Nefndin bókar vegna þessa: „Þar sem börn þessi hafa áður fengið nokkra tilsögn, bæði á farskóla héraðsins og með heima- kennslu, og þó svo sem ekkert á veg komin í þeirri grein, álítur nefndin heppilegast að útvega börnum þessum sérstaka kennslu og þannig gjöra tilraun til að kenna þeim lestur, skrift og ef kostur væri á með kristindóms- fræðslu á einhvern hátt í 2 eða 3 mánuði á næsta vetri.“ Því næst felur nefndin formanni sínum að finna kennara fyrir börnin „og skal hann haga sér í máli þessu eins og honum þykir bezt við eiga.“ Ekkjunni og vinkonu hennar sem skrifar fyrir hana bréfin finnst hægt ganga og einhver misski I n i ngur verður, því í árslok fær fræðslunefndin bréf frá Jóni Þórarinssyni, umsjónarmanni l'ræðslumálanna í landinu öllu, þar sem hann biður um umsögn nefndarinnar vegna málsins. 1 lok janúar sendir nefndin frá sér sína umsögn. Þar kemur m.a. fram að nefndin hafði munnlega gert móðurinni grein fyrir þeim ráðstöfunum sem hún hugðist grípa til vegna fræðslu barna hennar sem voru eins og áður segir sérstök kennsla í allt að 12 vikur og var þá kennsla stúlk- unnar hafin. Nefndin segist ekki hafa getað lofað fullnægjandi fræðslu þar sem henni hafi verið kunnugt um gáfnaskort barn- anna. Það kemur fram að 6 vik- um eftir að kennsla drengsins hófst og 8 vikum eftir að kennsla stúlkunnar hófst hafi „stúlka á Akureyri" kært nefndina fyrir vanrækslu og ber henni á brýn að börnin hafi ekkert lært. Nefndin vísar því á bug að hún „hafi ekkert fyrir börnin gert“. Niðurstaða nefndarinnar er að fullreynt sé að börnunum verði kennt það sem lög um fræðslu barna frá 22. nóv. 1907 mæla fyrir og verði þau því að falla undir síðari hluta 18. gr. nefndra laga, en þar segir: „Undanskilin fyrirmælum þessarar greinar og fyrirmælum næstu greinar þar á undan eru þau börn, er skóla- nefnd eða fræðslunefnd dæmir óhæf til hins lögboðna náms sak- ir gáfnaskorts eða vanheilsu.“ Með þessu bréfi til umsjónar- manns fræðslumála sendir nefnd- in 7 fylgiskjöl sem eru vottorð kennara og sóknarpresta um námsgetu barnanna. Þetta mál er merkilegt fyrir þá sök að það leiðir í ljós þá staðreynd að þeir foreldrar voru til sem töldu að börn þeirra ættu rétt til fræðslunnar þannig að þau stæðust kröfur laganna. 17. gr. laganna fjallar um hvað skuli gera ef barn sem er yngra en 14 ára reynist „svo vankunnandi að sterkar líkur sjeu til, að það nái eigi lögskipaðri kunnáttu, áður en það er 14 ára fullra, ber skóla- Farskólinn á Dalvík 1920-1921 Fremsta röð, sitjandi frá vinstri: Anna Jóhannesdóttir, Ingibjörg Stefánsdóttir, Sigrún Júlíusdóttir, Þórunn Þorsteinsdóttir, Sóley Gunnlaugsdóttir, Sigríður Líndals, Hólmfríður Magnúsdóttir, Pétur Baldvinsson, Egill Júlíusson. Önnur röð frá vinstri: Rósa Sigurðardóttir, Mói, Elín Sigurðardóttir, Barði, Fanney Jóhannsdóttir, Baldvin Loftsson, Ingunn Sigurjónsdóttir, Maríanna Halldórsdóttir, Loftur Jónsson, Anna Gunnlaugsdóttir, Jóna Kristjánsdóttir, Uppsölum, Rósa Sigurðardóttir, Guðjón Sigurðsson, Arngrímur Jónsson. Þriðja röð frá vinstri: Tryggvi Kristinsson, kennari, Unnur Tryggvadóttir, Helga Jóhannsdóttir, Hólmfríður Þorsteinsdóttir, Hildigunnur Þorsteins- dóttir, Unnur Sigurðardóttir, Snjólaug Símonardóttir, Agnar Magnússon, Anton Sigurjónsson, Hulda Vigfúsdóttir, Kristján Kristjánsson, Sigvaldi Jónsson, sr. Stefán B Kristinsson. Fjórða röð frá vinstri: Jóhann Þorleifsson, Björgvin Jónsson, Jóna Frans, Kristján Sigurðsson, Rósa Þorsteinsdóttir, Ingunn Angantýsdóttir, Lov- ísa Loftsdóttir, Gunnar Hallgrímsson, Gunnar Jónsson, Adolf Ágústsson, Jósep Vigfússon, Finnur Sigurjónsson, Stefán Hallgrímsson. Haustið 1913 hefst kennsla íþinghúsinu á Grundsem þá er orðið mið- punktur kennslu I dalnum. Það erfyrsta húsnæði sem hreppurinn á og notað er til kennslu. nefnd eða fræðslunefnd að gjöra ráðstafanir til að lögð sje við það meiri rækt en áður og má hún ef nauðsyn ber til kaupa því sjer- staka kennslu á kostnað þess er barnið hefur til framfærslu ...