Norðurslóð - 16.12.2010, Síða 10
10 - Norðurslóð
Okrýndur Islandskóngur á Urðum
Hvemig má það vera að
„inn mesti höfðingi á
íslandi, sem vitað er um
á 14. öld, hafði bólfestu norður á
Urðum, í einhverjum afskekktasta
dal á Islandi“? spyr Jósafat
Jónasson ættfræðingur í grein
sinni um rannsóknir eldri ætta í riti
Sögufélagsins, Blöndu, snemma
árs 1940. Hann svarar spurningunni
sjálfur með því meðal annars að
rekja skyldleika þessa höfðingja,
Þorsteins lögmanns Eyjólfssonar,
til Urðamanna hinna fomu.
Urðir í Svarfaðardal voru þannig
á 14. öld hvorki meira né minna
en setur stórhöfðingja. Húsbóndi
þar á bæ, Þorsteinn Eyjólfsson
, var lögmaður alls landsins
1369-1373 og sem slíkur æðsti
fulltrúi þjóðarinnar og æðsti
dómari landsins. Hann var og
hirðstjóri Norðlendingafjórðungs
1358-1360 og landsins alls 1387
eða með öðrum orðum æðsti
umboðsmaður konungs á íslandi.
Jósafat ættfræðingur, sem var
einn af stofnendum Sögufélagsins
snemma árs 1902 og skrifaði
reyndar undir höfundamafninu
Steinn Dofri, skefur ekki utan af
hlutunum í ættfræðigreininni sinni
í febrúar 1940. Hann segir þar að
lögmaðurinn á Urðum hafi verið
merkasti maður sem „frásagnir
annála og skjala 14. aldar hefja yfir
alla aðra íslenzka höfðingja, er uppi
Höfðingi og leiguliðar (Lýsiitg úr
voru á síðari helmingi 14. aldar
og virðist hafa verið inn ókrýndi
konungur Islendinga."
Sægreifi var lögmaðurinn ekki en
landgreifi vissulega. Hann átti jarðir
víða um land, einn eða með sonum
sínum. Þeir feðgar áttu til dæmis
Grund í Svarfaðardal og sömuleiðis
Grýtubakka í Höfðahverfi. I
testamenti sínu segir lögmaðurinn
að Gmnd sé besta jörð sem hann
eigi norðanlands og hugsanlegt er
miðaldahandriti)
reyndar að hann hafi búið þar um
skeið, seint á ævinni. Þorsteinn
lögmaður eignaðist líka Gmnd í
Eyjafirði og í Fljótum áttu Þorsteinn
og Arnfmnur sonur hans heilt safn
af bújörðum. Lögmaðurinn átti
Helgustaði, Hamar og Bakka en
sonurinn, Lund og Nefstaði.
Þar með er ekki sagan öll í
þessum efnum, því Sumarliði ,
sonur Þorsteins lögmanns, bjó á
Skógum undir Eyjafjöllum og þar
mun einnig hafa verið bróðir
hans, Magnús. Þeir áttu Skóga
ásamt föður sínum, Þorsteini
á Urðum. Lögmaðurinn gat
því riðið víða um héruð og
gist „heima hjá sér“ í sveit
eftir sveit! Reyndar má ráða
af grein Steins Dofra að ekki
hafi ríkt eindrægni meðal
ættfræðinga um að Magnús á
Skógum hafí verið sonur Þorsteins
lögmanns á Urðum. Steinn Dofri er
hins vegar sannfærður um faðerni
bóndans á Skógum og sendir
efasemdarmönnum kalda kveðju.
Hann segir að dr. Jón Þorkelsson
skjalavörður hafi dregið þá ályktun
að Magnús á Skógum hafi verið
Þorsteinsson lögmanns og bætir
við: „Og þessi ályktun J.Þ. er án
efa rétt, þó að sumir niðurrifsmenn,
sem aldrei vilja vita neinn sér
fremri að skarpskyggni, hafi viljað
hafna þessu.“
Ættfræðingar voru heldur ekki
á einu máli um hver eiginkona
lögmannsins á Urðum hafi verið.
Sumir héldu því fram að sú hafi
heitið Amþrúður Magnúsdóttir og
í Islendingabók á Vefnum er nefnd
til sögu sem eiginkona Þorsteins
EyjólfssonaráUrðum enóvísthins
vegar að hún hafi verið móðir barna
lögmannsins.
