Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.04.2017, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.04.2017, Blaðsíða 12
VIÐTAL 12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.4. 2017 þetta þarf að heyra líka af því góða. Fólk kom til mín og sagði mér sögur eins og: ég á frænku sem greindist með illkynja heilaæxli, hún dó. Fólk hafði einhverja þörf fyrir að segja mér svona. Hvernig væri bara að sleppa því ef þú hefur ekki eitthvað gott að segja!“ Ertu búin að grúska mikið á netinu? Lesa allt um svona æxli? „Nei. Það er bara slæmt sem þú lest. Ég hef alveg gúglað illkynja heilaæxli en ég ligg ekki yfir þessu. Ég veit alveg hvað illkynja heila- æxli þýðir en ég veit að kraftaverkin gerast. Mig vantaði samt það þegar Þuríður var í bar- áttunni,“ segir Áslaug og segir að hún hafi aldrei heyrt jákvæða sögu á meðan þau börð- ust sem harðast. „Aldrei, aldrei. Um neinn sem hafði lifað af illkynja heilaæxli. Engan.“ Áslaug bætir við að henni finnist að fjöl- miðlar mættu fjalla meira um þegar vel geng- ur í erfiðri baráttu sem þessari. Hún telur að fólk vilji heyra góðu sögurnar líka. „Þegar Þuríður var sem veikust þurftum við að heyra af einhverju svona en heyrðum það aldrei. Við þurfum að heyra af þessu góða. Maður þarf líka alltaf að halda í vonina. Eins sárt og það var að heyra frá læknunum að hún væri að fara frá okkur þá hef ég aldrei viljað trúa því. Ég trúi því að hún muni verða góð. Og þó ég sé alveg meðvituð um það að þetta gæti komið aftur en ég vil samt trúa hinu. Að hún haldist svona og þroskist enn frekar.“ Bjuggust allir við að hún myndi deyja? „Já, það gerðu það allir. Við töluðum ekki um það við aðra en okkar á milli töluðum við um jarðarför.“ Stöðvaðist í þroska við heilaæxlið Nú þrettán árum eftir fyrstu greiningu er Þuríður orðin fermd stúlka, gengur í Kletta- skóla og á góðar vinkonur. Þuríður er í dag með þroskahömlun og telur Áslaug hana vera með þroska á við sex ára barn. Hún gekk lengi vel í almennan skóla en unir sér betur í Kletta- skóla sem er skóli fyrir börn með sérþarfir. „Bilið breikkar alltaf þegar börn eldast og okkur fannst að það besta sem við gætum gert fyrir hana væri að færa hana í Klettaskóla. Þar er hún ótrúlega sterk. Þú sérð ekki á henni að hún sé með þroskahömlun en um leið og þú ferð að tala við hana heyrirðu það. Hún er eins og sex ára barn, hún og yngsta dóttirin ná ótrúlega vel saman,“ segir Áslaug, en sú litla er fjögurra ára. Var það þá eins og hún hefði stöðvast í þroska þegar hún greindist með æxlið? „Já, og það hjálpaði henni að hún var á und- an sínum jafnöldrum í þroska, var fljót til máls.“ Áslaug segir að kramparnir hafi skemmt heilann, frekar en æxlið sjálft. „Þegar kramparnir voru kannski fimmtíu yfir daginn. Ég held að þeir hafi skemmt meira en æxlið sjálft.“ Þuríður tekur framförum þótt þær séu hægar. „Hún er að byrja að lesa núna, þó hún sé að verða fimmtán ára. Okkur finnst það ótrúlega mikilvægt. Að hún kunni að lesa,“ segir Áslaug og útskýrir að þau viti í raun ekki hversu miklar framfarirnar verða. „Læknarn- ir segja ekkert um hvað verður. Við höldum í vonina að hún geti verið sjálfbjarga þegar hún verður eldri. En maður veit aldrei. Minn draumur væri að hún gæti búið sér í lítilli íbúð í kjallara og við fyrir ofan. Ég á mér þann draum.“ Verður hún alltaf litla barnið þitt? „Hún verður það alltaf.“ Hjálpar ömmu með fjarstýringuna Áslaug segir að Þuríður geri sér grein fyrir að hún sé ekki eins og aðrir og að hún sé veik. Í desember fékk hún botnlangakast og var lögð inn. Spítalavistin reyndist Þuríði erfið og hún gerði sér ekki alveg grein fyrir ástæðu þess að hún væri þar, að sögn Áslaugar. Gamlar minn- ingar blossuðu upp frá árunum þegar hún var sem veikust. „Það tók rosalega á. Hún áttaði sig ekki alveg á alvarleikanum, hún var inni á spítala og vissi að það var eitthvað veik- indatengt. Það var erfiður tími. Hún skildi þetta ekki alveg fullkomlega.