Norðurslóð - 17.12.2015, Síða 13

Norðurslóð - 17.12.2015, Síða 13
Norðurslóð -13 bjó lengi Ingibjörg Jóhannsdóttir (Ingibjörg í Lambhaga) ásamt dætrum. Hún var vinsæl saumakona og var oft með saumanámskeið. I þessum húsum hafa verið auk íbúða hannyrðaverslun, síldarradíóið, aðsetur Slysavarnafélagsins og björgunarsveitarinnar. Sunnan Lambhaga var lengi eyða í byggðina. Tún voru sitt hvoru megin við götuna. Næstu austan götunnar hús voru byggð miklu síðar. Þetta eru tveggja hæða steinsteypt hús en samsvara sér nú vel í götumyndinni. Vestan götunnar sunnarlega var húsið Oddi en annars var þar lengi óbyggt áður en Víkurröst var reist. Oddi er lítið steinsteypt hús á einni hæð. Pálmi Jóhannsson, bifvélavirki, sem þama bjó ásamt ijölskyldu, var jafnframt afkastamikill „klippari.“ A laugardögum var oft biðröð eftir að komast í klippingu hjá honum. Alltaf var sama lága verðið hjá Pálma 10 kr. per haus. Ekki varð hann valdur að verðbólgunni! Dalsmynni var og er enn eitt af glæsilegri húsum á Dalvík og stendur á fallegum stað. Þetta er þriggja hæða steinhús. Kristinn Jónsson ,venjulega kallaður Kiddi sund vegna frumkvöðla-starfs við sundkennslu, byggði húsið og bjó þar. Margir afkomendur hans hafa einnig búið í húsinu. Kristinn rak stórt og mannmargt fyrirtæki í netagerð en skrifstofa þess var i Dalsmynni. Kristinn var mikill félagsmálamaður m.a oddviti um tíma og fyrsti fréttaritari útvarpsins hér. Elsti hluti Dalvíkurskóla var tekinn í notkun 1934. Tveggja hæða skólahúsið var tekið í notkun um 1957. Fyrir utan hefðbundið skólastarf var skólinn mikið notaður fyrir ýmiskonar félagsstarfsemi t.d. kóræfmgar. Öll umferð að skólanum var um Skíðabrautina meðan gengið var inn í skólann að austan. Var oft fjölmennt í Skíðabautinni vegna skólans. Sunnan Dalsmynnis og skólans var áður mikil lægð í landinu - Klaufín - og á vorin gat verið þama vatnsmikill lækur, í minningunni stórfljót, sem rann í ræsi undir veginum. En nú hefur landið verið hækkað sitt hvoru megin við veginn. Þegar vegurinn að heimavistinni (Fosshótel) var gerður lokaðist þetta ræsi að mestu og er það ef til vill ástæðan fyrir bleytunni sem er oft á vorin á tjaldstæðinu. Heimavistin var reist í upphafi áttunda áratugar og var ætluð fyrir unglinga nærliggjandi byggða en Dalvíkurskóli átti að vera safnskóli hoppa suður fyrir lækinn. Sunnan við Klaufina er húsið Vegamót. Þar var heimili mitt frá fermingu. Þorsteinn föðurafi minn byggði þama hús, blöndu af timbur- og torfbæ, sem hann nefndi Vegamót, á mörkum götunnar framan úr sveit og sjávargötunnar frá Böggvisstöðum. Afi naut þess fá ár að búa i bænum. Hann varð snemma ekkjumaður og flutti annað en húsið var alltaf í hans eigu. Síðustu íbúar gömlu Vegamóta voru hjónin Ingibjörg og Þórarinn P Þorleifsson og Þorbjörg dóttir þeirra. Foreldrar mínir, Steinunn og Steingrímur, byggðu síðar tveggja hæða steinhús framan við gamla bæinn. I nýja húsið var flutt haustið 1957. Gamla bænum var þá breytt nýja húsið vom foreldrar mínir með fallegan