Norðurslóð - 13.12.2007, Síða 8

Norðurslóð - 13.12.2007, Síða 8
8 - Norðurslóð Svarfdælskt skáld í Vesturheimi egar ég var á tíunda ári, vorið 1956, fréttist af óvenjulegri jarðarför sem halda skyldi á Völlum. Svo var mál með vexti að duft Svarfdælings sem bjó í Vesturheimi, andaðist þar og var brenndur, hafði verið flutt heim til íslands, ásamt dufti konu hans sem fyrr hafði látist, og nú átti að jarðsetja líkamsleifar þessa fólks í Valla- kirkjugarði. Ekkert slíkt hafði ég áður heyrt. Og þessi gengni Svarfdælingur var skáld! Eg var nú tekinn að hafa sérstakan áhuga á skáld- um, og fannst þetta því merkilegra af þeirri sök. Tveir nafnkunnir sveitungar, Snorri Sigfússon og Eiríkur Hjartarson, stóðu fyrir útförinni og auglýstu hana. Hún fór fram 27. maí, en tveim dögum fyrr birtist í Tímanum minningargrein um skáldið eftir Snorra. Hvert var þetta vesturíslenska skáld sem hafði bundið slíka tryggð við æskusveit sína að hann skyldi ætla jarðneskum leifúm sínum hvílurúm þar? Hann hét Þorsteinn Þ. Þor- steinsson og hafði alist upp frá ffumbemsku á Syðra-Hvarfi og átti þar heima til fullorð- insára. Nú hefúr fymst mjög yfir minningu Þorsteins og vil ég því rifja upp helstu ævi- atriðin hér í Norðurslóð. Hann er að því er ég best veit einn Svarfdælinga um að hafa sest á skáldabekk vestan hafs, - og raunar einn í næsta fámennum hópi skálda úr sveitinni. Það er því ástæða til að minnast hans. Styðst ég hér við nokkrar prentaðar greinar og einnig frásögn Soffiu Gísladóttur frá Hofi í útvarps- þætti sem Gísli Jónsson gerði á aldarafmæli Þorsteins 1979 og til er í segulbandasafni Rík- isútvarpsins. Sá þáttur var tekinn saman að mínu frumkvæði og er víst hið síðasta sem gert hefur verið til að minna á skáldið. I Þorsteinn Þ. Þorsteinsson fæddist í Upp- sölum í Svarfaðardal 11. nóvember 1879. Hann var ekki hjónabandsbarn. Móðir hans var Aldís Eiríksdóttir bónda og rímnaskálds í Uppsölum Pálssonar. Eiríki er svo lýst, segir Snorri Sigfússon í fyrmefndri grein, að hann hafi verið „sérkennilegur fræðaþulur og þeir feðgar (Eiríkur og Páll faðir hans) svo fljúg- andi hagmæltir að eftirtekt vakti.“ Faðir Þor- steins Þ. var Þorsteinn Þorsteinsson, kenndur við Upsir og tíðum nefndur Þorsteinn smið- ur. Hann lagði stund á fræðimennsku og rit- aði margvíslegan sagnafróðleik og þjóðsög- ur. Handritadyngjur miklar frá honum liggja á Landsbókasafni óprentaðar. Þorsteinn smiður fór aldraður til Vesturheims og lést í Winnipeg 1912. Þorsteinn yngri hafði lítið af föður sínum að segja en minntist hans í ljóði. Ljóst má vera að hneigð til skáldskapar og fræða liggur í báðum ættum Þorsteins Þ. Bjöm R. Amason rekur þær ættir allítarlega í grein um hann í bók sinni, Sterkum stofnum, 1960. Þorsteini yngra var á öðm aldursári komið í fóstur að Syðra-Hvarfi til Jóns Kristjánssonar og Dagbjartar Gunnlaugsdóttur. Ólst hann þar upp við gott atlæti, kallaði þau hjón pabba og mömmu og lagði einkum mikla ást við fóstru sína. Á uppvaxtarárum Þorsteins bjó þar á bænum Þorsteinn Þorkelsson, sálmaskáld og þjóðsagnaritari, fatlaður menntafrömuður meðal Svarfdælinga. Hann kenndi Þorsteini yngra undir fermingu og hefúr það verið honum mikils virði að hljóta æskumótun sína í návist slíks manns, til þess benda tvö kvæði sem hann orti um nafna sinn. Annars mun Þorsteinn snemma hafa verið nokkuð einráður og ekki fús að aðlagast hinu hefð- gróna sveitalífi, að því er ráða má af grein Bjöms R. Ámasonar. Tvítugur fór hann í Hólaskóla og lauk búfræðiprófi 1900. I skóla komu sérhæfileikar hans í ljós og segir Soffía Gísladóttir að Jósep Bjömsson skólastjóri og kennari hafi sagt um Þorstein að svo drátthagur piltur hafi ekki komið í Hólaskóla. Eftir prófið vann hann um skeið að jarðabótum og túnrækt. En útþráin lét nú á sér bæra fyrir alvöru. Árið 1901 skrif- ar hann vini sínum, Jónasi Jónassyni frá Hofdölum í Skagafirði: „Tilbreytingarleysið ætlar að drepa mig, Jónas minn. ... Eigum við ekki að fara austur á Austfirði í vor? Við verðum eitthvað að fara til þess að sjá okkur um. Látum þá kylfu ráða kasti með atvinnu og allt. Heldurðu ekki að við sullum-bull- umst einhvem veginn ffam úr því?