Norðurslóð - 17.12.2015, Qupperneq 9

Norðurslóð - 17.12.2015, Qupperneq 9
Norðurslóð - 9 vondum veðrum og þótti sjóhæfnin ekki hafa verið nógu góð. Hann sagðist hafa samanburð við Júlíus Bjömsson EA, en þar var hann líka vélstjóri, en skipin vora mjög sambærileg nema rýmið aftan við stýrishúsið og hafi hann alltaf litið á það sem ástæðu munarins á þessum tveimur bátum. Með þrjú skip á síldveiðum Matti Jak (Mattías Jakobsson) tók við skipstjóm á Baldvini Þorvaldssyni þegar Stjáni fór yfír á Baldur EA. Stýrimaður hjá Matta var Gunnar Arason þá nýútskrifaður úr Stýrimannaskólanum. Matti segir að sér hafi líkað sérstaklega vel að vera hjá Alla og segir að haustvertíðamar hér fyrir norðan minnisstæðar. Hann segist hins vegar hafa valið að fara yfír á Björgúlf EA 312 þegar honum bauðst það en hann sagðist alltaf minnast tímans hjá Alla með ánægju. Eins og íyrr segir kom Loftur Baldvinsson EA 124 nýr til landsins í júlí 1963 og var þá Aðalsteinn með þrjá báta í útgerð á sumarsíldveiðum 1963, það er Baldvin Þorvaldsson, Baldur og Loft. Hann ákvað aftur á móti að leigja nýja Loft Baldvinsson til Patreksljarðar á vetrarvertíðinni 1964. Patreksfirðingurinn Finnbogi Magnússon varð skipstjóri við upphaf vertíðar, en Finnbogi var að biða etir að nýsmíði hans Helga Guðmundsdóttir BA, yrði tilbúin í Noregi. Gunnar Arason skipstjóri Gunnar Arason varð skipstjóri á Baldvin Þorvaldssyni EA á síldveiðum 1963 en þá var Matti Jak hættur. Gunni var svo með bátinn á haustvertíð og byrjaði með hann á vetrarvertíðinni í Keflavík. Gunni segir að eitt kvöldið þegar þeir voru búnir að landa hafi Alli komið til sín og sagt við hann að hann þyrfti að senda sig til Patreksfjarðar daginn efltir. Gunni segist hafa hváð en Alli sagði bara „Þú átt að verða skipstjóri á Lofti Baldvinssyni“. Þá kom það hjá Alla að Finnbogi væri í raun hættur og bíði bara eftir honum svo hann komisttil Noregs. Gunni segist hafa fengið vilyrði fýrir því að Finnbogi færi samt einn veiðtúr með honum. Það var aldeilis að Gunnari Arasyni var kastað út í djúpu laugina því ekkert varð úr að Finnbogi færi með honum einn túr. Ekkert var flogið vestur fyrr Hér er Baldvin Þorvaldsson EA 24 að koma úr skemmtisiglingu á sjómannadaginn 1956. Margir hafa haft áhuga á að sigla meó nýjasta skipi Dalvíkurflotans þá. en 5 dögum seinna og þá gaf Finnbogi honum rjómatertu og kvaddi. Gunni var þama með í höndunum nýtt og öflugt skip og átti að sækja á mið sem hann hafði ekki stundað áður sem skipstjóri. En hann var með góða áhöfn. Allt gekk þetta vel eins og sjá má í úrdrætti frétta úr dagblaðinu Vísi í lok vertíðar sem sjá má hér annars staðar á síðunni ásamt frekari umijöllun í sama blaði tveimur dögum síðar. Svona hófst tilvist Gunnars Arasonar sem skipstjóra á báti sem bar nafnið Loftur Baldvinsson en nöfn Gunna og skipsnafnið Loftur Baldvinsson áttu eftir að vera í frétt í dagblaðinu Vísi 14. maí nátengd næstu 12 árin. Meira um 1964 sagði: það í næsta blaði Norðurslóðar. ,,Meiri fiskur barst á land á Patreksfirði á seinustu vertíð en dœmi ent til áður, og bátur, gerður út þaðan, hrat't aflametinu frá ífyrrafyrir báta með límt og net, og erþá miðað við landsmet á vertíðinni, en það átti ífyrra Helgi Helgason, en afhonum var landað á Patrelcsfirði 1454 tonnum, en nýja metið á Loftur Baldvinsson, semftskaði 1460 tonn, á línu og í net". ..Skipstjóri á Lofti Baldvinssyni var Finnbogi Magntisson fram til 10. apríl og hafði þá ftskað 1200 tonn, en þá tók við Gunnar Arason, kornungur maður og efnilegur, og líklegur til að verða aflakló, og gekk honum líka vel þótt hann kœmi ókannugiir til Patreksf jaróar. Þegar byrjað var með netin höfðu fiskazt 330 tonn á línu, en það var í janúar". ,,Gunnar Arason sagði við fréttaritara Vísis á Patreksfirði, að sér hefði líkað þar vel, bœði við skipverja sína og bátinn, og yfirleitt hafa verið sótt stutt, en þó kitnnað vel við sig. Gœftir hafa verið með bezta móti, einkum síðari hluta vertíðar. Fréttaritarinn hefttr það eftir Gunnari, að netatap haft verið með minnsta móti og ekkert net skilið eftir í sjónttm “. ,,Annar bátur i röðinni á Patreksfirði er vélbáturinn Dofri með 1417 tonn, skipstjóri Héðinn Jónsson, ogþriðji Sœborg með 1111 tonn, skipstjóri Hörður Jónsson. Eigandi Lofts Baldvinssonar er Aðalsteinn