“ Móðir barnanna þáði sveitar- styrk þannig að kostnaður af hinni sérstöku kennslu féll á hreppinn. En þessi frásögn sýnir líka baráttu móður sem sjálf er ólæs og óskrifandi, fyrir mennt- un barna sinna og hún sýnir einnig að fræðslunefndin reynir að bregðast við en úrræði voru ekki mörg. Hinn 28. febrúar 1913 skrifar Jón Þórarinsson, fræðslumála- stjóri fræðslunefndinni. Hann hefur þá móttekið bréf hennar og sér ekki ástæðu til að taka kæruna til greina að neinu leyti. Þannig virðist þessu máli ljúka. Fleiri mál þarf að leysa Sú skýrsla sem Stefán Kristinsson gefur á hverju vori er jafnan um getu barnanna og framfarir og um kennsluhúsnæðið og hvað þar megi betur fara. í árlegum bréfum til stjórnarráðsins þar sem farið er fram á styrk vegna skólahaldsins er þess getið þegar skólinn flytur af einum bæ á ann- an. en það gerist reglulega. Ekki virðist gengið frá leigu á húsnæð- inu nema til árs í senn. Fylgiskjöl með slíku bréfi eru líka reikn- ingar vegna skólahalds og skýrsla prófdómara um getu barnanna og sem áður segir er einnig gerð grein fyrir húsnæði skólans. Á hverju hausti afgreiðir fræðslunefnd líka undanþágu- beiðnir foreldra eða forráða- manna einhverra barna. Það er jafnan gert með því skilyrði að börnin fái minnst 8 vikna heima- kennslu og komi til prófs að vori. Það skólahúsnæði sem notað var í upphafi, heimili í sveitinni og félagsheimili bindindishreyf- ingarinnar á Dalvík, var í eigu annarra en hreppsins sem og þau húsgögn sem þurfti til kennsl- unnar. Svarfdælingar byggja nýtt þinghús sem einnig á að verða skólahús að Grund árið 1912- 1913. Þar með er Grund orðin miðpunktur kennslunnar í sveit- inni, en kennsla hefst þar haustið 1913, Árið 1916 er ákveðið, að ráði Stefáns Kristinssonar prófdóm- ara, að láta smíða skólaborð fyr- ir Dalvíkurskólann. Rök hans voru þau að þá eignaðist sveitin borðin og þau gætu verið færan- leg milli staða. Jafnframt var ákveðið að gera salerni á Dalvík í sambandi við skólahúsið þar. Haustið 1916 leit út fyrir að ekki yrðu nema 5 börn í Skíða- dal og orðið áhorfsmál hvort þar ætti að halda úti skóla eða reyna að koma kennslunni fyrir með ódýrari hætti. Kannað var hvort hagstæðara væri að koma börn- unum fyrir í nánd við aðra kennslustaði, en það reyndist engu ódýrara en að halda áfrarn kennslu í dalnum. Niðurstaðan varð að bjóða uppá undanþágu frá skólagöngu barnanna og að þau fengju heimakennslu í stað- inn. Ef það ekki gengi yrði skóla áfram haldið úti að Þverá. Á fundi hálfum mánuði síðar er komið í ljós að börnin muni ekki verða nema 3 eða 4 og að undan- þágu verði óskað fyrir þau. Þannig leggst skólahald tíma- bundið niður í Skíðadal og þeim stöðum sem kennt er á byrjar að fækka. Þegar svona stóð á finn- ast dæmi um það að foreldrum væri greiddur styrkur vegna heimakennslu barnanna. 1916 eru líka ráðnir húsverðir bæði við skólann á Dalvík og á Grund, en auk þrifa og viðhalds þurfti á þessum tíma að sjá skól- unum fyrir eldsneyti, aðallega kolum. Ekki voru kenndar svokallað- ar aukanámsgreinar í skólum í Svarfaðardal nema söngur. Tryggvi Kristinsson kenndi ekki bara söng heldur stofnaði hann barnakór og lét syngja opinber- lega. Margir unglingar lærðu líka orgelleik hjá honum en hann var, auk þess að vera farskóla- kennari, orgelleikari og kórstjóri við kirkjurnar í dalnum. í næsta tölublaði Norðurslóð- ar verður þriðji og síðasti hluti þessarar frásagnar af fram- kvæmd fræðslulaganna frá 1907 í Svarfdælafræðsluhéraði. Dalvíkurbyggð Búfjáreigendur athugið Landbúnaðarráð Dalvíkurbyggðar vill vekja athygli hlutaðeigenda á því að samkvæmt „Samþykkt um búfjárhald í Dalvíkurbyggð" sem staðfest var af landbúnaðarráðuneytinu í september 2003, þurfa allir þeir sem halda búfé utan lögbýla að sækja um leyfi til þess. Umsóknina þarf síðan að senda til byggingafulltrúa Dalvíkurbyggðar til afgreiðslu. Gunnhildur Gylfadóttir formaður landbúnaðarráðs

x

Norðurslóð

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.