garð og mikla fjölbreytni plantna. Þar var sennilega fyrsta gróðurhúsið á Dalvík með m.a vínberjaræktun. I garðinum er enn lítill gosbmnnur sem pabbi gerði og í kjallara húsins var hálfgert náttúrugripasafn. Við getum haldið aðeins áfram fram veginn, Hjarðarholt er austan vegar, þar var sennilega síðasti torfbærinn á Dalvík sem búið var í. Vestan vegar er Asgarður, þar var áður tveggja hæða hús en það skemmdist í jarðskjálftanum 1934 og var endurbyggt sem einnar hæðar hús. Þegar Skíðabrautinni lýkur taka Börðin við, þar sem þjóðvegurinn liggur. Austan Barðanna eru Flæðamar. Þar voru Fjölskrúðug umferð kúa, manna og bila á Skíðabrautinni fýrir elstu árganga gmnnskólanna á svæðinu. Hér lýkur hinni eiginlegu Skíðabraut. Aður var litið svo á að hér væm mörk kauptúnsins og sveitarinnar. En við skulum aðeins i ljós, síðar fjárhús og nýtt þannig í nokkur ár. 1 mörg ár var húsið notað sem geymsla og vinnustofa föður míns við uppstoppun. Gamli bærinn hefur verði endurbættur, þar er nú rekin gistiaðstaða. Við kýr Dalvíkinga hafðar á beit á daginn. Undan Börðunum streymir vatn sem að mestu er leysingavatn úr Böggvisstaðafjallinu. Einn pyttur var þama öðmm meiri og gæti hafa verið pyttur sá sem sagt er frá í frásögnum af Þorvaldi galdramanni á Sauðanesi. Þorvaldur vildi fá keypt folald af mönnum en fékk ekki og er sagt að þá hafi hann ort: Fáðu skák folald ( Fæ þig ekki folald, - er líka sagt) þótt fallega sértu litt: Farðu suður á Flæðar og fleygðu þér niður í pytt. Ærðist folaldið þá og hljóp í ýmsar áttir og gekk á þeim ærslum þangað til komið var suður á Böggvisstaðasand. Þar námu menn staðar, en folaldið hljóp sem hamstola suður Böggvisstaðaflæðar og stakk sér þar á hausinn í poll, sern síðar er nefndur Folaldspyttur. Ef til vill er þessi pyttur fyrsta vatnsbólið á Dalvík, áður en Pálsbmnnur kom í Grundargötunni, því kringum pyttinn vom steinahleðslur til að auðvelda aðgengi. Þetta hvarf allt, m.a. þegar skurðimir voru grafnir. Enn aka menn um Skíðabrautina og umferðin er nú meiri og hraðari en áður. Fáir stoppa og enn færri eru þar á gangi og íbúar eru sára fáir við götuna. 'Aðkoma að skólanum er einnig orðin önnur. Mörg hús hafa verið fjarlægð og götumyndin orðin skörðótt. Ef ekki væri fyrir hinn ágæta stað „Gísli, Eirikur og Helgi“ væru fáir á gangi þarna. „Lyckliga gatan den finnst inte mer“ var vinsælt lag í Svíþjóð og þetta á ef til vill við um Skíðabrautina. Þetta er ekki sagnfræðileg samantekt, aðeins minningar manns sem farinn er að eldast og vonandi hafa einhverjir ánægju af að rifja upp þennan tíma með mér. Fáir íbúar em nafngreindir því erfitt er að hafa yfirsýn á alla sem hafa búið í götunni. Margt er hér örugglega ótalið og því em ábendingar vel þegnar. Dalvíkurbyggð sendir starfsfólki sínu bestu jóla- og nýárskveðjur og þakkar vel unnin störf á árinu. Jafnframt óskum við öllum íbúum sveitarfélagsins gæfu og gengis á komandi ári. Sveitarstjórn og sveitarstjóri

x

Norðurslóð

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.