Norðurslóð - 17.12.2015, Side 5

Norðurslóð - 17.12.2015, Side 5
Norðurslóð - 5 Jóhann Daníelsson og söngsins unaðsmál í jólablaði Norðurslóðar 1987 er viðtal við Jóhann Daníelsson, undir fyrirsögninni „Söngsins unaðsmál“ af þvi tilefni að hann hafði í mánuðinum á undan, hinn 18. nóvember, orðið sextugur. I viðtalinu rekur blaðamaður Norðurslóðar hluta af lífshlaupi Jóhanns með því að fara með honum yfir blaðaúrklippur sem hann hafði haldið saman þar sem fjallað var um ýmislegt af því sem hann hafði tekið þátt í, einkum á söngsviðinu. Til að minnast Jóhanns, sem lést hinn 23. nóvember sl. verður hér tekinn saman útdráttur úr þessu viðtali. I upphafi viðtalsins fer Jóhann yfir það hve gaman honum hafi þótt að taka þátt í gerð kvikmyndarinnar Land og synir og hann rifjar upp með blaðamanni frægan leikdóm Ingibjargar Haraldsdóttur, þar sem hún segir m.a.: Eitt atriði í myndinni mun árœðanlega seint úr minni. Það er atriðið úr göngunum þar sem alþýðusöngvari syrígur hárri og skýrri tenórröddu ,, Við fjallavötnin fagurblá", Og Ingibjörg reyndist sannspá. Lagið hefúr fylgt Jóhanni og var síðast sungið við útför hans 6. desember sl. Jóhann rifjar líka upp nokkrar söngferðir erlendis sem hann fór bæði með karlakómum Fóstbræðmm og síðar með karlakómum Geysi á Akureyri. Það var einmitt í síðari ferðinni með Fóstbræðmm, árið 1960, í miðju kalda stríðinu, að farið var til Moskvu. Þar gerðu þeir félagamir allt vitlaust þegar þeir sungu í Tchaikovsky sönghöllinni fyrir 1.500 áheyrendur sem ætluðu aldrei að sleppa þeim. Þetta var fyrsta ferð íslensks kórs til Moskvu og sætti tíðindum hér heima. Og Jóhann sá ballet í Bolshoi sem Bjöm bróðir hans kann nokkrar sögur af. Þá er starfsferill kennarans rakinn nokkuð í viðtalinu, en Jóhann var upphaflega menntaður íþróttakennari sem bætti síðar við sig söngkennaranámi og fleim. Hann þjálfaði og kenndi íþróttir víða. Fyrripart vetrar 1949 var hann nýútskrifaður að kenna í Grindavík en fór eftir áramót til Blönduóss þar sem hann var við kennslu og þjálfún ungmenna næstu fjóra vetur. Þá loks lá leiðin norður á heimaslóðir þó hann ætti erfitt með að slíta sig alveg frá Húnvetningunum, en hann var þar við sund- og íþróttakennslu flest vor allt til 1965, auk þess að þjálfa íþróttaflokka sem kepptu á JÓHANN DANIELSSON eo EIRÍKUR STEFÁNSSON Breiðskifa Jóhanns og Eiríks Stefánssonar kom út 1976 landsmótum ungmennafélaganna. Eftir að Jóhann hætti fastri kennslu á Blönduósi var hann eitt ár í Olafsfirði en síðan lá leiðin til Dalvíkur þar sem hann tók til starfa við Dalvíkurskóla haustið 1958. Hann var síðan á Dalvík allt til 1963 að undanskildum einum vetri að hann var við söngkennaranám í Reykjavík. Frá 1963 er Jóhann með fjölskyldu sína á Akureyri, en 1974 nær hann að sannfæra Sissu um að Dalvíkin sé draumablá og snýr þá aftur til kennslu í Dalvíkurskóla, sem hann var síðan viðloðandi til aldamóta. Hvarvetna tók Jóhann mikinn þátt í félagslífi, ekki síst söng- og leiklist. A Blönduósi byrjaði hann að syngja einsöng með kór og fýrsta lagið var „Vorið kemur“ eða Lóan, sem varð förunautur Jóhanns æ síðan. Lóan var á efnisskrá Karlakórs Dalvíkur flest þau ár sem Jóhann var með kómum og hún var auðvitað með á plötunni Svarfaðardalur sem karlakórinn gerði árið 1975. I blaðaúrklippum má líka sjá að hann hefur tekið þátt í uppfærslum leikrita og kabarettsýninga. Hann söng til dæmis eitt aðalhlutverkið í óperettunni Nitouche sem Leikfélag Akureyrar setti upp við mjög góða aðsókn. Jóhann getur ekki stillt sig um að nefna það að Gíslínu konu hans hafi ekki þótt listrænn árangur hans merkilegur á leiksviðinu. Það telur hann stafa af því það hafi jafnan komið í hans hlut að leika og syngja elskhugann og henni hafi einfaldlega ekki fallið við hlutverkin. Já, söngurinn var snar þáttur í lífi Jóhanns. Hann rifjar í lok viðtalsins upp að líklega 9 ára gamall hafí hann ásamt Júlíusi bróður sínum og Lárusi í Ytra-Garðshomi troðið upp á barnaskemmtun sem haldin var á Bakka. Um fermingu söng hann síðan með kvartett sem söng á afmælisfagnaði Ungmennafélagsins Þorsteins Svörfuðar á Gmndinni. Kvartettinn var undir