Loftsson, úttgerðarmaður íDalvtk". Matthías Jakobsson 31. mars 1936 - 8. desember 2015 Móðurbróðir minn, Matthías Jakobsson lést þann 8. desember sl. eftir að hafa notið líknandi meðferðar á Dalbæ á Dalvík. Matti var næst yngstur systkinanna frá Sjálandi í Grímsey sem fluttu til Dalvíkur vorið 1947. Faðir hans, Jakob Helgason hafði þá keypt húsið Garða við Hafnarbraut fyrir sína fjölskyldu. Þau urðu sjö systkinin en sá elsti, Willard f. 1926, dó úr berklum haustið 1945. Jakob var fæddur að Borgum í Grímsey en móðir Matta, Svanfríður Bjamadóttir var fædd að Steindyram á Látraströnd. Hún flutti ung með móður sinni, Ingu Jóhannesdóttur, systkinum og fósturföður til Grímseyjar. Á legsteini þeirra Jakobs og Svanfríðar í Dalvíkurkirkjugarði stendur „Hér hvíla hjónin frá Grímsey . . og má af því ráða tryggð þeirra við Grímsey, þó þau kysu á sínum tíma að flytja í land. Matti var 11 ára þegar þau komu til Dalvíkur. Hann átti þá einn yngri bróður, Þóri Ottó f. 1942 og fjögur eldri systkini; Helga f. 1928, Bjama Siguróla f. 1930, Elínu f. 1932 og Guðrúnu f. 1934. Eftirlifandi era Ottó og Guðrún og búa bæði á Dalvík. Grímseyingar voru aldir upp við veiðiskap sem varð bæði atvinna Matta og áhugamál. Hann fór í sjómannaskólann og axlaði snemma ábyrgð. Hann var svo ungur þegar hann tók við sem skipstjóri á Vilborginni frá Keflavík að hún var kölluð Baby doll, enda skipstjóri og sumir úr áhöfn vart af bamsaldri. Matti var lengi farsæll skipstjóri, síðast við útgerð sem þeir bræður, hann og Otti, áttu með Ægi Þorvaldssyni. Sú útgerð óx á nokkram áram frá litlum báti og fiskvinnslu í togaraútgerð. Þeir ljárfestu síðan í því ævintýri að kaupa og flytja fyrirtækið Sæplast til Dalvíkur og var Matti stjómarformaður þess í 13 ár. Fyrir þátt sinn í vexti og viðgangi Promens/Sæplasts var hann heiðraður af Fiskideginum mikla árið 2014. I þessari fjölskyldu er mikill áhugi á mat og gjaman fyrsta verk að morgni að spá í hvað eigi að hafa til kvöldverðar þann daginn. Matti fór ekki varhluta af því. Hann var áhugamaður um öflun hráefnisins, meðhöndlun og matreiðslu. Hann þróaði til dæmis uppskrift að rétti úr skreið, enda var hann skreiðarframleiðandi um árabil og fannst ekki nema sjálfsagt að kunna þá líka að matbúa úr henni. Á seinni áram bakaði hann eðal flatkökur og leysti gesti og gangandi gjaman út með nokkram kökum. Matti var líka einhver mesti og skemmtilegasti sögumaður sem ég hef þekkt og gat vitnað til og sagt sögur við flest tækifæri. Oft tókst honum að gera hversdagslega atburði að hátíð með leiftrandi frásagnarsnilld sinni. Hann var líka margfróður og minnugur. Þegar ég átti sæti í sjávarútvegsnefnd Alþingis og taugaveiklun greip um sig vegna breyttar fiskgengdar eða minni veiði hringdi ég stundum í Matta og það brást ekki, hann mundi viðlíka aðstæður og þekkti hvemig mál höfðu síðan þróast. Þar naut ég ríkrar þekkingar manns sem kunni það sem kallað er fiskifræði sjómannsins. Eg er Matta mjög þakklát fyrir þátttöku hans í uppeldi sona minna, einkum Jónasar sem 8 ára vildi ganga til sumarvinnu rétt eins og eldri bræður hans. Matti tók hann í vinnu hjá Blika og þar mætti drengurinn allt sumarið, sat milli þeirra Matta og Ægis þar sem þeir skáru spyrðubönd af skreið og sögðu sögur. Sjálfur fékk hann ekki hníf það sumarið, varð að láta sér nægja að leysa böndin. Hann var svo við vinnu hjá Blika í mörg sumur, eins og bræður hans, og nutu allir góðs uppeldis þar. Já, það er margs að minnast og þakka. Eg var elsta stelpan í bamabamahópi afa og ömmu í Görðum og fékk að njóta þess hjá ógiftu frændum mínum sem reyndust mér oft sem eldri bræður. Mér skilst að gælunafnið Sansa hafi Matti gefið mér til heiðurs henni Svönsu sem hann var þá skotinn í. Hann kom líka með úr siglingu dúkku handa mér, þá stærstu sem ég eignaðist og var hún auðvitað nefnd Matta. Með Matta Jakobs er genginn góður maður sem auðgaði samfélag sitt og skipti viðgang þess miklu máli. Matti eignaðist sex böm, Elvu Heiðrúnu, Ingu Sigrúnu, Svanfríði Helgu, Gest, Matthildi og Þóri. Að auki eignaðist hann fósturböm. Afkomendur Matta eru orðnir ljölmargir, fallegt fólk og dugandi. Ég votta þeim og ástvinum hans öllum mína innilegustu samúð. Svanfríður Jónasdóttir

x

Norðurslóð

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.