“ (Saga Dalvíkur 111,30) Á þessum ámm lá straumur íslendinga til Vesturheims, manna sem sáu sér fáa mögu- leika á ættlandinu en heyrðu frásagnir um gull og græna skóga vestan Atlantshafsins. Vissulega höfðu ýmsir landar komist þar vel áfram. Þorsteinn á Syðra-Hvarfi brá á þetta ráð liðlega tvítugur piltur, lét sér ekki nægja að taka stefnuna á Austfirði. Svo segir Soffía á Hofi að þegar Þorsteinn lagði upp í vesturför hafi hann verið heitbundinn ungri stúlku, Sigríði Jósepsdóttur. Hafi hún ætlað með honum, en veikst þegar lagt skyldi í siglinguna. Fór Þorsteinn einn, en unnustan hugðist koma til hans að ári. Af því varð ekki, hún lést af veikindum sínum. Það var árið 1901 sem Þorsteinn hélt vestur til Kanada. Þar bjó hann síðan, lengst af í Winnipeg. Árin 1907-08 var hann í Vancouverborg á vesturströndinni. Á ámn- um 1920-21 var hann heima á Islandi og aftur í fimm ár, 1933-38. Mun Þorsteinn þá hafa hugsað sér að setjast að hér til frambúð- ar og lifa á ritstörfúm, en af því varð ekki, hann sneri aftur vestur um haf og kom ekki til ættlandsins eftir það. Þorsteinn vann fyrir sér með húsamálun og stundaði þá iðn fram á síðustu ár. Hann var ágætlega drátthagur, sem fýrr kom fram og myndskreytti sjálfur bækur sínar. Myndir eftir hann héngu á veggjum víða á heimilum, líklega einkum í Svarfaðardal. En mynd- listin varð ekki helsta viðfangsefni hans í tómstundum, heldur skáldskapur og ritstörf. Fyrsta rit Þorsteins kom út í tveim heftum í Winnipeg 1914 og 1919 og nefnist Fíflar, þar em prósaþættir af ýmsu tagi. Kvæðabókina Þœtti gaf hann út í Winnipeg 1918 og aðra ljóðabók, Heimhuga, í Reykjavík 1921. Árin 1925-31 gaf hann út í Winnipeg misserisritið Sögu, stórt og myndarlegt rit. Þar birti hann margvíslegt eigið efni af ýmsu tagi, sögur, frásagnir og kvæði, og fastur þáttur var í ritinu sem hét Islenskar þjóðsagnir, skráðar eftir frásögum íslendinga vestanhafs. Á seinni hluta ferils síns sneri Þorsteinn sér meira að heimildasöfnun og ritun þátta úr sögu Vestur-íslendinga. Heima á Islandi 1934-35 flutti hann langan erinda- flokk í útvarpið um landnám Islendinga í Vesturheimi, sem út var gefinn í bók, Vestmenn, 1935. Árið 1937 kom út eftir hann ritið Ævintýrið frá Islandi til Brasilíu, með undirtitilinum „fýrstu fólksflutningar frá Norðurlandi“. Á ámnum 1940-45 komu út í Reykjavík og Winnipeg þrjú stór bindi sem Þorsteinn hafði tekið saman og heita einu nafni Saga Islendinga í Vesturheimi. Þorsteinn Þ. Þorsteinsson á yngrí árum. Aðrir bættu síðar bindum við þetta ritverk. Loks kom í Winnipeg 1945 Björninn úr Bjarmalandi, sem fjallar um Sovétríkin. Þorsteinn mun með þessu riti sínu hafa viljað auka samúð og skilning manna í Vesmrheimi á ríkinu í austurvegi að styrjöldinni lokinni, í framhaldi af samstöðu í að koma nasism- anum á kné, en allt fór það á annan veg. Soffía Gísladóttir segir að hann hafi í seinni heimsókn sinni að Hofi 1938 verið að skrifa söguna Riddarann á Urðum, en ekki er mér kunnugt um hvort hún kom nokkurs staðar fram. Þorsteinn kvæntist árið 1910 Rannveigu Jónsdóttur, sem ættuð var af Suðurlandi. Þau eignuðust tvo syni en Rannveig lést úr berklum 1912, frá yngri syninum nýfædd- um. Synimir ólust upp hjá móðurfólki sínu, annar