Morgunblaðið - 03.03.2017, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. MARS 2017
Frá
morgnifyrir allafjölskylduna í
þínu
hverfi t i l kvölds
Sími: 411 5000 • www.itr.is
Laugarnar í Reykjavík
NÆRING FYRIR LÍKAMA OG SÁL
Þegar rýnt er í ríkisreksturinnkemur margt skrýtið í ljós.
Fyrirspurn Óla Björns Kárasonar til
forsætisráðherra hefur til dæmis
leitt í ljós að gjaldeyriseftirlit Seðla-
banka Íslands hefur ekki aðeins
haldið sér eftir öll
þessi ár sem liðin
eru frá falli bank-
anna, heldur fer
það vaxandi ár
frá ári.
Árið 2010 var gjaldeyriseftirlitiðmeð 10 starfsmenn en um síð-
ustu áramót voru þeir orðnir 24.
Árið 2010 kostaði gjaldeyriseft-irlitið 81 milljón króna en á síð-
asta ári var kostnaðurinn kominn
upp í 314 milljónir króna.
Þessi þróun er sérstaklega at-hyglisverð í ljósi þess að unnið
hefur verið að því á síðustu árum að
draga úr höftunum, en öll árin hef-
ur kostnaður gjaldeyriseftirlitsins
þrátt fyrir það farið vaxandi.
Og vöxturinn er orðinn svo yfir-gengilegur að í fyrra eyddi
Seðlabankinn 1,2 milljónum króna
alla virka daga ársins til að fylgjast
með gjaldeyrisnotkun landsmanna.
Það hefur áður sýnt sig – á alltannan hátt að vísu – að gjald-
eyriseftirlit Seðlabankans er alger-
lega stjórnlaust.
En nú, þegar komið er í ljós aðstjórnleysið nær einnig til
rekstrarins, hlýtur að vera nóg
komið.
Það hlýtur að vera hægt að losalandsmenn undan þessu eft-
irliti, hætta haftabúskapnum og
finna þessum 24 starfsmönnum upp-
byggilegri verkefni.
Gróskan er góð, en
þó ekki hvar sem er
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 2.3., kl. 18.00
Reykjavík 0 skýjað
Bolungarvík 0 léttskýjað
Akureyri 0 skýjað
Nuuk -7 léttskýjað
Þórshöfn 7 alskýjað
Ósló 1 léttskýjað
Kaupmannahöfn 4 léttskýjað
Stokkhólmur 4 léttskýjað
Helsinki 2 skýjað
Lúxemborg 8 skýjað
Brussel 9 léttskýjað
Dublin 7 rigning
Glasgow 6 skúrir
London 10 skýjað
París 11 skýjað
Amsterdam 7 léttskýjað
Hamborg 6 skúrir
Berlín 5 skýjað
Vín 12 léttskýjað
Moskva 2 rigning
Algarve 17 léttskýjað
Madríd 13 léttskýjað
Barcelona 17 léttskýjað
Mallorca 16 léttskýjað
Róm 15 léttskýjað
Aþena 13 léttskýjað
Winnipeg -22 heiðskírt
Montreal -8 snjóél
New York 7 léttskýjað
Chicago 0 snjókoma
Orlando 25 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
3. mars Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 8:27 18:53
ÍSAFJÖRÐUR 8:37 18:53
SIGLUFJÖRÐUR 8:20 18:36
DJÚPIVOGUR 7:58 18:21
Ekki er vitað til þess að fólk hafi
veikst af afbrigði fuglaflensuveir-
unnar, sem greinst hefur í fuglum
víða í Evrópu frá því í október sem
leið. Líklegt er að veiran berist til
landsins með farfuglum og bendir
Matvælastofnun fuglaeigendum á að
þeir þurfi að vera viðbúnir því að
geta hýst fugla sína eða haft þá í
girðingu undir þaki.
Breiðist hratt út
Fuglaflensa í villtum fuglum og
alifuglum breiðist hratt út í Evrópu,
meðal annars þar sem íslenskir far-
fuglar halda sig á veturna. Með-
göngutími sýkingar er nokkrir dagar
og því geta smitaðir fuglar náð hing-
að áður en þeir veikjast. Veiran er
útbreiddari í villtum fuglum en var
raunin þegar þessi faraldur geisaði í
Evrópu á árunum 2006-2008 „og þeir
virðast vera helsta smitleið í ali-
fugla,“ eins og fram kemur í frétt frá
Matvælastofnun. Draga má úr smit-
hættu með því að hafa fuglana í girð-
ingum undir þaki og best að hafa þá
innandyra samfara góðum smit-
vörnum.
Matvælastofnun hvetur fólk til
þess að tilkynna stofnuninni um fund
á dauðum fuglum með því að fylla út
sérstakt eyðublað á heimasíðu
hennar.
Fuglaflensan ekki greinst í fólki
Töluverðar líkur á því að fuglaflensu-
veira berist til landsins með farfuglum
Reuters
Flensa Danskir vísindamenn kanna
dauðan fugl fyrir nokkrum árum.
Júlía Hermanns-
dóttir, söngkona
hljómsveit-
arinnar Oyama,
sem neitað var
um svokallaða
ESTA-heimild til
inngöngu í
Bandaríkin, er nú
hætt við Banda-
ríkjaförina.
Júlía fór á fund
í sendiráði Bandaríkjanna á Íslandi
og segir starfsfólkið þar hafa verið
mjög hjálplegt en það hefði ekki haft
aðgang að gagnagrunni vegabréfa-
eftirlitsins. „Ég fæ því ekki að vita
ástæðuna fyrir því að ég er flögguð
með þessum hætti,“ segir Júlía í
samtali við mbl.is. Mest hafði Júlíu
hlakkað til að hitta fjölskyldu og vini
vestanhafs, en hún var við nám í
Bandaríkjunum í nokkur ár. Í því
skyni hafði hún ákveðið að fljúga út
á undan öðrum í hljómsveitinni „Ég
get sótt um vegabréfsáritun í stað
ESTA-heimildarinnar en það mun
taka mun lengri tíma að afgreiða
slíka umsókn.“ Aðspurð segist hún
ekki hafa talað illa um Donald
Trump Bandaríkjaforseta á sam-
félagsmiðlum. „Ekkert meira en
aðrir,“ segir hún og hlær við.
Júlía
Hermannsdóttir
Meinuð
innganga
Engu nær um neit-
un á ESTA-heimild