Norðurslóð - 16.12.2010, Qupperneq 9
Norðurslóð - 9
Karlakór Dalvíkur
hálfrar aldar
Eftir
Julíus Jón
Daníelsson
Mönnum ber ekki saman
um hvort karlakór
Dalvíkur var formlega
stofnaður fyrir eða eftir áramótin
1959-1960. Gerðarbækur kórsins
frá því tímabili hafa sennilega
glatast. Sá sem þetta skrifar var
einn af stofnendunum og ég man að
kórinn hóf æfíngar í vetrarbyrjun
1959. Svarfdælingar og Dalvíkingar
eru mikið kórafólk, og mönnum
leiddist að hafa engan karlakór eftir
að Stefán Bjarman fluttist frá Dalvík
árið 1956, en hann hafði stjómað
karlakómum Sindra þar í nokkur
ár. Haustið 1959 tóku nokkrir
áhugamenn sig saman, gengu í hús
á Dalvík og hvöttu söngna menn
til liðs við að stofna nýjan kór, en
höfðu áður tryggt sér liðsinni hins
ágæta og reynda tónlistarmanns
Gests Hjörleifssonar.
Ahuginn var fyrir hendi og
Karlakór Dalvíkur fæddist og fór
að æfa undir stjóm Gests. Fyrsti
formaður kórsins var Dúddi i
Lambhaga (Þorgils Sigurðsson,
póstmeistari). Kórinn hafði á að
skipa góðum raddmönnum og strax
fyrsta veturinn gat hann státað af
þrem færum einsöngvurum, sem
sungu með kómum áratugum
saman. Það vom þeir Helgi
Indriðason, Jóhann Daníelsson
og Vilhelm Sveinbjömsson. Við
Tryggvi i Brekkukoti vorum þeir
fyrstu úr sveitinni sem gengum til
liðs við kórinn. Fórum við ríðandi á
æfingar þennan vetur og geymdum
hrossin í hreppshesthúsinu norðan
við Sunnuhvol. Seinna komu
fleiri söngmenn framanað, alveg
framan úr Urðum. Þann 1. apríl
1960 sigldi kórinn á vélbátnum
Hannesi Hafsteini út í Olafsfjörð
og söng í Tjamarborg, auk
samsöngva heimafyrir. Næsta vetur
var Ingibjörg Steingrímsdóttir
söngkona og píanóleikari á
Akureyri ráðin til að raddþjálfa
kórmenn, tvo og tvo í senn. Bar það
góðan árangur.
Vorið 1962 var kórinn beðinn að
syngja á samkomu á Akureyri fyrir
fulltrúa á aðalfundi Kaupfélags
Eyfirðinga. Nokkmm dögum síðar
birtist í blaði á Akureyri grein
eftir Askel Snorrason, söngstjóra
Karlakórs Akureyrar, en hann
var viðurkenndur og góður
tónlistarmaður. Hrósaði Askell
söng karlakórsins og kallaði hann
„efnilegan ungling”. Okkur þótti
lofíð gott og efldist nú sjálfstraustið.
Þama kom líka til skila góð
söngstjóm Gests Hjörleifssonar
og raddþjálfun Ingibjargar
Steingrímsdóttur. Kórinn tók þátt í
Heklumóti sem fór fram á Akureyri
og í Húnaveri vorið 1963 og þótti
takast vel. Sjálfúm fannst mér
Heklumótið eitt ævintýri. I lokin
var haldin veisla góð í Húnaveri
með miklum ræðuhöldum. Þar
kom fram sá skemmtilegi siður
Þingeyinga að taka til máls á
mannamótum. Af sex ræðum sem
þar voru fluttar, héldu Þingeyingar
fimm og Skagfirðingar eina.
Húnvetningum og Eyfirðingum var
eitthvað stirt um málbeinið, því þeir
sögðu ekki orð. Karlakór Dalvíkur
hefúr alla sína tíð verið gildur þáttur
í menningarlífi byggðarlagsins.
Hann er einhver skemmtilegasti
félagsskapur sem ég hef verið í og
enn hef ég miklar taugar til hans. En
svo langt er liðið síðan ég flutti úr
héraði, að ég á þess engan kost að
rekja sögu hans nánar, að öðru leyti
en því að eftir Gest Hjörleifsson
hafa söngstjórar kórsins verið
Kári Gestsson, ensk stúlka að
nafni Antonía Ogonowsky, Jóhann
Olafsson og Guðmundur Oli
Gunnarsson, núverandi kórstjóri.
Eg óska Karlakór Dalvíkur allra
heilla í bráð og lengd.