“ Áslaug segir að Þuríður geti farið ein út að leika þar sem hún þekkir umhverfið og að hún sé alltaf með síma á sér sem hún kann vel á. „Hún kann alveg á tölvu, hún er miklu betri en ég og mjög klár í því sviði. Ef amma hennar veit ekki hvað á að gera við fjarstýringuna er hún komin. Hún er með rosalegt sjónminni og hún hefur mikinn áhuga á tölvum.“ Ég hef alltaf dýrkað börn Áslaug og maður hennar Óskar eiga í dag fimm börn. Þuríður Arna er elst, þá Oddný Erla, Theodór Ingi, Hinrik Örn og síðust kom Jóhanna Ósk. Tvö ár eru á milli allra fjögurra elstu en fimm ár liðu svo þar til yngsta barnið kom í heiminn. Þegar Þuríður greindist fyrst var Oddný smábarn og Áslaug gekk með Theodór þegar þau fóru út til Boston í fyrsta sinn. Ætlaðir þú alltaf að eignast svona mörg börn? „Það var aldrei neitt ákveðið. Ég var alltaf passandi þegar ég var lítil. Ég passaði sömu strákana í tíu ár. Mamma mín var dagmamma og ég elskaði að hafa herbergið mitt fullt af börnum frá henni. Ég hef alltaf dýrkað börn. Ég sagði í gríni í brúðkaupsþættinum Já að við ætluðum að eignast fimm. En það var sagt í djóki. Svo bara á ég fimm,“ segir hún og hlær. Fannst fólki ekkert skrítið að þú værir að eignast öll þessi börn þegar þú áttir langveikt barn? Spurði það ekkert af hverju þú værir að leggja þetta á þig? „Ég heyrði það oft. Ég var ekki að leggja þetta á mig. Þetta var guðsgjöf og hjálpaði okkur enn meira í veikindunum. En ég heyrði oft: hvað ertu að hugsa? En lífið stoppar ekk- ert þó að þú eigir veikt barn. Og við höldum áfram að lifa. Og við höfum alltaf hugsað þannig. Fólki fannst að við ættum að vera bara heima með hana í bómull. Ekki halda áfram. Þegar læknarnir sögðu að hún ætti bara nokkra mánuði ólifaða þá pöntuðum við okkur ferð fyrir alla fjölskylduna sumarið eft- ir. Hún var ekkert að fara frá okkur þótt þeir segðu það. En ef það hefði eitthvað komið fyr- ir hefði verið hægt að afbóka. Við lifum á að hafa eitthvað til að hlakka til,“ segir hún. „Og við fórum í ferðina, til Spánar.“ Og svo komu tvö börn í viðbót, þú varst ekk- ert hætt eftir þrjú? „Nei,“ segir hún og hlær. Við vorum nú eig- inlega hætt eftir fjögur en svo kom ein dekur- rófa í lokin, fædd 2013.“ Það er því mikið líf og fjör á heimilinu að sögn Áslaugar. „Okkur leiðist aldrei!“ Hvað er best fyrir Þuríði? Fjölskyldan er nýflutt í 200 fermetra raðhús en fram að þessu hafa þau öll sjö búið í hundr- að fermetrum. Áslaug er alsæl yfir öllu pláss- inu, sem þeim veitti ekki af. Eiginmaðurinn vinnur sem fjölmiðlafulltrúi KSÍ og ferðast mikið fyrir bragðið. Áslaug er heimavinnandi enda nóg að gera á stóru heimili. „Börnin eru öll í íþróttum þannig ég er frá tvö til sjö að skutlast út um allan bæ með þau.“ Og þótt lífið gangi sinn vanagang þarf samt sem áður alltaf að taka tillit til þarfa Þuríðar. Áslaug segir það ekki alltaf auðvelt fyrir systkinin að eiga veika systur, en þau þekki ekkert annað. „Við höfum aldrei falið fyrir þeim hversu alvarlega veik hún hefur verið. Séra Vigfús Bjarni ráðlagði okkur að koma hreint og beint fram. Við höfum gert það við þau og þau eru meðvituð um það hversu alvarlegt það er ef Þuríður greinist aftur. Þetta tekur líka rosalega á þau, oft. Svo verða þau stundum alveg ótrúlega sár og pirruð ef við getum ekki gert eitthvað út af Þuríði,“ segir Áslaug og tekur dæmi af því að vilja fara í gönguferð í Heiðmörk. Það sé ekki hægt því Þuríður hefur ekki burði til að ganga jafn mikið og þau. Áslaug segir að það þurfi alltaf að hugsa fyrst, hvað er best fyrir Þuríði? Oddný, sem er næstelst og tveimur árum yngri en Þuríður, hefur gengið í gegnum sætt og súrt með systur sinni. Oddný hefur fengið að fara með og fylgjast með systur sinni á þessari vegferð. „Hún hefur þurft að þroskast ótrúlega hratt. Hún gladdist með okkur þegar Þuríður prílaði upp í koju og þá var hún bara tveggja og hálfs eða þriggja ára. Hún hefur aldrei verið barn, hún hætti að leika sér að dóti sex ára.