Norðurslóð - 16.12.2010, Side 6
6 - Norðurslóð
Jólagetraunir Norðurslóðar 2010
og fleira skemmtilegt
Ljóðagetraun
1. Hver boðar náttúrunnar jól?
2. Hvað hefi eg móðgað margfaldlega?
3. Hvar tók klukkan að klingja fast?
4. Hver unir farsæl, fróð og frjáls við ysta haf?
5. Hvað ber landið á breiðum herðum?
6. Hver hóf ástarljóð, kvöld eftir kvöld?
7. Hverjar veQa hárauðum böndum um hár á sér?
8. Hvað segir stúlka með sægræn augu við mig?
9. Hvar er eyddur hver bær og þekja fallin?
10. Hver leiddi mig á ótroðinn skógarstíg?
11. Hvað má kalla hyggins hátt?
12. Hver kemur nú til sinna manna?
13. Hver flakkaði um í hjólastól?
14. Hver fær bráðum boðin frá mér?
15. Hvað áttu að muna, alla tilveruna?
16. Hvað skreyta fossar og ijallshlíð?
17. Hvað litkar mel og barð?
18. Hver er hrein eins og mær við lín?
19. Hvenær er fagurt í Fjörðum?
20. Hvað ilmar sólu mót?
21. Hvar látum við skella á skeið?
22. Hverjir setjast við hótelgluggann og bíða?
23. Hvar yrki eg skemmstan daginn?
24. Hver var blóðug um sólarlag?
25. Hver losar blund á mosasæng?
Ljóðaljóð
Ljóöagetraunjyrir lengra komna
Ljóðagetraun hefur um langt skeið haft fastan sess í jólablaði
Norðurslóðar og er okkur kunnugt um að í mörgu jólaglöggi og
ófáum jólaboðum sé hún jafn ómissandi og sjálfar veitingarnar.
Nýlega barst okkur í pósti eftirfarandi Ijóð sem er getraun í sjálfu
sér. Ljóðið hefur saman sett Þorsteinn Davíðsson, héraösdómari á
Akureyri. Glöggir ljóðamenn munu þó fljótt átta sig á því að ekki
er Ijóðiö frumort licldur er hver hending fengin að láni og þeim
svo skeytt saman af stakri snilld. En hvaðan koma Ijóðlínurnar og
hverjir eru höfundarnir?
O vert þú hvern morgun vort Ijúfasta líf
og loksins týnist okkar beggja þrú.
Ég ber á mér blóðstorkinn hníf
beljandi vindur um hauður og lá.
Ef lœpuskaps ódyggðir eykjum með Jlœða
með ólgandi blóði þér söng minn ég býð.
Astarfaðir himinhœða
hún er drottning ár og síð.
Ég bökin og bringurnar spanna
á blíðunnar sólfagra degi.
Andviðri freistinganna
og jró undrast ég mest að ég gekk þar og vissi það eigi.
Við göngum í dimmu við Htföi log
list og vit kringum stólinn þinn háa,
er Ijósmóðir stendur vió laugartrog
og lokast inni íJjallahringnum bláa.
ÆvUangt hefði ég helst viljað sofa,
Hrólfur, níu skálda virði,
því verði dropans vart í mínum kofa
vimmhönd mína býð ég Patreksfirði.
Barði Proppé berst um strœti og torg
um bernskudali - og kynstrin öll af sorg.
Þar tekur undir enn vor þjóðarsál.
Skál.
Þá er minnið kveðið og það er eftir Pál.
Og
botn-
aðu nú
Eins og venja er til köstum
við fram fyrripörtum sem við
skorum á lesendur að botna.
Ekki verður hjá því komist að
yrkja um þjóðfélagsástandið...
Eftir hrunið efnahags
ég endanlega skildi...
eða
Efnamenn á IsJandi
eiga þakkir skildar...
Svo er líka hægt að yrkja um
skemmtilegri og nærtækari efni.
A jólunum ég jafnan fœ
jólamat ogpakka...
eða tilbrigði við 2010
2010 Jeið
á talsvert miklu spani...
2010 er
i tímans djúp að hverfa...
2010 gaf
tœkifœri og vonir...
2010 var
tíðindalaust nœstum...
Menn geta dundað sér við að
botna suma eða alla fyrripartana
og sendið þá endilega inn. Eklci
verður þó farið í að velja besta
botninn.
Bókmenntagetraun
Bókmenntagetraunin er með sama snioi og áður. Hvert atriði
vísar til titils á nýútkominni íslenskri bók.
1. Veganesti úr Heimahögum.
2. Undarleg mörk lands og
sjávar.
3. Flæmdir frá föðurlandinu.
4. Blómið með blöðin fleiri
en dvergarnir.
5. Sjóntruflanir af völdum
hins kalda hvíta efnis.
6. Erfíðar draumfarir efna-
manna.
7. Heyrandinn.
8. Ekki leiðist undirrituðum.
9. Vængjaður maður í bítið.
10. Himintungl úr sætu þykkni.
11. Þurrkaðir ávextir að
enduðum degi.
12. Heymfæri rándýrsins eru
ófá.
Svarfdælaprófið
Persónuleikapróf eru vinsœl í blöðum og tímaritum. Flest frekar
heimskuleg og geta vart talist áreiðanleg vísindi enda oftast meira til
gamans gerð en hitt. Norðurslóð býður nú upp á próf sem einkuin er
œtlað Svarfdœliitguin og þar með töldiim Dalvíkingiim. Aðrir geta
þó líka spreytt sig. Með töku prófsins fœst endanlega úr því skorið á
skalanuin 0-12 hvort menn eru ekta heimamenn eða bara hálfvolgir.
1. Mér hlýnar um hjartarætur þegar ég sé Sæplasker.
2. Ég ber fram „strumpastelpa" með rödduðum, norðlenskum framburði.
3. Ég kann brúsreglumar.
4. Ég kann allt erindið sem byrjar svona „Dal einn vænan ég veit“.
5. Ég segi „fram í dal“ en ekki „inn í dal“.
6. Ég held með Dalvík/Leiftri.
7. Ég les Norðurslóð af kostgæfni og sérstaklega „Tímamót“.
8. Fjöiskylda mín bakar saman laufabrauð eftir fjölskylduuppskrift.
9. Ég fer í berjamó en lít helst ekki við öðm en aðalberjum.
10. Ég hef gengið Reykjaheiði.
11. Fjölskylda mín eldar fiskisúpu fyrir gesti á fískisúpukvöldi.
12. Ég hef lesið Svarfdælu.
Sendið inn lausnir fyrir 15. janúar 2011 merkt:
Norðurslóð, Tjörn, Svarfaðardal, 621 Dalvík eða á netfang:
hjhj@rimar.is. Bókaverðlaun verða veitt að vanda.
Kvikmyndagetraun
Úr hvaða kvikmyndum eru þessar stillur?