Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2016, Qupperneq 4
Helgarblað 3.–6. júní 20164 Fréttir
Á
bendingum til Trygginga
stofnunar um meint bóta
svik fækkaði um hundrað
milli ára eftir að umdeild
ur ábendingahnappur var
fjarlægður af heimasíðu stofn
unarinnar að kröfu Persónu
verndar. Ríkisendurskoðun hvatti
nýlega Tryggingastofnun (TR)
til að koma aftur upp nýjum og
löglegum hnapp að sögn svo að
stofnunin geti nýtt þau tæki sem í
boði eru til að sinna lögboðnu eft
irliti með bótagreiðslum.
DV fjallaði um hugsanlega
endurkomu bótasvikahnapps
ins í síðasta blaði þar sem með
al annars kom fram hörð gagn
rýni formanns Öryrkjabandalags
Íslands á hugmyndina. Rakti for
maðurinn, Ellen Calmon, meðal
annars ástæður þess að hún teldi
fáránlegt að taka upp slíkan hnapp
að nýju og benti á að hann skapaði
að auki neikvæð hugrenningatengsl
hjá fólki varðandi TR og örorkulíf
eyrisþega sem væru málaðir sem
bótasvikarar.
Sinni lögboðnu eftirliti
Meðal röksemda Ríkisendur
skoðunar fyrir upptöku TR á
hnappnum á vefsíðu sinni að nýju
var að ábendingum um bótasvik
hafi fjölgað markvert eftir að hon
um var komið upp í júlí 2009 en
að sama skapi hefði ábendingum
fækkað eftir að hann var fjarlægð
ur í mars í fyrra fyrir að standast
ekki lög og reglur. Í síðasta blaði
kom fram í máli Þóris Óskarssonar,
sviðsstjóra stjórnsýslusviðs Ríkis
endurskoðunar, að hvatning henn
ar til TR um að taka upp hnappinn
snerist ekki um að fjölga ábending
um í sjálfu sér. Heldur fremur því
sjónarmiði að stofnuninni beri að
nýta þau tæki sem í boði eru til að
sinna lögboðnu eftirliti sínu með
bótagreiðslu.
Fækkaði um hundrað milli ára
Samkvæmt svörum sem DV fékk
frá Tryggingastofnun um fjölda
bótasvikamála, sem upplýst hafi
verið með aðstoð upplýsinga frá
gamla hnappnum, segir að árið
2014 hafi 189 ábendingar borist
í gegnum ábendingahnappinn á
heimasíðu stofnunarinnar.
Árið 2015 hafi verið skráðar
85 ábendingar. Ábendingum um
meint bótasvik fækkaði því um
rúmlega 100 ábendingar eftir að
hnappurinn var fjarlægður. Gamli
hnappurinn bauð upp á þann
möguleika að tilkynna nafngreind
an einstakling í skjóli nafnleysis.
Einstaklingur sem varð fyrir því að
vera tilkynntur kvartaði til Persónu
verndar vegna hans í fyrra og vildi
meina að hann stæðist ekki lög.
Í úrskurði Persónuverndar kom
fram að samkvæmt lögum um
persónuvernd ætti hinn tilkynnti
rétt á vitneskju um vinnslu persónu
upplýsinga um sig og einnig rétt á að
vita hvaðan upplýsingarnar kæmu.
Þar sem ábendingahnappur TR
gerði fólki kleift að koma fram und
ir nafnleysi og án þess að gefa upp
svo mikið sem netfang í ábending
um sínum um meint bótasvik tiltek
inna einstaklinga, gæti hinn skráði
ekki notið réttinda sinna. Það væri
brot gegn lögum um persónuvernd
og meðferð persónuupplýsinga
og krafðist Persónuvernd þess að
TR fjarlægði hnappinn. Við því var
orðið og hefur hann ekki sést á vef
síðu stofnunarinnar síðan.
Hundrað viðtöl
Í svari TR segir enn fremur að ef
ábendingar sem berast til stofn
unarinnar gefi tilefni til nánari
skoðunar sé viðkomandi sem
ábendingin beinist að boðið að
koma í viðtal til að fara yfir málin.
„Í mörgum tilfellum lýkur ferlinu
þar með því að skráning er lagfærð
og greiðslur leiðréttar eftir atvikum.
Rúmlega 100 slík viðtöl fóru fram á
síðastliðnu ári.“
DV spurðist fyrir um hversu háar
fjárhæðir hefði verið um að tefla í
þeim málum sem upplýst voru fyrir
tilstilli hnappsins, en í svari TR seg
ir að ekki sé mögulegt að tengja fjár
hæðir við ábendingar. n
Hrun í ábendingum eftir
að hnappurinn hvarf
Tilkynningum um bótasvik snarfækkaði milli ára þegar ólöglegur ábendingahnappur hvarf
„ Í mörgum tilfellum
lýkur ferlinu þar
með því að skráning er
lagfærð og greiðslur leið-
réttar eftir atvikum
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Fækkaði
umtalsvert
Eftir að tekið var
fyrir nafnlausar
ábendingar um
meint bótasvik
á vef TR fækkaði
ábendingunum
um ríflega hund-
rað milli ára.
