Skátablaðið Faxi - 01.02.1995, Page 4

Skátablaðið Faxi - 01.02.1995, Page 4
4 SKÁTABLAÐIÐ Alheimsmót Skáta Skátahreyfmgin er stærsta æsku- lýðshreyfing í heiminum í dag, en innan hennar vébanda starfa nú um 26 milljónir skáta í rúmlega 130 löndum. Markmið skáta- hreyfingarinnar er að þroska böm og ungt fólk til að verða sjálfstæðir, virkir og ábyrgir einstaklingar í sam- félaginu. Leiðimar að þessum mark- miðum em einkum ijórar: þ.e. með hópvinnu, útilífi , með viðfangs- efnum af ýmsu tagi og með þátttöku í alþjóða starfi. Alþjóða starf er ekki eingöngu fólgið í ferðalögum. Með bréfa- skriftum hafa margir flokkar og sveitir eignast vini um allan heim, og árlega er haldið alheimsmót skáta í loftinu (Jamboree on the air ) J.O.T.A., en það er tveggja daga skátamót sem fer ffam með aðstoð fjarskiptatækja. Alheimsmót hafa að jafnaði verið haldin á íjögurra ára ffesti víða um heim. Fyrsta alheims- mótið var haldið í Olympia í London á Englandi árið 1920. Alheimsmótið í Hollandi sem haldið verður nú í sumar er það 18. í röðinni. Markmið með alheimsmótum er að leiða saman ungt fólk úr öllum heimsálfum, með mismunandi litarhátt og mismunandi trúarbrögð. Mótið í Hollandi í sumar veröur á svæði sem heitir Flevoland, Það er unmð land og er rétt undir sjávarmáli, en svæðið var áður hafs- botn. Áætlað er að á mótið komi um 30,þús. skátar ffá um 110 löndum. Við Jóhann Sigurður, Björgvin Hrafii, Freydís og Heiðrún Björk förum þangað í sumar, ásamt um 200 öðrum íslenskum skátum. Við erum aðeins farin aö undir- búa okkur, en það, eru bara um 3 mánuðir þar til við leggjum af stað. Þann 27. júlí eigum við skátar af landsbyggðinni að fara til Reykja- víkur en daginn eftir fljúgum við svo öll saman til Hollands. Fyrstu fjóra dagana þar munum við dvelja í tjald- búð í Wolfsburg en þaðan er tveggja klst. keyrsla til hamborgar. Fyrsta ágúst byrja svo mótið og þar verður auðvitað rosalegt fjör. Mótinu lýkur svo 11. ágúst en þá dveljum við í heimahúsum í Belgíu hjá öðrum skátum í heila fimm daga og getum við þá kynnst fólkinu þar og vonandi skoðað okkur um. Þann 16. ágústlýkur svo ferðinni því þá verður flogið til íslands. ^/lifandi rónlist um hclgnr V E I T I N G A HUSIÐ Cwpso Bárustígur 1 Sími: 11422 Hestaleigan Þoríaugargerði

x

Skátablaðið Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skátablaðið Faxi
https://timarit.is/publication/1269

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.