Norðurslóð - 13.12.2007, Blaðsíða 2

Norðurslóð - 13.12.2007, Blaðsíða 2
2 - Norðurslóð Norðurslóð Útgefandi: Rimar ehf., Ráðhúsinu, Dalvík, sími 466 1300. Ritstjórar og ábyrgðarmenn: Hjörleifur Hjartarson, Lauga- steini, 621 Dalvík, sími: 466 3370. Netfang: hjhj@ismennt.is Jóhann Antonsson, Dalvík. Netfang: ja@radgjafar.is Blaðamaður: Halldór Ingi. Netfang: halldor@rimar.is Framkvæmdastjóri: Sigríður Hafstað, Tjörn. Sími: 466 1555. Umbrot: Þröstur Haraldsson. Netfang: throsth@isholf.is Prentvinnsla: Ásprent, Glerárgötu 28, Akureyri, sími: 460 0700. Sjálfsmynd Amgríms Ólafssonar. Forsíðumyndin Forsíðumynd Norðurslóðar að þessu sinni er af málverki Amgríms Ól- afssonar af Svarfaðardal máluð 1914 og vafalaust eitt elsta málverk sem málað hefur verið af Svarfaðardal. Amgrímur fæddist árið 1889 að Hallgilsstöðum í Möðravallasókn sonur Jórannar Jóhannsdóttur frá Ytra Hvarfi og Ólafs Jónssonar bamakennara frá Hallgilsstöðum. Ólafur og Jórann bjuggu fyrst á Hallgilsstöðum, fluttu síðan í Velli í Svarfaðardal en keyptu loks Ytra-Kálfsskinn og fluttu þangað 1897. Þau eignuðust þrjá syni og var Amgrímur þeirra elstur, skírður i höf- uðið á Amgrími Gíslasyni málara og sundkennara og lífskúnstner í Gullbringu. í nóvember 1898 reið áfall yfir fjölskylduna þegar Jórann veikist hastarlega af lífhimnubólgu af því er talið var. Reynt var að róa með hana lífróður til læknis á Akureyri en hún lést á leiðinni. (Grein um Jóranni eftir Jóhann J. Ólafsson er að finna í jólablaði Norðurslóðar 2004). Synimir þrír vora sendir hver á sitt heimilið eftir dauða móður sinnar. Amgrímur ólst upp hjá ömmu sinni og afa, Jóhanni og Sólveigu á Ytra-Hvarfi. Fimmtán ára hélt hann til prentaranáms til Odds Bjömssonar á Akureyri. Arið 1911 sigldi hann til Kaupmannahafnar til frekara náms í prentiðn en jafnframt lagði hann stund á myndlist og sótti myndlistarskóla bæði í Kaupmannahöfn og síðar í Dresden í Þýskalandi. Þar var hann m.a. samtíða Finni Jónssyni listmálara. Fyrstu málverkasýningu sína hélt hann í Reykjavík 1915 en árið eftir, 1916, sýndi hann mörg málverk ásamt Þórhalli Bjömssyni á Akureyri. Þar gæti Sigurjón Jónsson læknir í Árgerði hafa séð myndina fyrst og keypt hana nema hann hafi fest sér hana fyrr því sjónarhomið er af því best verður séð af bæjarhlaðinu í Árgerði. Hefur læknirinn því vafalaust fylgst með listamanninum við sköpun hennar. Myndin hékk á besta stað í Árgerði og síðar á heimili Sigurjóns og Sigríðar Ólafsdóttur konu hans í Reykjavík eftir að þau fluttu þang- að árið 1938. Uppeldisdóttir Sigurjóns og Sigríðar, Lovísa Hafberg Bjömsson, eignaðist myndina eftir þeirra dag og hefur hún hangið uppi á heimili hennar og eiginmanns hennar Gunnars K Bjömssonar efnaverkfræðings á Seltjamamesi nú í meira en hálfa öld og glatt augu margra. Fyrir síðustu jól var myndin hreinsuð upp hjá Morkinskinnu og birti þá heldur yfir henni að sögn Gunnars og komu þá í ljós ýmis smáatriði og litbrigði s.s. í skýjum, sem ekki höfðu áður sést. Amgrímur Ólafsson lagði einkum stund á málaralistina fyrst eftir að hann