Norðurslóð - 16.12.2010, Side 7
Norðurslóð - 7
Ferðafélag Svarfdœla
Ferðaáætlun 2011
Nýjársdag kl.13.00
Nýjársganga í Stekkjarhús
(einn skór)
Hin árlega nýjársganga farin
frá Kóngsstöðum í Skíðadal
kl. 13.00 fram í Stekkjarhús, áð
þar og svo gengið til baka. Frjáls
gönguaðferð skór ,skíði, þrúgur
og sleðar. Góð ijölskylduganga,
3-4 tímar
5. febrúar kl: 11:00
Fjallaskíðakynning
Á milli kl. 11:00 og 13:00
ætlar ferðafélagið að bjóða
áhugasömum að kynna sér
þá eiginleika og möguleika
sem ljallaskíðabúnaður hefur
uppá að bjóða fyrir skíðamenn
og aðra útivistarmenn.
Fjallaskíðamennska nýtur
vaxandi vinsælda hér á landi
og opnar útivistarfólki mikla
möguleika í vetrarljallamennsku.
Kynningin fer fram við Brekkusel
skála Skíðafélags Dalvíkur,
búnaður verður á staðnum til
sýnis og prufu.
ætla má að ferðin taki 5-6 klst.
7.maí kl. 10.00. Kajak-kynning
út frá höfninni á Dalvík
Ferðafélagið verður með báta og
galla á staðnum til kynningar á
þessu skemmtilega sporti. Allir fá
að prófa. 2-3 klst. Kostar ekkert.
Gönguvika Dalvíkurbyggðar:
Dagana 25. júní til 3. júlí 2010,
verður hin árlega Gönguvika
Dalvíkurbyggðar þar sem gengið
verður um íjöll og fimindi í
Dalvíkurbyggð. Boðið verður
upp á tvær gönguferðir á dag,
aðra létta ijölskylduferð og hina
þyngri, fyrir þá sem vilja takast
á við alvöru Tröilaskagaíjöll.
Gönguleiðimar eru valdar með
það 1 huga að flestir ættu að finna
sér ferð við hæfi.
Dagskrá gönguvikunnar verður
auglýst síðar.
13.ágúst kl 7.00. - Vinnuferð í
Tungnahryggsskála.(fjórir skór)
Lagt af stað frá Víkurröst á
5. mars K111:00
Gönguskíðaferð um Hamarinn
og Friðland Svarfdæla.
Lagt verður upp frá gömlu
malamámunum norðan við
Skáldalæk. Gengið þaðan með
stefnu á hitaveitutankana við
Hamar og áfram upp á Hamarinn.
Þegar þangað er komið blasir við
fagurt útsýni inn 1 Svarfaðardal
og ekki siður út yfir Dalvík og út
Eyjaljörð. Nú er stefnan tekin á
Sökku og þaðan látum við okkur
líða undan brekkunni niður í
Hánefstaðareit. Eftir að reiturinn
hefur verið genginn enda í
milli er haldið niður á bakka
Svarfaðardalsár og gengið norður
yfir Saurbæjartjöm og hringnum
lokað við Skáldalæk. Vegalengd
ca. 7 til 8 km. Um 4 tíma ferð
2. apríl kl: 10:00 Vélsleðaferð á
Tungnahrygg
Farið verður frá Olís við Dalvík
kl 10:00. Áætlað er að fara
nokkurskonar hringferð frá
Dalvík um Svarfaðardal og
Skíðadal uppá Tungnahrygg þar
sem einn af skálum félagsins
er staðsettur. Af Tungnahrygg
verður farið um Kolbeinsdal í
Skagafirði yfir á Heljardalsheiði,
þar sem nýjasti skáli félagsins er
staðsettur. Þaðan verður haldið
um Hákamba yfir í Hvarfdal og
niður í Fljót í Skagafirði, þaðan
yfir Lágheiði niður að Reykjum
fremst í Ólafsfirði. Ekið er upp
frá Reykjum yfir á Reykjaheiði
í botni Böggvisstaðadals ofan
Dalvíkur þar sem félagið kom
fyrir fjallaskála síðastliðinn vetur.
Af Reykjaheiði er stutt niður
til Dalvíkur þar sem hringnum
verður lokað. Leiðarval getur
breyst í samræmi við snjóalög,
Dalvík. Farið á bílum inní
Barkárdal og gengið þaðan uppá
Tungnahryggsjökul. Þar verður
dyttað að skálanum eftir þörfum
og síðan gist í skálanum yfir nótt.
Gengið niður í Skíðadal daginn
eftir þar sem ferðalangar verða
sóttir. Gengnir em um 15 km
hvom dag. Hafa þarf meðferðis
nesti til ferðarinnar. Þeir sem ætla
að fara þurfa að láta vita með amk
3ja daga fyrirvara 1 síma 8985524.
Gjald kr 1500
10. sept kl 09:00 - Gönguferð
um Reykjaheiði.(tveir skór)
Farið verður frá Dalvíkurkirkju
kl 09.00 og keyrt að Reykjum
í Olafsfirði. Þaðan er gengið
um Reykjaheiði til Dalvíkur.
Á leiðinni verður komið við í
Mosa, nýjum skála Ferðafélags
Svarfdæla.
