Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2016, Page 38

Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2016, Page 38
Helgarblað 3.–6. júní 201626 Menning … komdu þá við hjá okkur Ertu á leið í flug? Hafnargötu 62, KEflavíK / pöntunarsími 421 4457 Hádegis-tilboð alla daga 5 5 2 - 6 0 6 05 5 2 - 6 0 6 0 Ugly. is - smiðjUvegi 2 og l angarima 21 Þ að eru margir af sömu kröftunum sem laða fólk að fótboltaleik og í leikhús, þar eru hetjur og skúrkar, rökleg framvinda, spenna um málalok. Sigurbjörg Þrastardóttir, rithöf- undur og skáld, hefur fjallað um fótbolta út frá slíkum hugtökum, bæði í pistlum í Víðsjá og í Lesbók Morgunblaðsins. Eins og bíómynd „Lengd fótboltaleiksins, 90 mín- útur, rímar við úthald áhorfenda ekki síður en líkamlegt úthald leikmannanna. Þetta er einnig hefðbundin lengd á bíómyndum, það virðist vera einhvers konar listrænt þanþol. Háskólakennslu- stundir eru einmitt líka oft 45 mín- útur, svo er gert hlé af því að við höfum ekki úthald í meira,“ segir Sigurbjörg. „Lengd leiksins er um leið nógu mikil til að þar geti átt sér stað dramatísk uppbygging. Leikurinn byggist smám saman upp að örlaga- ríku augnabliki sem skiptir öllu máli, vítaspyrnunni eða brottrekstrinum. Það eru hetjur og skúrkar og það eru mjög miklir dramatískir atburð- ir. Ég velti fyrir mér hvort sé erfiðara að ná þessu fram í hröðum leik eins og handbolta og körfubolta þar sem mörg stig eru skoruð á hverri á mín- útu,“ segir hún. Sigurbjörg segist telja að það hljóti að vera fagurfræðileg upplif- un sem áhorfendur sæki í. „Hvort sem það er bara í því að horfa á lærin á þátttakendum eða hvort það er þessi samruni mannlegrar áætlanagerðar og náttúru. Leik- urinn fer fram á grænum velli (þótt hann sé kannski gervi), ólíkt ýmsum íþróttum sem fara fram á sérstökum brautum. Það sem mér finnst svolítið fallegt er þessi stóra útfærsla á einföldum barna- leik. Það hafa allir spilað fótbolta úti í garði, þar sem er ekkert nema grasið og boltinn. Þú þarft ekki málaðar línur eða flóðljós, bara tvö lið og bolta. Sá sem skorar vinnur.“ Þarf að vera með hausinn í lagi „Á vissan hátt snýst fótbolt- inn um fullkomnun líkamans. Knattspyrnugoðsagnir nútím- ans eru ákveðin íkon, það hvern- ig þeir eru byggðir, hvað þeir geta og kunna. En það er líka áhuga- vert að reyna að skilja hvernig þeir hugsa. Það var einu sinni rit- uð lærð grein um að David Beck- ham hefði ekki háa málgreind en gríðarlega mikla hreyfigreind – hún leiddi fram kunnuglega tví- hyggju. En það sýnir sig hins vegar að þeir sem ná lengst eru „með hausinn í lagi“ – eins og sagt er í íþróttunum. Það þarf að hafa mik- inn leikskilning, útsjónarsemi og „strategíska“ hugsun, þetta er ekki bara líkamlegt. Þetta er mjög fal- legur leikur að því leyti að það er hægt að setja upp alls konar kerfi og það hvernig þú ert stemmd- ur í kollinum getur haft úrslitaá- hrif í leiknum. Enn aðrir horfa á fótbolta sem góða útgáfu af stríði – tveir herir hvor í sínu „uniform- inu“ keppa um frægð og frama en ekki kúgun og yfirráð.“ Eins og aðrir viðmælendur DV leggur Sigurbjörg áherslu á þá upplifun að sameinast öðrum áhorfendum. „Þegar þú ert neyt- andi eða áhorfandi fótboltaleiks þá bregst þú við eins og stór hópur fólks og sýnir það alveg viðstöðu- laust. Kannski sýndi fólk einu sinni svona sterk viðbrögð við listaverkum, en það gerir það ekki lengur! Það er alveg sama hvað fer fram á sviðinu í leikhúsi, þótt einhver sé drepinn á sviðinu fyr- ir framan þig, þá kyngir þú í besta falli en sýnir engin viðbrögð. En ef það er einhver felldur inni í teig í fótboltaleik þá bilast þú – og allir í kringum þig líka. Þar kemur þessi útrás, þetta „kaþarsis,“ sem listirn- ar höfðu kannski einu sinni en er búið að hemja svo mikið í okkar borgaralega samfélagi.“ Dramatísk uppbygging og kaþarsis Sigurbjörg Þrastardóttir, rithöfundur og ljóðskáld F agurfræðileg upplifun er ekki bara spurning um fegurð, heldur er það þegar maður sekkur algjörlega inn í eitt- hvert fyrirbæri,“ segir Guðbjörg R. Jóhannesdóttir, aðjúnkt við Lista- háskóla Íslands og nýdoktor í heimspeki, sem hefur rannsakað fagurfræði íslensks landslags. „Þetta gerist þegar listaverk grípur mann algjörlega, þegar maður dettur inn í bókina, kvik- myndina eða málverkið. Þetta gerist líka með náttúruna, maður dettur í að gera ekkert annað en að skynja. Skynjunin sjálf verður að- alatriðið, og maður er ekki búinn að ákveða fyrirfram hvað það er sem maður ætlar að skynja. Þetta gerist þegar maður er óvænt grip- inn af einhverju, en svo getur mað- ur líka ákveðið að beina athyglinni að fyrirbærum á þennan hátt, til þess að reyna að sjá fegurðina í þeim,“ segir Guðbjörg. „Þetta gerist líka þegar fólk horfir á fótbolta. Það sem er hins vegar svo áhugavert við fótbolta er að fólk tjáir sig svo sterkt um hvað því finnst, en það gerum við yfirleitt ekki mikið varðandi aðrar fagurfræðilegar upplifanir. Yfirleitt erum við meira að halda því fyrir okkur sjálf,“ segir hún. „Það gerist auðvitað stund- um þegar maður upplifir það sem kallað hefur verið hið háleita eða ægifagra. Þá gefum við kannski frá okkur örlítið „vá!“ En maður öskrar ekki á sama hátt og þegar horft er á fótbolta: VÁÁÁ... SJÁÐU ÞETTA LANDSLAG!“ segir Guðbjörg og hlær. En hvað er það sem gerir það að verkum að við upplifum fegurð, er það eitthvað í formunum sjálfum, gullinsnið í uppstillingum og hreyf- ingum leikmanna? „Ein hugmynd um fegurðina er að hún felist í formum hlutanna, gullinsniðinu og svo framvegis – hún sé hlutlæg. En svo er and- stæð hugmynd að hún sé bara í huga þess sem skynjar – hún sé því huglæg. En eins og ég skil fagur- fræðilega upplifun eru það einmitt tengslin á milli formsins og þess sem skynjar. Það sem er að gerast á vellinum er nefnilega ekki eitthvað einfalt form, heldur byggist það allt á mjög flóknum tengslum, því sem er að gerast á vellinum og því hvernig við upplifum það – en það fer til dæmis eftir því með hverjum við höldum. Við fáum gleðilega uppplifun ef liðið okkar skorar en ekki ef hitt liðið skorar.“ Tengjumst í fagur- fræðilegri upplifun Guðbjörg R. Jóhannesdóttir heimspekingur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.