Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.2016, Blaðsíða 4
Vikublað 21.–23. júní 20164 Fréttir
Kaffitár borgað sex
milljónir í lögfræðinga
n Býst við að Isavia afhendi forvalsgögnin n Tekjur bakarísins hrundu
L
ögfræðikostnaðurinn nemur
nú um 5,6 milljónum króna
en ég gæti ekki sagt þér hvað
það hafa farið margir klukku-
tímar í þetta mál,“ segir Aðal-
heiður Héðinsdóttir, forstjóri Kaffi-
társ, aðspurð hvað fyrirtæki hennar
hafi greitt í lögfræðikostnað vegna
kröfu þess um að Isavia afhendi
gögn sem varða forval um útleigu á
verslunarhúsnæði í Leifsstöð.
„Áður en umsókn okkar um pláss
í flugstöðinni var hafnað vorum við
svo bjartsýn að við stofnuðum bak-
arí, Kruðerí, en tekjur þess drógust
náttúrulega saman um 50% þegar
við fórum úr Leifsstöð. Þótt bakarí-
ið hafi ekki eingöngu verið stofnað
með Leifsstöð í huga getur þú rétt
ímyndað þér hversu erfitt það er
þegar tekjugrundvöllurinn dettur
svo mikið niður á fyrsta starfsári,“
segir Aðalheiður.
Krefst aðfarar
Héraðsdómur Reykjavíkur staðfesti
fyrir viku úrskurð úrskurðarnefndar
um upplýsingamál þess efnis að
Isavia skuli afhenda Kaffitári gögn
varðandi forval sem ríkisfyrirtækið
réðst í árið 2014. Var þá haldin
samkeppni um verslunarrými í
Leifsstöð og öðrum rekstraraðilum
en Kaffitári á endanum boðið að
opna. Aðalheiður hefur síðan þá
krafist frekari rökstuðnings Isavia
og aðgangs að gögnum sem um-
sækjendur sendu inn í forvalinu.
Alls hafa sjö úrskurðir eða dómar
fallið í málinu, bæði í héraðsdómi
og hjá úrskurðarnefnd um upplýs-
ingamál, og alltaf hefur kröfum eða
málatilbúnaði Isavia verið hafnað.
Ragnar H. Hall, lögmaður Kaffitárs,
sagði í samtali við Morgunblaðið á
fimmtudag að fyrirtækið hefði óskað
eftir því við sýslumanninn á höfuð-
borgarsvæðinu að aðför verði gerð
að gögnunum.
„Það eru nú að verða komin tvö
ár síðan okkur var neitað um pláss.
Auðvitað er maður sár þegar maður
tapar og það getur vel verið að við
höfum ekki unnið eða haft það sem
til þurfti. En Isavia vill ekki segja
okkur hvað við þurftum að gera til að
bæta okkur. Þetta var ekki gegnsætt
ferli, þrátt fyrir að Isavia heyri undir
upplýsingalög, og það er mergur
málsins. Núna er búið að senda bréf
til sýslumannsins um aðfararbeiðn-
ina og bíðum við nú eftir því að hann
fari með lögregluvaldi og sæki gögn-
in. Ég trúi ekki öðru en að Isavia hlíti
dómnum,“ segir Aðalheiður.
Skoðuðu Rósaselstorg
Isavia hefur alla tíð hafnað kröfu
Aðalheiðar og nú lýst því yfir að úr-
skurði héraðsdóms verði skotið til
Hæstaréttar. Stór hluti tekna Kaffi-
társ kom frá veitingasölu í Leifsstöð
og svarar forstjórinn aðspurður að
það sé ólíklegt að fyrirtækið sæki
aftur um pláss í flugstöðinni.
„Málið er að Isavia þurfti ekki að
fara þessa forvalsleið því fyrirtækið
getur handvalið þá sem það vill
þarna inn. En ef sömu stjórnendur
verða þarna við völd þá eigum við
ekkert inni hjá þeim. Það er sama
hvar þú ert, þú ert alltaf í samstarfi,
og ég get ekki ímyndað mér að þeir
vilji hafa mig í samstarfi. Þeir hafa
þráast við í tæp tvö ár að láta mig
hafa upplýsingar sem þeir eiga lög-
um samkvæmt að láta mig fá.“
Kaupfélag Suðurnesja vill eins og
komið hefur fram byggja verslunar-
kjarnann Rósaselstorg skammt frá
flugstöðinni. Áformin voru kynnt í
byrjun þessa árs en kaupfélagið leit-
ar enn samstarfsaðila sem gætu séð
um rekstur veitinga- og kaffihúss.
„Við höfum aðeins skoðað þessar
teikningar en ekki neitt alvarlega.
Við erum með kaffibrennslu við
Reykjanesbrautina og höfum aðeins
velt fyrir okkur hvort við getum nýtt
þá lóð betur. Svo erum við að opna
annað Kruðerí á næstu vikum en
rekstur bakarísins gengur vel þrátt
fyrir þetta áfall á fyrsta rekstrarári
þess.“ n
Forstjórinn Aðalheiður Héðinsdóttir hefur í tæp tvö ár krafið Isavia um gögn úr forvali
ríkisfyrirtækisins. Kaffitári var lokað í flugstöðinni eftir tíu ára rekstur. Mynd SigtRygguR ARi
„Það eru nú að
verða komin tvö
ár síðan okkur var neitað
um pláss.
Haraldur guðmundsson
haraldur@dv.is
515 7900 | alskil@alskil.is | alskil.is
Sjálfstætt
starfandi
apótek
í Glæsibæ
Opnunartími: Virka daga frá kl. 8.30-18.00
Laugardaga frá kl. 10.00-14.00
Okkar markmið er að veita þér og þínum
framúrskarandi þjónustu og ráðgjöf
Fylgist með okkur á Facebook.com/Lyfsalinn
Uppakomur • Leikir • Tilboð