“ Það er líf eftir veikindi Áslaug lítur björtum augum til framtíðar þótt undir niðri sé alltaf til staðar kvíði. Þau hafa staðið af sér alla storma og standa sterk sam- an. Þuríður er gangandi dæmi um að lækn- isfræðin hefur ekki alltaf öll svörin, sem betur fer í þessu tilviki. Og vonin er haldreipi allra sem glíma við veikindi. Áslaug segir að lífið haldi áfram, hvað sem á dynur. „Það er alveg kvíði, bæði hjá okkur foreldrunum og systk- inunum,“ segir hún. „Ég er alltaf með kvíða, þó að hún sé alveg hress. En það er líf eftir veikindi og þú þarft að læra á það líka.“ Blaðamanni finnst fimm börn, þar af eitt langveikt, vera ærið verkefni og missir út úr sér: Þetta er svolítill pakki!? „Já, það er það. En góður pakki!“ segir hún og hlær. ’Fólk sem er að berjast viðþetta þarf að heyra líka af þvígóða. Fólk kom til mín og sagðimér sögur eins og: ég á frænku sem greindist með illkynja heila- æxli, hún dó. Fólk hafði ein- hverja þörf fyrir að segja mér svona. Hvernig væri bara að sleppa því ef þú hefur ekki eitt- hvað gott að segja! 31. desember 2006 Árið var upp og niður hjá henni Þur- íði minni, hún byrjaði í harðri krabba- meinsmeðferð í lok júní sem átti að ljúka í júlí á næsta ári en svo kom sprengjan um miðjan sept. Þuríður mín varð að hætta í meðferðinni þar sem hún var ekki að gera neitt fyrir hana og æxlið hennar orðið illkynja. Dagurinn sem okkur var tilkynnt þetta var sá versti sem ég hef upp- lifað það var eins og einhver hluti af mér dæi, vikan eftir var sú versta en það sem hjálpaði okkur í gegnum þetta allt saman var hún Þuríður mín því hún var svo ótrúlega hress þessa viku sem æxlið hennar greindist ill- kynja. 31. desember 2007 Ætla ekki að hafa neinn áramótapistil fyrir árið, þið vitið hvernig það hefur verið. Algjör rússíbani. Árið er búið að vera hrikalega erfitt, reynt mikið á allar tilfinningar, vissi ekki að það væri hægt að finna svona til í hjart- anu. Vonandi verður árið 2008 betra en þetta og það þarf nú ekki mikið til. 22. janúar 2008 Mig langaði dálítið að blogga á sunnu- dagskvöldið og segja að Þuríður mín væri á þvílíkri uppleið því helgin var svo „góð“ hjá henni (ákvað samt að vera ekki of fljót á mér því oft dettur það aftur niður um leið og ég er búin að skrifa) en svo í gærmorgun þegar ég vakti hana var allt á niðurleið. Hún stóð ekki í lappirnar, hélt varla augunum opnum og grét stanslaust. 14. desember 2009 Vorum að fá niðurstöðurnar úr heila- ritinu hjá Þuríði minni sem hún fór í fyrir viku og viti menn, í fyrsta sinn í veikindum Þuríðar minnar kemur heilaritið FULLKOMLEGA út bara eins og það kæmi út hjá mér sem heilbrigðum einstaklingi. Er lífið ekki dásamlegt og frábær byrjun á verð- andi yndislegum jólum. 12. ágúst 2010 Bráðum eru komin heil sex ár síðan Maístjarnan mín veiktist og það er lö- ööööngu komið gott af þessari veik- inda„súpu.“ Af hverju er verið að pína hana svona mikið, þetta er óendanlega sárt. Nei hún kvartar nánast aldrei en stundum langar mig að heyra hana kvarta bara svo ég fái að vita hvernig henni líður. Ekki mis- skilja mig, mig langar ekki að henni líði illa, mig langar bara heyra hvern- ig henni líður. 27. ágúst 2012 Hver hefði trúað því fyrir rúmum fjórum árum já eða tveimur að Maí- stjarnan mín væri á leiðinni upp á Esju?? Pottþétt ekki læknarnir fyrir rúmum fjórum árum því þá hefði hún átt bara nokkra mánuði ólifaða – hún hefði ekki einu sinni átt að ná 6 ára bekk. Jú, Maístjarnan mín er á leið- inni upp Esjuna með krökkunum í skólanum, nei ég hef ekki trú á því að hún fari langt en hún er samt að fara og viljinn var rosalegur þegar hún fór afstað – hún var að deyja úr spenn- ingi í gærkvöldi þegar hún var að finna lítinn bakpoka og brúsa til að taka með sér. Ég get ekki beðið með að ná í hana á eftir og heyra hvernig gekk. Brot úr bloggi Áslaugar

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.