Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2016, Síða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2016, Síða 22
Helgarblað 3.–6. júní 20164 Íslenskur sjávarútvegur - Kynningarblað Eyjabiti: Meinhollur, ljúffengur og sívinsæll E ðlilega tengja margir Eyja- bita við Vestmannaeyjar enda voru harðfiskafurð- ir undir þessu nafni fram- leiddar þar um tíma. En fyr- ir 20 árum var stofnuð fiskvinnslan Darri á Grenivík sem keypti rekstur Eyjabita og síðan hefur Eyjabitinn verði framleiddur á Grenivík. Darri er í eigu Heimis Ásgeirssonar og sinnir eingöngu harðfiskvinnslu en hráefnið er keypt á frjálsum mark- aði. Um 12 til 16 manns starfa hjá fyrirtækinu hverju sinni, einhverjir í hlutastarfi, en ársverk eru alls 13. „Við erum með þrjár fisktegund- ir, þorsk, ýsu og steinbít, og úr þessu hráefni framleiðum við 7–8 vöru- tegundir. Til dæmis eru það bein- hreinsuð, roðlaus þorskflök í alls konar pakkningum. Við erum líka með beinhreinsuð ýsuflök og bita- fisk úr ýsu. Þá erum við með svokall- aða óbarða ýsu, eins og hún kom úr hjallinum í gamla daga. Sumir vilja fiskinn þannig, það er áður en hann valsast. Þá er hægt að brjóta sér af honum til að maula,“ segir Heimir. Harðfiskur er rómuð heilsuvara og inniheldur um 82% prótein. Af u.þ.b. 100 kílóum af slægðum fiski koma 8,2 til 8,5 kíló af harðfiski en afgangurinn er vatn, bein, hausar og annað. Það hverfur því engin nær- ing við þurrkunina. Harðfiskur hefur lengi verið vin- sæl vara en að sögn Heimis hafa vinsældir Eyjabitans farið mjög vax- andi undanfarin ár og hann er til sölu í nær öllum verslunum sem selja matvöru: „Okkur hefur alltaf tekist að selja allt sem við framleiðum, en árleg framleiðsla núna er úr um 500 tonn- um af slægðum fiski. Úr því vinnum við um 42 tonn af harðfiski,“ seg- ir Heimir og ljóst er að fólk kann sífellt betur að meta þessa hollu og próteinríku vöru. Segir Heimir að aukin umræða um hollt matar- æði og heilsusamlega lifnaðarhætti vinni með Eyjabitanum. Salan hjá Darra er þó ekki bund- in við innanlandsmarkað því um 40% af framleiðslunni fara til út- flutnings. n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.