Barnablaðið - 26.02.2017, Page 5
Og spilið þið alltaf eftir nótum?
Við æfum eftir nótum en svo reynum við að læra
lögin utanbókar áður en við komum fram.
Og dansið þið líka?
Já, þetta er alveg sýning þegar við komum fram.
Stundum erum við með heilu leikþættina og
gefum jafnvel frá okkur ýmis dýrahljóð.
Hvernig viðbrögð fáið þið?
Vinir okkar skilja þetta ekki og hlæja að okkur.
En það er allt á góðum nótum. Okkur finnst
þetta gaman og það skiptir öllu. Okkur kemur
líka öllum svo vel saman. Allavega ennþá. Við
fáum líka mjög góð viðbrögð þegar við spilum á
tónleikum eða komum fram á skemmtunum.
Hvar hafið þið verið að koma fram?
Mikið á elliheimilum, segja þau öll í kór
og hlægja. Við höfum líka leikið á
þorrablótum, á sumardaginn
fyrsta og Barnamenningarhá-
tíð. Svo höfum við komið
fram á
Nótunni
sem er
uppskeru-
hátíð tónlist-
arskólanna.
Vorum á Siglu-
firði á þjóðlaga-
hátíð. Svo erum
við að fara til Spánar
í sumar og erum að safna. Það
er hægt að panta okkur við ýmis
tækifæri. Við lofum frábærri
skemmtun. Það er hægt að finna
upplýsingar um okkur á Facebook.
Þjóðlagatónlist er skemmtileg
fyrir alla aldurshópa, ekki bara
fyrir gamalt fólk eins og einhverjir
halda. Við höfum alltaf fengið bros
frá okkar áhorfendum.
Hvað er á efnisskránni hjá ykkur?
Sígild þjóðlög. Gömul íslensk lög
og jafnvel lög sem fólk þekkir ekki.
Það er gaman að halda þessari
hefð á lofti. Við erum með hátt í 30
lög á prógramminu.
Og eruð þið að safna fyrir Spánarferðinni?
Já, fyrst byrjuðum við að safna okkur fyrir
búningunum. Næst á dagskrá er að safna fyrir
utanlandsferð. Förum í vikuferð til Spánar í júlí.
Tökum þar þátt í þjóðlagahátíð þar sem 20
hópar frá hinum ýmsu löndum koma fram. Við
hlökkum mikið til. Það verður fróðlegt að sjá
hvernig gengur að spila í þjóðbún-
ingunum úti í hitanum.
Hvað er þjóðlagatónlist?
Þjóðlag er lag sem geng-
ið hefur á milli manna
frá örófi alda og enginn
veit hver hefur samið
það. Svo fjallar þetta
mikið um lífið heima
á bæjunum. T.d. um
kindur, krumma og þess
háttar. Þetta er tengt hefð-
um Íslendinga. Þjóðlagatónlist
er mjög frjálsleg og skemmtileg.
Mikið um sögur, ljóð og þulur.
Hvað er skemmtilegast við þetta?
Félagsskapurinn. Svo er mjög gaman að spila
fyrir fólk. Þetta er líka mjög góð æfing í því að
koma fram. Við erum alltaf brosandi og hress.
Við fáum einmitt stundum fólk til að syngja með
okkur og taka þátt.
Og þið komið alltaf fram í þjóðbúningum?
Já, við tókum það upp áður en við kepptum til
úrslita á Nótunni. Þá fóru Eydís og mömmurnar
í það að græja búninga. Það hefur verið mikill
munur að koma fram eftir að við tókum þetta
upp.
M
yn
di
r:
Kr
is
tin
n
M
ag
nú
ss
on
„Já,
þetta er
alveg sýning þegarvið komum fram. Stund-um erum við með heiluleikþættina og gefumjafnvel frá okkur
ýmis dýrahljóð.
BARNABLAÐIÐ 5
DAGUR
JÓNÍNA
KRISTJANA
VALA
Hekla Anna og
Sóley leika á fiðlu.
Bræðurnir Elvar og
Dagur leika á selló
og kontrabassa.
Jónína, vala og
Kristjana spila
á þverflautu.