Skátablaðið Faxi - 01.12.1997, Blaðsíða 15

Skátablaðið Faxi - 01.12.1997, Blaðsíða 15
Flokksforingj aráðstefna Laugardaginn 1. nóvember síðast- liðinn var haldin flokksforingjaráð- stefna. Var þetta einskonar námskeið og upprifjun fyrir flokksforiingjana sem sveitarforingjar og félagsforingi Faxa sáu um. Dagskráin byrjaði um tvöleytið og var það félagsforinginn sjálfur, Páll Zóphóníasson, sem setti ráðstefnuna, eftir að búið var að skipta foringjunum í 4 flokka, Skötur: Grásleppur, Marglyttur og Blágómur. Páll talaði um áætlanagerð. Síðan tók Freydís við og hélt fyrirlestur um ábyrgð og skyldur skátaforingja og setti áheyrslu á áætlanagerð. Var nokkur umræða og fengu krakkarnir fullt af góðum hugmyndum frá henni. Þegar Freydís hafði lokið máli sínu voru allir drifnir út í góða veðrið í leiki. Eftir útiveruna var boðið upp á kakó og vöfflur með öllu tilheyrandi. Voru þetta vel þegnar veitingar. Eftir kakó héldu Júlía og Sif fyrir- lestur um ylfingastarfið. Að auki ræddu þau samstarf við foreldra og hve mikil- vægt það er að foreldrar séu líka virkir með krökkunum sínum. Aður en Einar Öm tók til máls var farið í smá leik. Eftir leikinn þá fjallaði Einar Örn um siði og venjur í skáta- starfi. Bæði hjá Bandalagi íslenskra skáta og hjá flokkunum sjálfum. Lagði hann sérstaka áherslu á að flokkar kæmu sér saman um sína eigin siði og venjur. Lét hann hvem flokk gera verkefni sem var fólgið í því að búa til setningu og slit fyrir flokksfund, -söng og -hróp og merki fyrir flokkinn. Lét hann flokkana svo sýna þetta hinum flokkunum. A eftir Einari Emi þá stigu Mummi og Hannsi á stokk og útskýrðu vörðukerfið. Kerfi sem byggist á viðurkenningum, skátarnir leysa 16 verkefni og fá ofið merki, með mynd af vörðu, til að bera á Sendurn Eyjamönnum, konum oq börnum bestu jóia oq nýárs kOeðjur SKÁTABLAÐIÐ FAXI Fríður, föngulegur og ánægður hópur að afloknu velheppnaðri ráðstefnu skátabúningnum. Svo er bara að vera duglegur og safna sem flestum merkjum. Nú var klukkan orðin sjö og kominn tími til að fara heim í mat. Páll Zóphóníasson félagsforingi sleit þá flokksforingjaráðstefnunni, allir sungu Bræðralagssönginn og að lokum var tekinn ein góð hópmynd. Sif Hjaltdal Pálsdóttir

x

Skátablaðið Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skátablaðið Faxi
https://timarit.is/publication/1269

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.