Júlíus Jón Daníelsson
Jólatónleikar
Sameiginlegir Jólatónleikar Karlakórs Dalvíkur
og Sölku Kvennakórs verða í Dalvíkurkirkju
miðvikudaginn 29. desember kl:20.30
Þar verða flutt Ijúf jólalög auk þess sem
kórarnir munu flytja nokkur lög sameiginlega.
Stjórnandi Karlakórs Dalvíkur: Guðmundur Óli
Gunnarsson
Stjórnandi Sölku Kvennakórs: Margot Kiis
Undirkeikari: Daníel Þorsteinsson
Miðaverð aðeins kr: 2000
Karlakór Dalvíkur
Salka Kvennakór
Karlakór Dalvíkur 17. júní 1962. Myndin er tekin sunnan við Dalvikurkirkju eftir tónleika.
Fremri röð: Jóhann Jónsson, Jóltannes Haraldsson, Hjalti Haraldsson, Arni Arngrúnsson, Gunnar Friðriksson,
Ingólfur Jónsson, Þorgils Sigurðsson, Anton Angantýsson, Haukur Kristinsson, Arni Guðlaugsson, Stefán Snœvarr.
Aftari röð: Sigtryggur Arnason, Heiðar Arnason, Jóhann Daníelsson, Einar Hallgrímsson, Baldvin, Magnússon,
Kristinn Þorleifsson, Hjálmar Júlíusson, Helgi Þorsteinsson, Halldór Gunnlaugsson, Gunnar Tómasson, Júlíus
Kristjánsson, Hafsteinn Pálsson, Helgi lndriðason, Halldór Jóltannesson, Anton Guðlaugsson, Arni Óskarsson,
Júlíus J. Daníelsson, Gestur Hjörleifsson söngstjóri og Guðmundur Jóltannsson undirleikari.
Wgthm^
4.
Karlakór Dalvikur 1975 Mynd á plötuumslagi tekin í Grímsey að loknum tónleikum.
Aftasta röð: Jítlíus J. Daníelsson, Guðmundur Jóhannsson undirleikari, Vilhelm Sveinbjörnsson , Þorgils
Sigurðsson, Halldór Jóhannesson, Oskar Pálmason, Hafsteinn Pálsson, Jónas Ingimarssoit, Ingólfur Jónsson,
Ragnar Gunnarsson, Hjalti Haraldsson, og Heimir Kristinsson. Fyrir framan þá: Vilhjáhnur Björnsson,
Hallgrímur Einarsson, Guiinar Jónsson, Armann Gunnarsson, Ingvi Baldviitsson, Rafn Arnbjörnsson, Haukur
Kristinsson, Einar Hallgrímsson, Júlíus Friðriksson og Jóhann Antonsson. Þar fyrir framan: Arni Oskarsson,
Björit Daníelsson, Anton Angantýsson, Jóhanit Friðgeirsson, Jón Pálsson, Stefán Friögeirsson, Sigurður
Marinósson, Jóliann Daitíelssoit og Stefán Snœvarr Fremst: Rögnvaldur Friðbjörnsson, Gestur Hjörleifsson
söngstjóri, Halla Jónasdóttir einsöngvari og Hilmar Daníelsson.
LlÉÉslOSmkS
Karlakór Dalvíkur eftir rokktónleika í Bergi í nóvember 2009. Efsta röð á pölluin f.v.: Guðinundttr Pálsson,
Friðrik Friðriksson, Kristján E Snorrason, Kristján E Hjartarson, Einar Arngrímsson, Ómar Arnbjörnsson,
Óli Þór Jóhannsson, Sigurður Marinósson, Guðmundur Kristjánsson, Friðrik Vilhelmsson, Valgeir
Vilinundarson og Vignir Hallgrímsson. Nœst efsta röð ápölluin f.v.: Friðjón Sigurðsson, Víkingur Daitíelsson,
Júlíus Baldtirsson, Björn Björnsson, Jóliann Antonsson, Björn Þór Olafsson, Hilntir Sigurðsson, Agúst
Ellertsson, Sínton Ellertsson og Hallgrímur Hreinsson. Fremsta röð á pöllmn f.v.: Sœvar Ingason, Víkingur
Arnason, Oskar Pálmason, Þór Ingvason, Steinar Steingrímsson, Hallgrímur Hreinsson, Júlíus Viðarsson,
Iitgvar Kristinsson, og Vilhjálmur Björnsson. Umhverfis flygil f.v.: Daníel Þorsteinsson píaitó, Guðmundur
Óli Giinnarsson, stjórnandi, Halldór G Hauksson, trommur, Gunnlaugur Helgason, bassi, ,Hallgrímur
Ingvarsson, gítar, og Matthias Matthíasson, einsöngvari.