1. október kl: 10:00
Karlsárfjall (tveir skór)
Gengið verður upp frá Karlsá
rétt norðan Dalvíkur. Leiðin er
tiltölulega þægileg, þó víða sé
nokkuð á brattann að sækja er
hvergi um brölt eða klifur að
ræða. Stóran hluta leiðarinnar er
gengið eftir þægilegum hryggjum
sem eru oft auðir fram eftir hausti
þó snjór sé kominn til ljalla. Ef
aðstæður em ágætar getur verið
ákjósanlegt að ganga vestur af
ljallinu niður 1 skarð sem kallast
Vik og þaðan niður 1 Karlsárdal
og heim dalinn. Karlsárfjall er
tæplega 1000 m hátt og reikna
má með frekar erfiðri 5-6 klst
göngu.
3.nóv. kl. 20.00 - Myndakvöld
frá ferðum ársins.
Nánar auglýst síðar.
Glaður ogAnna Kristin í september 2010. Mynd: Atli Rúnar Halldórsson
Anna Kristín Friðriksdóttir,
sextán vetra, og Glaður, tíu vetra, em
sigursælt par. Þau em bæði fædd og
upp alin á Gmnd í Svarfaðardal og
hafa gert garðinn frægan á mörgum
samkomum knapa og hesta. Hún
var valin íþróttamaður ársins 2010
hjá hestamannafélaginu Hring og
knapi ársins 2009 hjá Hring.
Glaður er aðalkeppnishestur
Önnu Kristínar og stendur vel undir
nafni. Geðslagið er sérlega gott og
hann er einfaldlega alltaf glaður í
bragði og til í tuskið!
Upphaflega þjálfaði Anton Páll
Níelsson, núverandi yfirþjálfari á
hrossaræktarbúinu Feti, Glað og
keppti á honum nokkrum sinnum.
Anna Kristín segir að Glaður hafi
því verið mjög vel undirbúinn
þegar hún tók við hestinum til
þjálfunar og keppni. Toni hefur líka
hjálpað henni mikið og sömuleiðis
Sölvi Sigurðarson, reiðkennari í
Hólaskóla.
Þjálfunin og ástundunin skilar
sannarlega sínu því teymið frá Grund
hefur unnið til fjölda verðlauna
og viðurkenninga. Á árinu 2009
bar hæst 1. sæti á Goðamóti á
Akureyri og 1. sæti á æskulýðsmóti
Léttis á Akureyri, 1. sæti í tölti og
fjórgangi á íþróttamóti Hrings, 1.
sæti tölti á unglingameistaramóti
UMFI, 1. sæti í unglingaflokki á
Einarsstaðamótinu í Reykjadal og
1. sæti á stórmóti Funa í Eyjafirði.
Á árinu 2010 bar hæst 1. sæti í
firmakeppni Hrings og 1. sæti 1
Fákaflugi Skagfirðinga, 4. sæti á
Islandsmóti 1 tölti á Hvammstanga
og 2. sæti í íjórgangi þar, 1. sæti 1
unglingaflokki á stórmóti Funa og
2. sæti á æskulýðsmóti Hrings.
Lífið hjá heimasætunni á Grund
snýst að verulegu leyti um hross
og reiðmennsku. Árangurinn
er í samræmi við það. Á því
máli er reyndar líka sú hlið að
Grundarbændur verða senn að
hyggja að því að byggja yfír alla
verðlaunagripina en það er önnur
saga.
ARH
Happdrætti SÍBS sendir Nordlendingum
bestu jóla- 09 nýársóskir
með þökk fyrir vidskiptin á liðnum árum
Happdrxtti SÍBS
- fyrir lífíð sjálft
Umboðsmenn Happdrxttis SÍBS á
Norðurlandi:
Hvammstangi:
Blönduós:
Skagaströnd:
Sauðárkrókur:
Hofsós:
Varmahlíð:
Siglufjörður:
Grímsey:
Ólafsfjörður:
Hrísey:
Akureyri:
Neðri-Dálksstaðir:
Grenivík:
Laugar:
Mývatnssveit:
Aðaldalur:
Húsavík:
Kópasker:
Raufarhöfn:
Þórshöfn:
Kaupfélag V-Húnvetninga, byggingavörudeild, Strandgötu 1, sími 451-2370
Kaupfélag Húnvetninga, Blönduósi, sími 452-4200
Guðrún Pálsdóttir, Bogabraut 27, sími 452-2772
Anna Sigríður Friðriksdóttir, Skógargötu 19b, sími 453-5115
Ásdís Garðarsdóttir, Kirkjugötu 19, sími 453-7305
Anna Sigríður Hróðmarsdóttir, Lundi, sími 453-8030
Guðrún Ólöf Pálsdóttir, Aðalgötu 14, sími 467-1228
Steinunn Stefánsdóttir, Hátúni, sími 467-3125
Valbúð ehf., Túngötu 17, sími 466-2450
Erla Sigurðardóttir, sími 466-1733
Björg Kristjánsdóttir, Strandgötu 17, sími 462-3265
Anna Petra Hermannsdóttir, sími 462-4984
Brynhildur Friðbjörnsdóttir, Túngötu 13B, sími 463-3227
Rannveig H. Ólafsdóttir, Hólavegi 3, sími 464-3181
Hólmfríður Pétursdóttir, Víðihlíð, sími 464-4145
Guðrún Sigurðardóttir, Hafralækjarskóla, sími 464-3585
Skóbúð Húsavíkur, Garðarsbraut 13, sími 464-1337
Skúli Þór Jónsson, Boðagerði 6, sími 465-2144
Svava Árnadóttir, Tjarnarholti 3, sími 465-1314/465-1100
Sparisjóður Þórshafnar og nágrennis, Fjarðarvegi 5, sími 468-1300
Dalvík: Kristján Ólafsson, Hafnarbraut 5, sími 466-1434