kom utan en starfaði annars sem prentari alla tíð, lengst af hjá Félagsprentsmiðjunni í Reykjavík. Hann var einnig mikilvirkur ljós- myndari og tók auk þess kvikmyndir einkum af fuglum og náttúralífi sem hann hafði mikinn áhuga á. Á Ljósmyndasafni Islands era yfir 1.500 ljósmyndir eftir hann. Þá var hann ástriðufullur garðyrkjumaður og fagurkeri á því sviði. Amgrímur lést þann 17 júní 1964. Úr fórum Unnar í Svæði Unnur Sigurðardóttir í Svæði (f. 12. júlí 1908 d. 5 feb. 2003) var hafsjór af fróðleik og skemmtan í bundnu og óbundnu máli. Eitthvað er til af vísum, kvæðum og þulum sem vinir hennar og samferðafólk skrifaði upp eftir henni, sömuleiðis þjóðháttadeild Þjóðminja- safnsins og hefur jafnvel ratað inn á hljómdisk þaðan, en margt af því sem hún kunni hefur þó glatast við fráfall hennar. Eftirfarandi kvæði tók Þórunn Elíasdóttir (Hall- dórssonar úrsmiðs) upp á segulband eftir Unni. Ljóðabréfið var tekið upp árið 1984 þar sem Þórann var stödd heima hjá Bára systur sinni og var Unn- ur þar í kaffi hjá þeim systram. Sjóferðabænina las Unnur inn á bandið árið 1993. Þórann skrifaði síðan kvæðin orðrétt upp eftir segulbandinu og sendi Norðurslóð á síðasta ári. Þór- unn lést í Hafnarfirði í október sl. Sjóferðarbœn Þið sem út á hafið haldið heyið stríð við vind og sjó en með ykkur Herrann hafið hjálpin sú erykkur nóg. Fyrirykkur ótal bænir eru beðnar vinum frá. Margra hjörtu heitt þess biðja að Herrann góði verndi þá. Hann sem getur stöðvað storminn og sterkar bylgjur hastað á, megnar ykkur vinir vernda voða hafsins öllum frá. Verið sœlir vinir kœrir vernd guðs haldnir séuð þið. Herrann leiði ykkur alla aftur heim, þess biðjum við. Hann sem getur stöðvað storminn og sterkar bylgjur hastað á inn á Eyjafiörðinn fagra færir aftur skipin smá. Ljóðabréj frá Ólöfu Briem frá Stóra-Núpi Fædd á jóladag 1851, konu sr. Valdimars Briem. Ljóðabréfið er til systur hennar, Elínar, í Borgarfirði vestra. Nú fer ég loksins að búa til blað baminu góða og senda það. Því nú fæ ég stóran og sterkan póst að stika til þín, en lengi það dróst. Þess lengra ætti að vera hið litla blað og langt má það vera ef hann dregur það og þungt má það vera ef hann það ekki ber en þvílíkt blað vil ég ei senda þér. En það á að vera lítið og létt því litla höndin þín er svo nett og henni er það ætlað, en honum ei þó hann haldi á því til þín, mín ljúfa mey. Ögn er nú langt síðan Ellu ég sá orðin held ég hún sé ekki smá. Hún margt hefúr lært og mikið gert sem mér þykir ekki lítils um vert. Þú skrifar svo vel það er skemmtun að sjá ei skakkar nokkur stafúr þér hjá. Eins og þú skrifar lipurt og létt hvem lífsins staf skalt þú setja rétt. Og ofan svo tekurðu ullinni vel að ekki sést í toginu þel. Eins hjartaþelið þitt, hjartað mitt, sé helmingi betra en allt annað hitt. Svo prjónarðu líka bamanna best við birtuna ekkert lykkjufall sést. Eins laust við galla og lykkjuföll mitt ljúfa barn sé þín hegðan öll. En það er ei nóg að þú semjir sokk svo ferðu líka að spinna á rokk. Þá held ég verði ekki hólamir á sem híalin verður