Morgunblaðið - 23.06.2017, Side 6

Morgunblaðið - 23.06.2017, Side 6
6 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ 2017 G uðríður Helgadóttir garð- yrkjufræðingur, sem margir garðaunnendur kannast vel við úr þáttum Ríkissjónvarpsins Í garð- inum með Gurrý, segir við hæfi að líkja garðræktinni við langhlaup. „Maður þarf að vera iðinn við að leyfa illgresinu hvorki að blómstra né dafna því þá hefur maður smám sam- an betur í þessari baráttu. Þetta er nefnilega langhlaup,“ segir Gurrý. Líkt og fjöldi annarra jurta þá skiptist illgresi í einærar og fjölærar plöntur sem taka þarf á með mismun- andi hætti. Einært illgresi á borð við lambaklukku, dúnurt, haugarfa og krossfífil er þannig ekki mikið mál að eiga við að sögn Gurrýjar. Sparar mikla vinnu að reyta illgresið áður en það blómstrar „Hvað þessar einæru tegundir varð- ar, þá þarf maður bara að vera fljótur að reyta þær og ná þeim áður en þær blómstra,“ segir hún. Einæru teg- undirnar mynda þó gífurlegt magn af fræi „og ef maður er duglegur að ná þeim áður en þær fella fræið, þá er maður að spara sér alveg gífurlega mikla vinnu“. Við tínsluna má vel nota guðsgaffl- ana, þ.e. hendurnar, eða illgres- issköfur. „Þá er sniðugt að fara út á sólríkum degi og skafa illgresið. Láta það síðan liggja ofan á moldinni í smástund og leyfa því að þorna þar, því þá er miklu léttara að hreinsa það úr beðunum. Þetta er gott að gera áð- ur en plönturnar fella fræ.“ Gurrý segir sömuleiðis gott fyrir garðeigendur að byrja vorið alltaf á því að hreinsa allan þann arfa sem náð hefur að spíra í beðunum frá því í fyrra. „Með því er maður að vinna sér vel í haginn fyrir sumarið og þá verða það miklu færri plöntur sem koma upp yfir sumarið.“ Hún segir garðeigendur þó gera vel að hafa í huga að í gegnum árin þá séu alltaf einhverjar illgresistegundir sem ná að sá sér í beðin. „Þannig að smám saman þá safnast upp smá fræ- banki í jarðveginn.“ Þau fræ geta síð- an lifað í jarðveginum í nokkurn tíma og því er það viðbúið að um leið og farið er að hreyfa eitthvað við mold- inni muni nýtt illgresi skjóta upp koll- inum. „Flestar af þessum einæru teg- undum eru ljósspírandi, sem þýðir að fræið spírar þegar það kemst í birtu. Þessu þarf maður að vera viðbúinn þegar maður fer að hreyfa við yf- irborði moldarinnar og þá er bara að vera fljótur að taka það illgresi og koma því fyrir kattarnef,“ segir Gurrý. „Þetta er besta aðferðin til að fjarlægja þetta einæra illgresi.“ Engin ástæða sé heldur til að eitra fyrir þessum einæru plöntum. „Þær eru svo fljótar að vaxa upp og svo snöggar að spíra að þær eru bara búnar að ljúka sér af áður en nokkur efni geta verið búin að hrífa á þær.“ Gurrý segir þó einnig gefast vel að þekja beðin til að mynda með sandi, eða trjákurli sem gefist vel í trjábeð- um, því þá skyggi þekjan á einæra fræið. Síðan sé einnig fljótvirk aðferð að beita gasbrennara á einært illgresi sem er að spíra í kantinum á hellu- lögninni eða þar á milli og einfaldlega svíða það í burt. Vandamálin koma með fjölæra illgresinu Öllu erfiðara er að eiga við fjölært ill- gresi á borð við fífla, skriðsóley og hóffífil. „Fíflarnir eru til að mynda mjög snúnir viðureignar af því að þeir mynda þykka, djúpa stólparót og eru fjölærir,“ segir Gurrý. „Þessu til við- bótar þá blómstra þeir svo ótrúlega fallega á vorin og mynda í kjölfarið brjálæðislega mikið af fræi sem fýkur út um allar trissur og njóta þá gjarn- an aðstoðar hjá ungviðinu við að dreifa sér enn frekar.