Norðurslóð - 13.12.2007, Síða 1
Svarfdælsk byggð & bær
31. ÁRGANGUR FlMMTUDAGUR 13. DESEMBER 2007 12. TÖLUBLAÐ
3óía6íaö
2007
Norðurslóð óskar lesendum sínum nær og fjær
gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári
Svarfaðardalur. Málverk eftir Arngrím Ólafsson - málað 1914. Sjá nánar á bls. 2.
Þorsteinn Þ. Þorsteinsson
Jólakertin
Ljós frá löngu brunnum
litlum jólakertum
rauðum, gulum, grænum,
gegnsœjum og blám,
birtu breitt upp rúmið,
baðstofunni lýstu,
geisluðust í giugga
guðs mót sölum hám.
Ljós frá löngu brunnum
litlum jólakertum
æsku endurlýsa
innst í hverri sál;
spegla andans unað
œðstu lífsins gæði
óvitans, sem áður
engla skildi mál.
Ljós frá löngu brunnum
litlum jólakertum
efstu elli skína
eins og vorkvöldssól,
þegar hálft á himni,
hálft í djúpum sævar,
hring sinn saman setur
sunnan undir pól.
Ævihrings við enda -
eins og friðarbogans -
œðstu óskir rætast,
og þá skin sem sól
Ijós frá löngu brunnum
litlum jólakertum
óvitans, sem átti
engla, guð og jól.
Opnunartími:
Mán.-fös. 10-19.30
laug. 10-18
sun. 13-17
Matvöruverslun - rétt hjá þér
Hafnartorg - Dalvík - s: 466 1202