Morgunblaðið - 23.06.2017, Side 8
8 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ 2017
Þ
að er ómissandi partur af
sumrinu að borða grill-
mat. Mér finnst alltaf
svo skemmtilegt þegar
fyrstu sólardagarnir eru
á vorin og fólk byrjar að grilla,
það er einhver stemning að labba
heim í lok dags eftir góða sund-
ferð, sólin skín og grillilmurinn
liggur í loftinu, það veit á eitthvað
gott,“ segir Valentína Björns-
dóttir, framkvæmdastjóri Móður
náttúru. „Nýverið keyptum við lít-
ið grill á svalirnar þannig að það
má búast við að grilldögum sum-
arsins fjölgi hjá okkur.
Við erum mikið í bústaðnum
okkar í Grímsnesi og grillum þar,
mjög oft góða steik. Við fáum oft
matargesti, það er svo nærandi að
eiga gæðastundir með góðum vin-
um, sitja lengi og borða góðan
mat, hlæja og spjalla um lífið og
tilveruna. Nýjasta æðið hjá heima-
sætunni þegar við erum í bústaðn-
um er að fá pítsu með spældu eggi
í morgunmat beint af grillinu, það
finnst henni mjög skemmtilegt. Á
pítsusteininum verður pítsan eins
og hún sé eldbökuð, gott er að
setja eina birkigrein með á grillið,
það gefur góðan keim.“
Hollráð frá Nigellu
Hvað finnst þér sjálfri
best af grillinu?
„Það er fátt sem toppar vel
grillað íslenskt lambakjöt, við úr-
beinum gjarnan lambalæri og
skerum það í steikur. Karlinn
minn sá það hjá Nigellu í sjón-
varpinu að best er að loka kjötinu
fyrst á grillinu án þess að krydda
það. Síðan er það látið standa með
marineringunni á í um það bil 10
mínútur, þá er kjötið sett aftur á
grillið og grillað í eina til tvær
mínútur á hvorri hlið. Þessi aðferð
klikkar ekki.
Mér finnst líka mjög gott að
hafa mikið af grilluðu grænmeti
með matnum og bearnaise-sósan
er ómissandi. Af og til gerum við
líka chimichurri, sem passar ein-
staklega vel með grillmat. Stund-
um grillum við kjúkling, þá finnst
mér best að grilla hann í bitum í
álbakka og velta honum áður vel
upp úr góðri BBQ-sósu. Ég hef
gert það stundum fyrir langar
gönguferðir að búa til pastasalat
úr afganginum af kjúklingnum og
sósunni sem kemur af honum, það
er dásamlega góður fjallamatur.“
Ratar fiskmeti líka á grillið?
„Við grillum oft nýveiddan sil-
ung, setjum hann í álpappír með
smjörklípu og jafnvel góðum jurt-
um úr móanum við bústaðinn,
blóðbergi til dæmis. Grillaður lax
og stórlúða standa líka alltaf fyrir
sínu. Risarækja á spjóti með góðri
asískri marineringu er mjög góð,
það þarf bara að passa vel að
grilla hana ekki of mikið, hún þarf
mjög stuttan tíma.“
Beðið eftir ísbílnum
Hvað með grænmetið, hvað
verður helst fyrir valinu?
„Grillað grænmeti er í sérstöku
uppáhaldi. Það er svo skemmtilegt
með grænmetið að það þarf í
rauninni mjög lítið að hafa fyrir
því. Það er gott eitt og sér, beint
af grillinu, eins og til dæmis egg-
aldin, kúrbítur, rauðlaukur og
paprika. Oft kreisti ég bara sí-
trónu yfir, set nokkra dropa af
góðri ólífuolíu, gróft salt og smá af
ferskri myntu, afar einfalt og gott.
Svo má líka setja yfir grænmetið
góða satay-sósu, hún passar mjög
vel með grillbragðinu.
Mér finnst alltaf jafngaman að
taka rúnt um sveitina mína og
kaupa ferskt grænmeti beint frá
býli, eins og til dæmis á grænmet-
ismarkaðnum á Engi í Laugarási.
Við erum með lítinn matjurtagarð
við bústaðinn, þar náum við okkur
í brakandi ferskt salat með matn-
um. Þar er líka rabarbari og
stundum geri ég rabarbaradesert
á grillinu; ef við hittum á ísbílinn
er boðið upp á vanilluís með heita
rabarbaradesertinum, annars
þeyttan rjóma.
Síðla sumars er svo yndislegt að
rölta niður í garð og ná í kartöflur
með nýveidda silungnum, þær fara
gjarnan á grillið í álpappír með
smjöri, hvítlauk og kryddjurtum.
Það er mikið lostæti. Við reynum
að borða meira grænmeti, bauna-
rétti og fisk á virkum dögum,
svona til að vega upp á móti kjöt-
neyslunni um helgar. Svo breytist
neyslumynstrið á veturna, þá er
ekkert grillað enda er maður oft
búinn að fá nóg af grillmat um
haustið.“
Grillið þitt – kol eða gas?
„Núna eigum við mjög gott gas-
grill en lengi vel vorum við með
kolagrill af ódýrustu sort og létum
það bara duga. Það gat stundum
verið basl, sérstaklega ef það
rigndi hressilega og frúin á bæn-
um gaf sig ekki með grillveisluna.
Gasgrillið er miklu þægilegra og
meira hægt að stjórna hitanum og
vanda sig við matseldina. Það er
svo gott að geta slökkt á miðju-
brennaranum, til dæmis þegar er
verið að baka kartöflur eða elda
þykkari stykki. Kolagrillið hefur
alltaf sinn sjarma og maturinn
bragðast öðruvísi, en það er meiri
hætta á að hann brenni á kolag-
rilli og það er ekki æskilegt, það
getur verið hættulegt heilsunni.