“ Gurrý segir hægt að nota sérstakt eitur á tvíkímblöðunga á borð við fífla í grasflötum, en kveðst þó halda að flest þeirra efna séu nú við það að detta af lista yfir leyfileg efni. Best sé því að ráðfæra sig við sérfræðinga við val á slíku eitri. „Ef slíku eitri er úðað yfir grasflöt- ina þá drepur það tvíkímblöðunga á borð við fífla og sóleyjar, en hefur ekki áhrif á grasið,“ segir hún. Ekki megi hins vegar úða slíku eitri í blóma- eða trjábeð án þess að hætta sé á að sá gróður drepist líka. „Þetta virkar á nánast allar tvíkímblaðateg- undir, þar með talin tré, utan barrtré, og á nánast allar fjölærar plöntur.“ Þeir sem ekki vilja grípa til eiturs- ins geta þá notað fíflajárn, flatt járn með klauf, og einfaldlega stungið fífl- ana upp með handafli. „Þá er járninu stungið niður með fíflinum og síðan snúið upp á og þá kemur fífillinn auð- veldlega upp úr grasflötinni.“ Það þarf þó að ná allri rótinni upp eigi fíf- illinn ekki að koma upp aftur og þá þarf stundum að stinga djúpt ofan í jörðina. „Ef það er hins vegar bara pínulítill rótarbútur eftir ofan í jörð- inni, þá er oft ekki nægur forði eftir til að fífillinn nái að koma stöngli upp á yfirborðið,“ bætir Gurrý við. Slátturinn hrekki þá líka fíflana. „Fíflarnir eru þó útsjónarsamir og ef þeir eru slegnir oftar en einu sinni þá vaxa þeir flatir. Þá fara blöðin ofan í jörðina og blómaknúpparnir liggja þá sömuleiðis alveg niður við svörðinn.“ Ýmsar leiðir til að nýta fíflana Besta leiðin sé þó sú að hætta einfald- lega að hugsa um fífla sem illgresi. „Ég ræddi þetta við eiganda gróðr- arstöðvarinnar Storð í morgun [síð- asta föstudag], þegar ég fór þangað í hvíldarinnlögn og hann sagði málið bara vera að skipta um hugarfar. Við ættum að fara að hugsa um fíflana sem góðgresi, vegna þess að fíflar eru svo miklar nytjaplöntur,“ segir Gurrý og hlær. Blómin megi steikja upp úr smjöri líkt og sveppi, eins og Anna Rósa grasalæknir mæli með, krónublöðin megi sjóða í sírópi, blöðin séu nothæf í salat og þá hafi frönsku sjómenn- irnir sem voru hér úti fyrir landi á síðustu öld grafið upp fíflarætur og fífla þegar þeir komu í land og notað sér til matar. „Hann [Vernharður Gunnarsson, eigandi Storðs] vildi meina að þetta hefði m.a. hjálpað þeim að berjast gegn skyrbjúg. Þann- ig að það eru ýmsar leiðir til að nýta þá.“ Hóffífillinn verulega erfiður viðureignar Hóffífillinn fellur hins vegar ekki í flokk góðgresis og getur verið veru- lega erfiður viðureignar. „Rætur hóf- fífilsins geta náð alveg metra niður í jörðina, auk þess sem hann er með neðanjarðarrenglur sem fara út um allt.“ Þess vegna þurfi eiginlega skurðgröfu eða jarðvegsskipti eigi að ná að losna alveg við hóffífilinn. Gurrý segist vita til þess að garð- eigendur hafi notað eitrið Round up og hafi þá penslað því á blöðin. „Það virðist vera eina almennilega aðferðin sem dugar ennþá,“ segir hún. Ekki sé hægt að úða eitrinu yfir allt beðið, án þess að drepa um leið allan annan gróður og því þurfi að setja eitrið markvisst á blöð þeirrar plöntu sem á að drepa. Hún bendir þó á að hóffífillinn virð- ist ekki standa sig vel í samkeppni við hærri plöntur eða á skuggasvæðum. „Þannig er hann oft í jaðrinum á ræktuðum svæðum. Hann vill vera þar sem er bjart og því geta hærri plöntur skyggt hann út, en það tekur tíma.