Mynd Sigtryggur Ari
Feðgar í Panama-skjölum
Tengjast að minnsta kosti 50 aflandsfélögum
F
eðgarn ir Björgólf ur Guð
munds son og Björgólf ur
Thor Björgólfs son tengj ast að
minnsta kosti um fimm tíu af
l ands fé lög um í skatta skjól um sem
stofnuð voru í gegn um lög fræðistof
una Mossack Fon seca í Panama.
Þetta kemur fram í úttekt Stundar
innar, sem unnin er upp úr Panama
skjölunum svokölluðu og í sam
vinnu við Reykjavik Media. Gögn um
Björgólfsfeðga í skjölunum ná aftur
til ársins 2001.
Fram kemur í úttektinni að
Björgólfur Guðmundsson hafi ósk
að eftir prókúruumboði fyrir félagið
Ranpod Limited í nóvember 2008,
mánuði eftir hrun Landsbankans
– en prókúruhafi félags getur ráð
stafað eignum þess. Fé
lagið var skráð á Bresku
Jóm frúareyj um og í eigu
dótt ur Björgólfs, Evelyn
Bentínu Björgólfs dótt ur.
Fram kemur að Mossack
Fonseca hafi verið tregt til
að veita umboðið, vegna
upplýsinga um efnahags
brot og fjársvik Björgólfs.
Þar hefur Hafskips
málið líklega dúkkað
upp. Þremur dög
um síðar fengu
feðgarnir báðir
prókúruumboð
og heimild til að
stýra eignum
Ranpod Limited frá Barclaysbank
anum í Sviss.
Í Stundinni kemur fram að
skiptastjóri þrotabús Björgólfs Guð
mundssonar kannist ekki við nafnið
Ranpod Limited og segir að það fé
lag hafi ekki verið hluti af uppgjöri
þrotabús hans, en það var tekið til
gjaldþrotaskipta í júlí 2009.
Björgólfur Thor segir á heimasíðu
sinni að 100 manna her lögfræðinga,
endurskoðenda og annarra sér
fræðinga hafi farið yfir öll gögn um
hann og félög hans í tengslum við
skuldauppgjör hans. „Hugleiðingar
um að einhverju hafi verið haldið
undan eru bæði ósmekklegar og
meiðandi,“ skrifar hann og segir
blaðamennina „kokhrausta“.
„Hvað varðar félagið Ran
pod sérstaklega þá lágu upp
lýsingar um það félag fyr
ir við rannsókn á fjármálum
mínum.“ Loks hafnar hann
því að þeir feðgar væru
fjárhagslega tengdir. „Slík
skráning hefur ekkert með
fjölskyldutengsl að gera. Við
vorum ekki og erum
ekki fjárhags
lega tengd
ir sem sést
best á því að
faðir minn
varð gjald
þrota en ég
ekki.“ n
Björgólfur thor Hafnar því að
tengjast föður sínum fjárhagslega.
Þriggja ára
með þyrlu
Stúlka á fjórða aldursári var á
fimmtudagskvöld flutt með þyrlu
Landhelgisgæslunnar á Landspít
alann í Fossvogi eftir slys á sveita
bæ nærri Flúðum.
Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglunni á Suðurlandi varð
stúlkan undir heyrúllu sem pökk
uð var inn í plast og var í stæðu
nærri bænum. Talið er að stúlk
an hafi verið að leik á heyrúll
unni ásamt fleiri börnum þegar
slysið varð. Stúlkan var komin til
meðvitundar þegar björgunar
sveitarmenn komu á vettvang en
þeir sinna bráðaútköllum í upp
sveitum.
RÚV hefur eftir lögreglunni
á Suðurlandi að vettvangshjálp
hafi gengið fljótt fyrir sig. Þyrlan
hafi lent við bæinn rúmum hálf
tíma eftir slysið og verið komin á
Landspítalann hálftíma síðar.
Veskið hjá
lögreglunni
Russell John Stevens, ferðamaður
frá Kanada, gekk út af lögreglu
stöðinni í Reykjanesbæ á fimmtu
dag, glaður í bragði. Russell hafði
týnt veski sínu en í því voru öll
hans kort og talsvert reiðufé.
Lögreglan á Suðurnesjum
greinir frá þessu. Í skeyti frá lög
reglunni segir:
„Heiðvirður borgari sem fann
veskið hans hafði komið með
það á lögreglustöðina og skilað
því inn með öllu sem í því átti
að vera. Við sendum honum svo
skilaboð á Facebook með þessum
árangri. Nú getur hann loksins
farið að eyða peningum eins og
hann sagði.“
Myndavél í bíl
Hreyfiskynjari
og sjálfvirk upptaka
FullHD 1080P
LCD skjár
LOKADAGAR AFMÆLISHÁTÍÐAR
Tilboðin gilda út 4. júní!
Krap, kaffi og nammi í boði
og ALLT Á TILBOÐI :)
Opnunartími:
Föstudag: 10:0018:30
Laugardag: 12:0017:00
NÚ: 11.046 kr
Lenovo Y700, Intel i5 6300HQ
8GB, SSD og 1TB diskur
GTX960M
FullHD IPS
Windows 10
NÚ: 176.607 kr
Sími 582 6000 Skipholt 50c