Ritaukaskrá Landsbókasafnsins - 01.01.1928, Síða 3
SKRÁ þessi tekur yfir ritauka Landsbókasafnsins frá 1.
janúar til 31. desember 1928. Er henni hagað eins og síðast að
öðru en því, að tilgreind hefir verið aðalblaðsíðutala á íslenzkum
ritum, nema sérprenti og ritum, sem koma út ár eftir ár.
Við árslok var bókaeign safnsins talin 121060 bindi, en hand-
rit 7896 bindi.
Af prentuðum ritum hefir safnið á árinu eignast 2569 bindi,
þar af auk skyldueintaka 1247 gefins, en gefendur 120. Ber þar
sérstaklega að geta hinnar höfðinglegu bókagjafar herra E. Munks-
gaards bókaútgefanda i Kaupmannahöfn, er hefir gefið safninu
483 bindi, þar á meðal mörg merkustu læknisfræðisrit, sem birzt
hafa í Danmörku hin síðari árin, og að auki hið mikla sérprenta-
safn prófessors Carls Jul. Salomonsens, sérstaklega um sóttkveikju-
fræði, í 40 hylkjum og bögglum.
Handritasafn Landsbókasafnsins hefir á árinu aukist um 25
bindi, þar af 22 gefins. Gefendur voru þessir:
Erfingjar Geirs T. Zoéga rektors 14, Mag. Bogi Th. Melsteð
6, próf. Guðm. Hannesson 1, og dr. Rögnvaldur Pétursson 1.
Útlán Landsbókasafnsins árið 1928.
Lestrarsalur.
Mánuður Lesendur Lánaðar bækur Lánuð handrit Starfs- dagar
Janúar 1515 1435 196 26
Febrúar 1408 1434 258 25
Marz 1429 1365 286 27
Apríl 1005 878 372 22
Maí 995 953 599 25
Júní 574 703 418 25
Júli 443 800 388 26
Ágúst 455 973 763 26
September 482 870 402 26
Október 1081 1109 151 27
Nóvember 1170 1102 263 27
Desember 990 1086 198 23
Alls 11547 12708 4294 305
Hér er eigi talin notkun þeirra bóka og timarita, sem á
lestrarsal eru.