Auðvitað getur maturinn líka
brunnið á gasgrilli, sérstaklega ef
það er mikil fita eða olía á matn-
um, þá kviknar oft í henni og
brennir matinn.“
Blóm úr móanum
Helstu mistökin við
grilleldamennskuna?
„Helstu mistökin eru að hafa
grillið of heitt, til dæmis þegar
grillað er kjöt, svo sem kótelettur.
Þá lekur fitan af kjötinu og það
skíðlogar í því. Þegar hitinn er of
hár er erfitt að ráða við steik-
inguna og allt brennur, það er
auðvitað svekkjandi og mikil sóun
á góðum mat. Það er ekki gott að
setja BBQ-sósu of snemma á kjöt-
ið, hún brennur mjög auðveldlega
og því er betra að pensla kjötið
með henni rétt í lokin.
Þegar ég grilla grænmeti finnst
mér best að hafa það allt tilbúið
og skorið, ég pensla það með olíu
en nota bara lítið af henni. Svo
þarf að standa yfir grænmetinu á
grillinu og passa að það brenni
ekki, það getur gerst mjög hratt.
Mér finnst líka mikilvægt að
fara varlega þegar kjúklingur er
grillaður, nota sérstök áhöld til að
snúa honum og passa vel að það
verði ekki krossmengun. Að
mörgu leyti er betra að grilla úr-
beinaðan kjúkling, kjúklingalæri
með beini eiga það til að vera
ennþá hrá inni við beinið þegar
hinir bitarnir eru tilbúnir, þetta á
sérstaklega við þegar kjúkling-
urinn er settur beint á grillið. Ég
mæli eindregið með grillstatívum
fyrir kjúklinginn, þá er auðvelt og
gott að heilgrilla hann. Best væri
að nota alltaf kjöthitamæli þegar
kjúklingur er grillaður, hann á að
vera 74° inni við bein.“
Grillsumarið 2017,
lofar það góðu?
„Þetta sumar byrjar vel, með
mörgum góðum grillmáltíðum. Það
er allt með frekar hefðbundnu
sniði í sveitinni; fallegur dúkur á
borði, bláa stellið, blóm úr móan-
um í vasa, bleik kerti og servéttur.
Sumarið í öllu sínu veldi og við
fjölskyldan þakklát fyrir að fá að
taka þátt í sköpunarverkinu.“
beggo@mbl.is
Grænmetisrúntur um sveitina
Valentína Björnsdóttir,
framkvæmdastjóri Móð-
ur náttúru, grillar oft í
sumarbústaðnum í
Grímsnesi. Nýveiddur
silungur og brakandi
ferskt grænmeti beint
frá býli ratar gjarnan á
grillið, ásamt pítsu með
spældu eggi sem er í
sérstöku uppáhaldi hjá
heimasætunni.
Morgunblaðið/Hanna
Handtök „Þegar ég grilla græn-
meti finnst mér best að hafa það
allt tilbúið og skorið, ég pensla
það með olíu en nota bara lítið
af henni,“ segir Valentína.
Þetta sumar byrjar vel,
með mörgum góðum
grillmáltíðum.
Passar í meðalstórt álform
2 stór eggaldin
salt
ólífuolía
1 meðalstór laukur, saxaður
2 hvítlauksrif
2 dósir kirsuberjatómatar
1 tsk. tómatpúré
handfylli af basilíku, gróft saxaðri
svartur pipar
salt
200 g mozzarella-ostur í vatni
parmesanostur eftir smekk
örfá basilíkublöð
Sneiðið eggaldin langsum í 1 cm þykkar sneiðar,
saltið báðum megin og látið standa í 1 klst.
Hitið olíu í potti og steikið laukinn þar til hann
brúnast aðeins. Bætið þá hvítlauknum, tómötunum og
tómatpúré út í, saltið og látið malla í ½ klst. Setjið bas-
ilíku út í og látið malla áfram í rólegheitum, smakkið
til með salti og pipar.
Þerrið vökvann af eggaldininu og steikið sneiðarnar
upp úr olíu á vel heitri pönnu, athugið, það þarf tals-
vert af olíu. Gott er að leggja sneiðarnar á eldhús-
pappír eftir steikinguna.
Setjið þunnt lag af tómatsósunni í álform. Raðið
eggaldinsneiðum ofan á. Setjið þunnt lag af mozz-
arella-osti, parmesanost og 3-4 basilíkublöð, þá lag af
tómatsósunni og síðan koll af kolli þar til allt hráefnið
er búið.
Bakið á grillinu í sirka 30-40 mín.
Látið standa í 15 mín.
Borið fram með brakandi fersku grænu salati.
Morgunblaðið/Hanna
Eggaldin með
parmesan
Hlutið kjúklinginn í 4 bita og setj-
ið hann í álbakka. Kryddið með
salti og pipar og vænni smjör-
klípu.
Setjið álbakkann á miðlungs-
heitt grillið og eldið kjúklinginn í
sirka 15 mínútur, snúið honum af
og til á meðan.
Hellið yfir kjúklinginn BBQ-
sósu, ekki skera hana við nögl, og
grillið í sirka 15 mínútur í viðbót,
snúið kjúklingnum af og til eins
og fyrr.
Þessi aðferð miðast við gasgrill
með loki, ef þetta er gert á opnu
grilli þarf að setja álpappír yfir
kjúklinginn.
Með þessu er upplagt að bera
fram grillað grænmeti og kart-
öflumús.
BBQ-kjúklingur á grillinu