Skátablaðið Faxi - 01.02.1995, Page 10

Skátablaðið Faxi - 01.02.1995, Page 10
Sveitaforingjanámskeið áAkureyri nánar tiltekið í Hrafnagili Tilgangurinn með þessari ferð var að fá smá þekkingu um það hvemig á að starfa sem sveitaforingi,kynnast starfi annarra félaga og hrista aðeins upp í starfi skátafélagsins Faxa. Það var alltaf nóg að gera á sjálfu námskeiðinu. Þeir sem stóðu að námskeiðinu lögðu greinilega mikið á sig til þess að láta námskeiðið ganga upp. Við lærðum mikið á sjálfum fýrirlestrunum og ætli það hafi ekki verið vegna þess að þeir voru ekki eins niðurdrepandi leiðinlegir eins og sumir fyrirlestrar geta orðið. Þeir líktust meira samræðum heldur en fyrirlestmm. Það hefur mikið að segja að mórallin sé góður á svona námskeiðum sem hann var á þessu námskeiði. Maður kom heim með heimilisföng og símanúmer margra nýrra vina. Það var lengi vakað frameftir inná herbergjunum, stjórnendunum til mikillar gremju. Við vomm nú ekki alltaf mni því að partur af nám- skeiðinu fór fram úti í snjónum (mikla snjónum á Akureyri). Fórum við í svona ratleik um kvöld og áttum við að skjóta upp rakettu sem heppnaðist ekki alltof vel fömm ekki nánar út í það. Svo má ekki gleyma kvöldmatnum síðasta daginn sem var fimm réttuð máltíð, sem byrjaði á tekexi með kívíslími og endaði á súkkulaðidropa á piparmintuhring. Við urðum veður-teftar á Akureyri einn dag og fengum að gista í skátaheimilinu Hvammi á Akureyri. Fórum á leiðinlega mynd í bíó (Disclosure ekki sjá hana). Vöktum alla nóttina ásamt krökkum á námskeiðinu, misstum næstum því af flugi vegna samskipta örðugleika við flugvöllinn. En að öllu öðru leyti snérum við heim eftir vel heppnað námskeið, fullar af visku og erum strax famar að nota ýmislegt af henni í skátastarfinu og hefur það gengið mjög vel. Thelma, Ester, Auðbjörg og Þórey ISLANDSFLUG ÖÐRUVÍSI FLUGVÉLAR LÆGRI FARGJÖLD SKATABLAÐIÐ SIGLINGATÆKI:.........11464 FAX:..................12715 BÍLASÍMI TÓTI:....985-35000 BÍLASÍMI JÓN:.....985-38001

x

Skátablaðið Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skátablaðið Faxi
https://timarit.is/publication/1269

Link to this issue: 1. tölublað (01.02.1995)
https://timarit.is/issue/395649

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.

1. tölublað (01.02.1995)

Actions: