Barnablaðið - 18.06.2017, Side 4
BARNABLAÐIÐ4
Ísgerður Elfa Gunnarsdóttir krakka-
fréttakona á RÚV er komin í sum-
arfrí og ætlar að njóta þess að vera
í sumarbústað í fríinu. Hún segir að
sumir haldi að hún sé Dótadreifarinn,
en það sé alls ekki rétt.
Í hvaða skólum hefurðu verið?
„Ég var fyrst í Melaskóla en svo fluttum við til
Los Angeles þegar ég var 9 ára og þá fór ég í tvo
skóla þar, fyrst Victor Elementary og svo Bert
Lynn Middle school áður en við fluttum heim. Þá
fór ég í Hagaskóla og svo Verzló.“
Manstu hvað þig langaði að verða þegar þú
varst lítil?
„Mig langaði á tímabili að verða tungumála-
fræðingur, held það hafi verið af því við fluttum
út. Mér fannst nefnilega svo skemmtilegt að
læra mismunandi hreima í enskunni. Svo fór ég
í leiklistarnám í London þar sem hreimar spiluðu
stórt hlutverk í öllu sem við vorum að gera svo
ég vil meina að ég hafi eiginlega látið þetta
markmið rætast að vissu leyti þar.“
Ísgerður er fallegt nafn. Veistu af hverju
mamma þín og pabbi skírðu þig Ísgerði?
„Takk fyrir það, langamma mín hét þessu nafni
og afa minn og bræður hans langaði víst alla til
að skíra í höfuðið á henni. Afi minn var dáinn
þegar ég fæddist þannig að ég er skírð í höfuðið
á mömmu hans en honum til heiðurs. Mér hefur
alltaf þótt mjög vænt um þetta nafn og er víst
fyrsta sem ber það sem læt kalla mig Ísgerði en
ekki einhverju gælunafni. Ég var alltaf langyngst
en nú er ég orðin elsta Ísgerðurin og alveg 20
árum eldri en næsta. Held ég sé eina sem var
gefið þetta nafn á u.þ.b. 60 ára tímabili.“
Er skemmtilegt að vinna við Krakkafréttir?
„Já, það er mjög skemmtilegt. Mér finnst
sérstaklega gaman þegar við förum og hitt-
um krakka sem eru að gera eitthvað sniðugt.
Annars er líka bara svo gaman hvað okkur er vel
tekið, og hvað fólk virðist almennt vera ánægt
með það sem við erum að gera. Það skiptir máli
að skilja hvað er að gerast í kringum sig nær
og fjær og krakkar eiga fullan rétt á því að vera
upplýst um menn og málefni.“
Nú er að koma sumar og Krakkafréttir fara í
frí. Hvað ætlar þú að gera í sumar?
„Ég er voða lítið búin að skipuleggja það. Fer
reyndar í smá frí með vinkonum mínum til Spán-
ar í nokkra daga og svo ætla ég bara að verja
tíma með fjölskyldu og vinum og njóta íslenska
sumarsins og birtunnar. Fjölskyldan mín á bú-
stað sem er yndislegt að vera í svo ég nýti mér
það eflaust mikið.“
Heldurðu að þú lesir einhverjar bækur í sumar-
fríinu og hvaða bækur langar þig að lesa?
„Já, alveg pottþétt. Ég elska að lesa og hef alltaf
gert. Lærði m.a.s. að lesa þegar ég var 4 ára í
„pabba-skóla“ því ég gat ekki beðið eftir að byrja
í skóla. Þriðja bókin eftir Khaled Hosseini, sem
skrifaði Flugdrekahlauparann, And the mounta-
ins echoed, er á listanum. Svo er mig farið að
langa að lesa Dalalíf aftur eftir Guðrúnu frá
LÆRÐI AÐ
LESA Í
„PABBA-
SKÓLA“
Ísgerður Elfa kemur aftur í Krakkafréttir í haust
Ísgerður Elfa hefur sagt
margar fréttir í Krakkafréttum og
henni finnst mjög gaman í vinnunni.