“ Eins megi svelta hóffífilinn hægt og rólega með bæði þolinmæði og elju. „Plönturnar þurfa að komast upp úr moldinni og ljóstillífa til að styrkja neðanjarðarbygginguna, þannig að ef maður er duglegur við að slíta alltaf blöðin upp um leið og þau koma upp þá sveltir maður rótina smám saman. Þetta getur tekið lang- an tíma, þannig að maður þarf að vera þolinmóður,“ segir Gurrý. Full ástæða til að fara varlega Stundum getur þó komið upp sú staða að garðeigandi ákveði einfald- lega að drepa allan gróður í einhverju beða sinna og segir Gurrý Round up- illgresiseyðinn oft notaðan til þess. „Þetta er hormónaefni sem hefur al- veg gífurlega neikvæð áhrif á lífríki í vatni og sjó, en er þó enn á lista yfir efni sem má selja, þó að það detti út af listanum árið 2019.“ Fyrir sína parta þá sé henni mein- illa við slík efni og reyni að forðast þau. „En auðvitað getur komið upp sú staða að maður sé einfaldlega al- gjörlega lens og þá grípur maður kannski til þeirra aðferða sem eru fljótvirkastar.“ Góð rispa að vori minnkar vinnu sumarsins Spurð hvort gæludýraeigendur þurfi að hafa áhyggjur af að því að eiturefni geti haft slæm áhrif á heilsu dýra á borð við hunda og ketti, sem eiga til að bíta gras og naga rætur í garð- inum, segist hún telja fulla ástæðu til að vera vel vakandi gagnvart slíku. „Maður er búinn að lesa um efni sem voru talin algjörlega hættulaus og voru notuð í miklu magni og síðan hefur kemur í ljós þegar fram líða stundir að þessi efni hafa áhrif á líf- ríkið og að þó að þau séu kannski ekki að hafa bein áhrif á okkur í dag, þá geta þau haft áhrif á eitthvað sem tengist okkur.“ Gurrý nefnir býflugur sem dæmi í þessu sambandi. „Við eigum eftir að súpa svolítið seyðið af því að menn hafa verið duglegir að nota skor- dýraeitur. Þetta hefur haft það í för með sér að býflugum hefur fækkað og síðan hafa líka komið upp alvar- legar sýkingar í býflugnastofnum.“ Hún bætir við að Íslendingar séu vissulega heppnir að hafa enn hreina stofna hér á landi, „en ég held að það sé betra að fara of varlega frekar en hitt í þessum efnum“. Þetta geti þó vissulega falið í sér meiri líkamlega vinnu við að hreinsa garðana. „Góð rispa að vori þar sem maður fer út með stungugaffalinn og stingur markvisst upp illgresi á borð við skriðsóley þegar hún er að fara af stað gerir hins vegar mikið til að minnka þá vinnu, en þá er líka um að gera að byrja snemma.“ annaei@mbl.is Tímabært að líta á fífilinn sem góðgresi Það getur falist mikil gleði í því að eiga góðan garð, en það felur líka í sér mikla vinnu. Eigi gróðurinn ekki að láta í minni pokann fyrir ágengu illgresi, þá borg- ar sig að vera stöðugt á vaktinni og leyfa illgres- inu ekki að ná sér á strik. Garðurinn launar það líka vel sé byrjað að hreinsa beðin strax að vori. Morgunblaðið/Eggert Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Kátína Fíflarnir eru oft í uppáhaldi hjá börnunum, og fallegir á sinn hátt. Morgunblaðið/Árni Gulur Hóffífillinn er oft í jaðrinum á ræktuðum svæðum og virðist ekki standa sig vel í samkeppni við hærri plöntur eða á skuggasvæðum. Langhlaup „Maður þarf að vera iðinn við að leyfa illgresinu hvorki að blómstra né dafna því þá hefur maður smám saman betur í þessari baráttu“ segir Guðríður.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.