dó á æskualdri, hinn komst til fullorð- insára en eignaðist ekki afkomendur. Seinni kona Þorsteins var Goðmunda Haraldsdóttir frá Sauðárkróki. Þau voru bamlaus. Lést Goðmunda nokkm á undan bónda sínum og fýlgdi honum til legstaðar á Völlum. Soffía á Hofi lýsir henni svo að hún væri „prúð kona og fáguð“. Síðustu árin bjó Þorsteinn á Gimli í Manitoba og lést þar, 23. desember 1955. n Svarfdælingar höfðu veður af þessum sveit- unga sínum eftir að hann fluttist vestur um haf, og brátt bárust þær spumir af honum að hann fengist við skáldskap. Fyrst mun það hafa orðið öllum kunnugt á landnámshá- tíðinni 1910, þegar minnst var þúsund ára byggðar í dalnum. Þá sendi Þorsteinn heim langt kvæði um Svarfaðardal sem lesið var á hátíðinni. Á næstu árum tók hann að senda frá sér rit og 1920 kom hann heim. Segir Bjöm R. Árnason frá því að hann fýlgdi hon- um frá Hofi þar sem hann hafði vitjað vina sinna, um Heljardalsheiði til Skagafjarðar. „Sagði hann mér þá,“ skrifar Björn, „að er- indi sitt hingað heim hefði fýrst og fremst verið að sjá Dagbjörtu fóstm sína og minn- ast við hana, áður en lyki ævi hennar. Kvaðst hann aldrei mundu geta með orðum eða fjár- munum launað henni umönnun og velgerðir þær, er hún hefði látið honum í té alla stund, frá því hann var ungt, ómálga bam og allt til fullorðinsára." (Sterkir stofnar, 35). Þetta kemur heim við innilegt erfiljóð hans um Dagbjörtu Qórum ámm síðar. Á þriðja áratugnum er blómaskeið Þor- steins sem skálds. Þá gefúr hann út ljóða- bókina Heimhuga, og þá stofnar hann til misserisritsins Sögu sem varð helsti vett- vangur ritmennsku hans meðan það kom út. Árið 1930 kom út stórt úrval úr skáldverkum Vestur-íslendinga. Bókin heitir Vestan um haf, gefin út af Bókadeild Menningarsjóðs, en um útgáfuna sáu ekki ómerkari menn en Einar H. Kvaran og Guðmundur Finn- bogason. í þessu safni á Þorsteinn Þ. allmik- ið efni, bæði ljóð og sögur. Utgefendur skrifa formála og stendur þar þetta eftir Einar um sögur Þorsteins: „Þorsteinn Þ. Þorsteinsson er eftirtakanlega leikinn í því að ná lifandi myndum úr lífi Vestur-íslendinga. Ekki finnst mér ástæðulaust að benda á það hér, að honum hefir tekist nokkur síðustu árin að gefa út skemmtirit sem er verulega skemmti- legt - ekki síst fýrir það sem hann leggur til þess sjálfur. Sögur hans í þessari bók eru allar teknar úr þessu tímariti hans, „Sögu“, og meira hefði verið úr því tekið ef rúmið hefði nægt til þess.“ (Vestan um haf XLII). Þetta mat kemur heim við lofsamleg orð Snorra Sigfússonar í eftirmælagreininni, að Saga hefði „að geyma mikið af skáldskap og mannviti og mun e.t.v. öllu fremur sem birst hefir eftir ritstjóra þess sýna og sanna hinar fjölþættu gáfúr hans og skarpskyggni". Stjama Þorsteins í bókmenntaheiminum fór lækkandi á næstu áratugum og eftir að Vestan um haf kom út hefur hvorki ljóðum hans né sögum verið sýndur sá sómi að velja þau í sýnisrit íslenskra bókmennta. Eg minnist þess að í æsku minni las séra Sveinn Víkingur, kunnur klerkur og þýðandi bókmenntaverka, eina af sögum Þorsteins úr tímariti hans í útvarpið. Hún heitir Bjartur Dagsson. Ljóðasafn Þorsteins kom út 1959 og fáir munu hafa lesið það. Síðan ekki sög- una meir. I þessu efni deilirÞorsteinn Þ. Þorsteinsson örlögum með mörgum skáldum og rithöf- undum. Verk flestra gleymast, það eru aðeins hinir útvöldu sem lifa og Þorsteinn var ekki í þeim flokki. Ef við rennum augum yfir kvæði hans sjáum við að þau eru að kveðandi og hugsun í kunnuglegum stíl aldamótanna. I ljóðasafiii hans eru ættjarðarkvæði um Island, kvæði um Kanada, hvatningar- og ádeiluljóð, sögukvæði og mannaminni, gríð-

x

Norðurslóð

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.