Skátablaðið Faxi - 01.12.2001, Qupperneq 8
Sveitarforingjanámskeið og
y Ifíngas veitaforingj anámskeið
Grikkir og Rómverjar mættust þann
5.-7. október á Úlfljótsvatni og varð
hörku bardagi um heimsyfirráð. En
tvísýnt var hvaða þjóð vann.
Við komum á vettfang á föstudegi um
9 leytið og var þá sett stríð!!
Rósa var hundraðshöfðingi Grikkja
og Massa hundraðshöfðingi Rómverja.
Einnig fóru á þetta námskeið Leifa,
Kristín og Flóvent. Strax var farið að
vinna að stríði sem átti að hefjast form-
lega á laugardagskvöldinu. En það sem
liðin þurftu að gera, var að byggja sér
musteri sem þeir réðu svo yfir. Farið var
í rúmið á misjöfnum tíma.
Vaknað var með látum á laug-
ardagsmorgninum sem byrjaði á
skemmtilegum á einum af fáum fyrir-
lestri og unnið var verkefni út frá
honum. Þá fórum við að síga, klifra og
margt fleira. Þetta voru mjög skemmti-
legir leikir sem við fengum að fara í!
Fyrir kvöldmat fengu allir hlutverk og
klæddu sig allir eftir því hlutverki sem
þeir fengu. Kvöldmaturinn gekk út á
ræðumennsku sem var upphaf á góðu
strfði sem hófst seinna um kvöldið.
Stríðið gekk ágætlega en leikreglur voru
flóknar. I herbúðum Grikkja gekk sú
saga að einn af Rómverjunum væri
orðin puttalaus, en það var víst hún
Leifa. Grikkir komust síðan að því að
þetta var bara lítil skráma sem betur fer.
Haldin var fjörug kvöldvaka sem stóð í
stutta stund. Að kvöldvöku lokinni var
okkur gefið kakó. Farið var að sofa seint
og síðar meir... Á sunnudeginum var
vaknað og var „ræsið“ hrein hörmung!
Hefur einhver heyrt um ræs þar sem er
hvíslað í eyru sofandi fólks. Eftir æf-
ingu á útkalli frá leiðbeinendum
námskeiðsins, var gengið frá og haldið
heim á leið. Við þurftum að bíða í
pínulitla stund í bæ sunnanlands
(Þorlákshöfn).
Fórum í Dugguna,
og borðuðum góm-
sætar pizzur. Þegar
Herjólfur birtist, við
mikinn fögnuð, var
haldið á þilfarið að
gamalli skátahefð
með svefnpokana.
Allir skemmtu sér
vel, og hlökkuðu til
að fara í heitt bað og
síðan í rúmið sitt er
heim kæmi.
Rósa og Leifa
Þóra að fá sér að borða.
Vítamín fyrir
flokksforingja
2.-4. nóvember
Við 5 hressir skátar Kristín Alda, Iris
Dögg, Þóra Birgit, Sandra Guðrún og
Alma byrjuðum á því að fara í Herjólf
kl.8:00 Þegar komið var í Þorlákshöfn
tóku hressir og skemmtlegir skátar frá
Þorlákshöfn á móti okkur og var svo
beðið eftir rútunni upp á Úlfljótsvatn.
Þegar við loksins komum þangað byrj-
uðum við á að ganga frá farangrinum.
Seinna var farið inn í leikjasal og við
fórum í leiki og kynntum okkur. Svo var
okkur gefið kvöldkaffi. Við áttum að
fara að sofa um 12:30 en vorum svo
óhlýðin að leiðbeinendurnir voru að
verða brjálaðir. Á laugardeginum vorum
við að vinna verkefni, lærðum táknmál
og fullt af skemmtilegum leikjum. Þetta
var mjög skemmtilegt námskeið og við
lærðum mikið á því
Iris Dögg, Kristín Alda og Þóra
SKÁTABLAÐI0 FAXI