stjóm Sigurðar í Syðra- Holti. Þá þurfti Jóhann að standa á kassa til að vera jafnstór hinum. Hann segist hafa verið alinn upp við söng heima, faðir sinn og móðir hafi bæði starfað mikið með kómm og mikið sungið þar heima. Hann bendir líka á að Þórarinn á Tjöm, kennarinn hans, hafi látið þau syngja eitthvað á hverjum degi. Jóhann riljar loks upp íyrstu kynni sín af útvarpi og grammófóni. Tónlistin hreif, og hann segir að enn þann dag hafi hann gaman af því að rilja upp og syngja gömlu lögin sem hann lærði að syngja í bemsku. Utför Jóhanns var gerð frá Dalvíkurkirkju þann 6. desember sl. Síðan var drukkið erfi að Rimum. Þar stigu ýmsir á stokk og minntust Jóhanns og riljuðu upp kynni sin af honum, eða sungu honum til heiðurs. Jóhann var vinsæll og vinamargur.. Hann þekkti af eigin raun hve mikilvægt það er að geta sungið og tekið þátt í samsöng og lagði því alla tíð áherslu á að nemendur hans syngju. Það var gott veganesti. Þá em ótaldir allir þeir sem hann kenndi að taka marsinn. Jóhann setti mikinn svip á samfélag sitt og með honum vildu flestir vera. Eftir lifir söngurinn á plötum og diskum og svo allar sögumar. Þær verða ekki sagðar hér, en fullyrt að Jóhanns Daníelssonar verður lengi minnst. Jóhann íglöðum hópi gangnamanna. A myndinni má sjáStefán Gunnarsson, Steingrim Steinarsson, Omar Arnbjörnsson, Steinar Steingrímsson ofl. Akureyrarkirkju í tilefni 70 ára afmœlis kórsins. Daniel Þorsteinsson var fenginn til að gera lagið sem hérfylgir á nótum. Jóhann Daníelsson 18. nóv. 1927 - 23. nóv. 2015 Jóhann Daníelsson er fallinn frá og eftir standa minningar um góðar stundir með þeim lífsglaða snillingi. Hugurinn hvarflar að draumabláu sumarkvöldi á Dalvíkinni við söng Jóhanns. Tíminn stöðvast og ekkert er til nema augnablikið. Upplifunin algjör og stundin eilíf, glasið fúllt. I umgjörðinni er sætur ilmur af Svarfdælskum gróðri. Tenór Jóhanns er sterkur, hljómmikill og karlmannlegur en um leið kliðmjúkur og tær eins og ijallavötnin fagurblá. Lögin sem hljóma í minningunni koma eitt af öðru, lög eftir Eyþór Stefánsson, Jón Bjömsson og fleiri norðlensk tónskáld við ljóð Davíðs Stefánssonar og annarra fagurkera. Hann syngur um bjarta nótt: „Gaman, gaman, gaman er að vera til, vera til og vaka“; um grænkandi dal: „Guð minn hve nú er gaman, glampandi sólin skín, við skulum syngja saman, syngdu ntér lögin þín“. 1 laginu Vorið kemur segir frá lóunni sem naut þeirra forréttinda að „mega saklaus alla ævi, una þér við söng og blóm.“ Hápunktur kvöldsins er svo um meyna frá Mandalay þar sem segir frá blökkustúlkunni sem söngvarinn kyssti „bak við kalda klausturmúra". Hann gleymir aldrei stúlkunni en hún reikar um mannlaus torg og vonar að hann „muni koma senn“. Heimir situr við píanóið og gefur sig augnablikinu á vald. Lokatónar lagsins virðast lifa að eilífu og hrifningin altekur hverja taug. Síðan er fagnað, hlegið og skálað fyrir dásemdum lífsins. Og sungið meira. Þessi tónlist og hin rómantísku ljóð sem Jóhann hafði yndi af að syngja eru einkennandi fyrir þann mann sem hann hafði að geyma. Jói Dan vakti, eins og tónlistin, einatt hjá okkur góðar tilfmningar, ekki aðeins fyrir það hversu léttur hann var í lund og viðræðugóður, heldur bjó að baki einlæg manngæska og fordómaleysi. Hann hafði þann kost, sem er æ sjaldgæfari í seinni tíð, að dæma ekki annað fólk. Og þótt hann hefði góðan húmor og næmi fyrir breyskleikum ntannskepnunnar þá var hrekkleysi og góðvild ávallt yfirsterkari kaldhæðninni. Tírni sumarkvöldanna er liðinn og nú er Jói Dan allur. Þessi mikli listamaður lífsins hefur sungið sitt Haustljóð og „sofnað eins og trén og blómin“. Þótt í ljóðinu segi líka að það vori og sumri að nýju, þá er heimurinn fátækari nú en áður. Það eru forréttindi að hafa kynnst manni eins og Jóhanni Daníelssyni. Nærvera hans og söngur var náttúruafl. Ég votta bömum hans og afkomendum mína dýpstu sarnúð og þakka fyrir ógleymanlegar stundir og kveð Jóa Dan með þeim orðum sem honum voru töm: Blessaður ævinlega, vinur. Olafur Sigurðsson, fyrrverandi kennari við Dalvíkurskóla

x

Norðurslóð

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.