Steinn Dofri fullyrðir hins vegar
að það sé misskilningur að kona
Þorsteins hafi verið Amþrúður
þessi „heldur án efa sú Kristín
Þórðardóttir sem Gottskálksannáll
segir, að látist hafi 1375.“ Hann
segir að móðir Kristínar hafi verið
frá Lönguhlíð í Hörgárdal og þannig
hafi sú jörð komist í eigu Þorsteins
lögmanns, auk Bræðratungu og
fleiri jarða fyrir sunnan. Sé þetta
rétt koma hér með í leitimar enn
fleiri bújarðir í eigu Urðalögmanns.
Steinn Dofri segir að Þorsteinn
lögmaður hafi eignast 11 böm, 9
drengi og 2 stúlkur en tekur fram
að óvíst sé að bömin hafi öll verið
sammæðra. Tveir Þorsteinssynir
urðu prestar og einn gerðist
hirðstjóri á Urðum. Tignarembætti
kóngsins yfir Islandi hefur því
gengið í erfðir, svona rétt eins og
foringjatignin í Norður-Kóreu á
okkar tímum. Segir svo ekki fleira
af höfðingjum og landeigendum í
Svarfaðardal á 14. öld.
-ARH
Altarisgöngukj óll
Isuinar sem leið var
settur upp til sýnis
á Byggðasafninu
Hvoli gamall sparikjóll
úr eigu Steinunnar
Sigurðardóttir (1844-
1922) frá Sælu í
Skíðadai. Kjóllinn
barst safninu aó gjöf
frá afkomendum
Elínar Tómasdóttur og
Angantýs Amgríms-
sonar en Steinunn var
heimilisföst hjá þeim
síðustu æviár sín.
Kjóllinn er talinn vera
frá tímabilinu 1865-
1880. Steinunn notaði
hann eingöngu við allra
hátíðlegustu tækifæri
s.s. við altarisgöngu
en á dánarbeði tók hún
loforð af Elínu um að KjóUinn upp settur á Hvoli
hann skyldi varðveittur.
Það var sannkallað lán fýrir Byggðasafnið Hvol því slíkar flíkur em
ekki á hverju strái nú til dags.
Aður en kjóllinn var settur upp til sýnis var hann forvarinn á
Þjóðminjasafninu, þveginn upp úr þar til gerðri sápu og þurrkaður eftir
kúnstarinnar reglum og farið yfir sauma án þess að breyta neinu af
seinni tima lagfæringum.
Að sögn Irisa Olafar Sigurjónsdóttur forstöðumanns sem forvarði
kjólinn er hann handsaumaður af kunnáttu og miklum hagleik.
Væntanlega hefur Steinunn fengið hann að gjöf. Allar síðari breytingar
hafa annað spor og grófara en upprunalegur saumaskapur. Hann er úr
svörtu upplitaðu bómullarefni en hvít líning þrædd í hálsmál og framan
á ermar er seinni tíma viðbót. Tölur eru úr málmi með glerkúlu í
miðjunni.
Gamlar gersemar láta
ekki alltaf mikið yfir
sér og leynast sjálfsagt
víðar en fólk gerir sér
grein fyrir.
Kjóllinn var þveginn
nteð forvörslusápu í
sérstöku þvottakeri á
Þjóðminjasafni Islands
Lögin hans Jóa Dan
Tónleikar í Menningarhúsinu Bergi Dalvík 2. janúar 2011
Tónleikarnir eru í tilefni af útgáfu safndisksins
„Enn syngur vornóttin". Hljómdiskurinn hefur að geyma
upptökur sem til eru með söng Jóhanns Daníelssonar.
Á tónleikunum verða flutt flest af þekktustu lögunum
sem Jóhann flutti og eru á disknum.
Flytjendur eru Pétur Björnsson tenór, Jón Svavar Jósefsson bariton
ásamt Karlakór Dalvikur undir stjórn Guðmundar Óla Gunnarssonar.
Undirleikari Daníel Þorsteinsson.
Tónleikarnir verða sunnudaginn
2. janúar 2011 kl 16,00.
Forsala aðgöngumiða verður í Bergi 29. og 30. des. kl 16 -18,
sími 893 1177. Miðaverö kr. 2.500,-. Einungis greitt með reiðufé.
Karlakór Dalvíkur mun sjá um sölu hljómdisksins í
Dalvíkurbyggð. Þess utan má panta diskinn
í netfangi ffmj@simnet.is eða síma 893 1177.
Verð disksins er kr. 2.500,- auk sendingarkostnaðar.
Diskurinn ertil sölu í versluninni Duxiana Ármúla 10
Reykjavík
Tónlistarfélag Dalvíkur
Karlakór Dalvikur, stjómandi og undirleikari
Jón Svavar Jósefsson
Pétur Björnsson
Menningarsjóður Dalvíkurbyggðar
i^SPARISJOÐURINN
Dalvík
Landsbankinn
# Arion banki