Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.2016, Blaðsíða 13
Vikublað 21.–23. júní 2016 Sport 13
Íslendingar flykkjast til Parísar
Í
slendingar flykkjast nú til Parísar
sem aldrei fyrr en á morgun, mið-
vikudag, mætir íslenska landsliðið
í knattspyrnu Austurríkismönnum
á Evrópumeistaramótinu og hefst
slagur þjóðanna klukkan 16. Þetta
er mikilvægasti leikur landsliðsins
í sögu Íslands en hann sker úr um
hvort íslenska liðinu tekst að kom-
ast áfram í 16-liða úrslit keppninnar
og geta töluverðir hagsmunir verið í
húfi. Íslenska landsliðið kemur inn
til Parísar um hádegið í dag með flugi
frá Annecy þar sem liðið hefur dvalið
í riðlakeppninni.
Búist er við allt að tíu þúsund Ís-
lendingum á leikinn en um níu þús-
und áhorfendur voru á leiknum
gegn Ungverjum í Marseille. Fjöldi
Íslendinga fór áleiðis frá Íslandi til
Parísar um helgina og á mánudag
gagngert til að fara á leikinn.
Búist við að uppselt verði á leikinn
Leikurinn verður á Stade de France,
í nágrenni Parísar, sem tekur um 80
þúsund áhorfendur og er búist við að
uppselt verði á leikinn. Enn er hægt
að kaupa miða á leik en miðasalan,
sem er á vef UEFA, verður opin á
meðan miðar eru til. Ekki liggur fyrir
hversu margir miðar eru til sölu. Ís-
lenska liðið æfir á Stade de France
síðdegis. Íslendingar, sem fylgt hafa
liðinu í riðlakeppninni til þessa
hafa um helgina verið að streyma
til Parísar eftir leikinn í Marseille
sl. laugardag en þangað er um tíu
klukkustunda akstur.
Eftir miklu að slægjast
Liðin sem komust í úrslitakeppnina
í Frakklandi fengu 1,7 milljarða ís-
lenskra króna. Þess má geta að á
Evrópumótinu 2012 fengu liðin að
auki hálfa milljón evra, 72 milljónir
íslenskra króna fyrir jafntefli og eina
milljón evra fyrir sigur, 140 millj-
ónir íslenskra króna. Liðin sem þá
komust upp úr riðlinum fengu tvær
milljónir evra, 280 milljónir íslenskra
króna, en verðlaunin hækka eftir því
hversu langt liðið kemst. Spánverjar,
sem urðu Evrópumeistarar 2012,
fengu alls um 24 milljónir evra, rúm-
lega þrjá milljarða íslenskra króna
á núvirði. Ekki hefur fengist stað-
fest hvað þjóðirnar eru að fá mikið
í árangurstengdar greiðslur í Frakk-
landi en sú upphæð er ekki lægri en
greidd var fyrir á mótinu fyrir fjór-
um árum. Klara Bjartmars, fram-
kvæmdastjóri KSÍ, sagði að menn
væru ekkert að velta þessu fyrir sér.
Nú væri einbeitingin alfarið á leik-
inn gegn Austur ríkismönnum á
miðvikudag. Það sem skipti öllu
máli núna væri að undirbúa liðið
sem best fyrir leikinn. Önnur mál
biðu betri tíma.
Klara, sagðist hvorki hafa upplýs-
ingar um hvernig miðasalan gengi
né hve margir Íslendingar yrðu á
leiknum gegn Austurríki.
„Það hefur reynst erfitt að nálg-
ast stöðuna á miðasölumálinu og
af þeim sökum er ekki miklar upp-
lýsingar að hafa um hversu margir
Íslendingar verða á leiknum gegn
Austurríki. Vonandi verða þeir í
kringum tíu þúsund en stuðningur-
inn til þessa hefur verið frábær,“
sagði Klara Bjartmars.
Í Austurríki er gríðarleg stemn-
ing fyrir viðureign þjóðanna og um
fátt meira talað að sögn Hjalta Axels-
sonar sem búsettur er í Týról. Hjalti
segir fjölmiðla í Austurríki uppfulla
af vangaveltum um leikinn. Fjöl-
miðlar hallast að jöfnum leik.
Njóta virðingar í Austurríki
„Stemningin hér í Austurríki er engu
lík og á mínum vinnustað er varla
talað um annað. Íslenska liðið nýtur
virðingar og margir á mínum vinnu-
stað hæla Íslendingum á hvert reipi.
Það eru nokkrir vinnufélaga minna
algjörlega á bandi íslenska liðsins.
Þeir segja liðsheildina einstaka og
eiga varla til orð yfir íslenska liðið og
frammistöðu þess til þessa í keppn-
inni. Það búast flestir við jafnri viður-
eign,“ sagði Hjalti Axelsson í samtali
við DV. Hann sagðist bíða spenntur
og ætlar að horfa á leikinn með þýsk-
um vini sínum. n
Einn mikilvægasti leikur í sögu Íslands gegn Austurríki á miðvikudag
Jón Kristján Sigurðsson
jonk@dv.is
Undirbúningurinn Það skiptir mestu að
undirbúa liðið fyrir leikinn, segir Klara
Hjalti Axelsson Fjölmiðlar í Austurríki hallast að jöfnum leik.
„Stuðn-
ingurinn
til þessa hefur
verið frábær
Fjölmennt Leikurinn verður á
Stade de France í nágrenni Par-
ísar. Hann rúmar um 80 þúsund
áhorfendur og er búist við að
uppselt verði á leikinn.
» Loftsíur
» Smurolíusíur
» Eldsneytissíur
» Kælivatnssíur
» Glussasíur
Túrbínur
Bætir ehf. býður upp á
viðgerðarþjónustu fyrir
flestar gerðir túrbína.
Sími 567-2050 - Smiðshöfði 7 - 110 Reykjavík
Viðgerða- og varahlutaþjónusta í yfir 30 ár
Bætir ehf hefur í rúm 30 ár boðið uppá alhliða viðgerða- og varahlutaþjónustu fyrir breiðann
hóp viðskiptavina. Við þjónustum og útvegum varahluti í flestar tegundir dísilvéla og höfum
mikla reynslu í ZF og Twin Disc gírum. Bætir ehf hefur um árabil boðið uppá há gæða
varahluti, frá framleiðendum á borð við IPD og Interstate Mcbee, sem henta m.a. í vélar frá:
Caterpillar® Cummins® Detroit Diesel®
Nöfn vélaframleiðenda eru hér aðeins til upplýsinga og eru vörumerkin eign hvers framleiðanda. Cat® og Caterpillar® eru skrásett vörumerki í eigu Caterpillar Inc. Cummins® er skrásett vörumerki í eigu Cummins Engine Company. Detroit Diesel® er skráett vörumerki í eigu Detroit Diesel Corporation.
Í takt við tímann
• Við erum flutningsmiðlun og sjáum um að koma vörum milli landa.
• Við byggjum á víðtækri reynslu úr flutningaheiminum.