það til að sjá. En jafnari samt en þráðurinn þinn verði þráður lífs þíns, engillinn minn. Og fyrir mömmu þú ferð að þvo svo fallegt er allt, svo hvítt, nei sko. En hvítara þó en hreinasta lín, mítt hjartans bam, verði sálin þín. Og pabbi þinn dæmin fer að fá og fallegt mun spjaldið þitt verða þá. Þú saman skalt leggja, það satt er og rétt og saklaust og gott - þá er dæmið rétt. En frá skaltu draga það ljótt er og leitt það langtum best er að það sé ekki neitt. Og margfalda skaltu svo alúð og ást til allra manna, það kann ei að mást. En sjálfri þér margfaldist menntir og fé þess meira sem öðram þú lætur í té. Og deila skaltu svo aftur þeim auð til annarra manna sem þurfa brauð. Hjúkran og vemd, já hlýlegt orð hjá þér sé ævinlegt nægtaborð. Ef aðrir deila ætla ég þér allstaðar skaltu semja frið Hjá ömmu þú lest svo vel elskan mín ó, hvað mig langar að heyra til þín. Hve fallegu sögumar lipurt þú lest. En lífs þíns saga sé allra best. í öllu góðu þér fram svo fer þess fyrst og seinast ég óska þér. Ó, hvað ég vildi að væri nú frá veturinn kaldi með élin sín grá. Og vorið komið með blöð og blóm og blíðan og skæran fuglaróm. Því ég á eitt blóm svo fagurt og frítt, ég fæ það í vor, það er alltaf nýtt. Og ég á einn litinn og fagran fúgl sem farið getur aldrei í ragl. Svo heldur er von ég hlakki til nú held ég hún Ella segi „skil“ því hún er svo skýr og skemmtigóð hún skilur nú flest það litla fljóð. Nú era víst augu þín orðin þreytt en allra síst vildi ég þau hafa meitt. Þó era kveðjumar eftir enn ég skal mér flýta, þá gengur það senn. Hann frænda þinn stóra fyrstan ég tel, frá honum á ég að heilsa þér vel, Óla og Jóa og öllum hér, allir biðja að heilsa þér. En síðast þig kveður kærastan mín, kærast og best hún systir þín. Munir og minjar Á byggðasafninu í Hvoli er fjöldi muna sem bera vitni um horfna starfshætti og margir þeirra koma nútímabömum ef til vill spánskt fyrir sjónir. íris Olöf Sigurjónsdóttir forstöðumaður Byggðasafnsins í Hvoli gerir hér lítilleg skil munum og minjum af safninu, auk þess sem birtar eru myndir af skrýtnum hlutum sem lesendur mega ráða í til hvers vora not- aðir. Ef þið hafið einhverjar upplýsingar um munina hvetjum við ykkur til að hafa samband við írisi á byggðasafninu í síma 466-1497 eða 892-1497. Mynd 63. Hvað er þetta? í síðasta blaði var mynd af kaffidunk Kven- félagsins Tilraunar. Dunkurinn var notaður til að hella upp á kaffi á samkomum bæði á Þinghúsinu á Grund, á Tungurétt og víðar þar sem kvenfélagið var með kaffiveitingar. Dunkurinn var útbúinn úr venjuleg- um 30 lítra mjólkurbrúsa með áföstum krana og hellt upp á hann gegnum heilmikla, sérhannaða kaffigrisju. Það munu hafa verið starfsmenn Bílaverkstæðis Dalvíkur sem suðu kranann á dunkinn og smíðuðu jafnframt undir hann grind með gasbrennara til að halda kaffinu heitu í dunknum. Hætt var að nota dunkinn þegar stórvirkar kaffivélar komu til sögunnar. Halla Karlsdóttir á Hóli, formaður Tilraunar afhenti safninu dunkinn nýlega.

x

Norðurslóð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.