Víkurfréttir - 05.02.2004, Síða 17
I 17
Álaugardag verður mikið um dýrðirfyrir Körfuknattleiksáhugamennþegar úrslitaleikirnir í bikarkeppnum
KKÍ og Lýsingar fara fram í
Laugardalshöllinni.
Í kvennaleiknum mætast tvö sigursælustu lið
sögunnar, KR og Keflavík, en þau hafa marga
hildi háð í gegnum tíðina.
Um þessar mundir virðast Keflvíkingar vera
sterkari aðilinn þar sem þær hafa verið á góðri
siglingu í síðustu leikjum á meðan KR hefur
slegið eilítið slöku við. Því má þó ekki gleyma að
KR stúlkur hafa unnið Keflvíkingana í vetur og
eru til alls líklegar. Lykilleikmenn KR eru Hildur
Sigurðardóttir og Katie Wolfe sem hafa borið
liðið uppi með sannfærandi frammistöðu í vetur.
Hjá Keflavík eru margar stúlkur sem geta valdið
KR skráveifum og má þar fyrst telja Birnu
Valgarðsdóttur og Erlu Þorsteindóttur, sem geta
unnið heilu leikina upp á sitt einsdæmi ef þær
eiga góðan dag, að ógleymdri Önnu Maríu
Sveinsdóttur sem býr yfir mikilli reynslu og ski-
lar alltaf sínu fyrir liðið.
Í karlaleiknum eigast við hinir fornu fjendur
Njarðvík og Keflavík. Leikir þessara liða vekja
alltaf athygli, enda hafa liðin verið í allra fremstu
röð í áraraðir og er óhætt að lofa sögulegri
viðureign.
Njarðvíkingar eru þó í miklum vandræðum með
leikmenn sína þar sem Brandon Woudstra og
Brenton Birmingham hafa verið meiddir og Páll
Kristinsson hefur verið dæmdur í leikbann. Því
hafa þeir fengið til liðs við sig bandarískan leik-
mann að nafni Larry Bratcher. Njarðvíkingar
hafa ekki riðið feitum hesti frá síðustu
viðureignum og töpuðu fyrir Keflavík og Hamri
um síðustu helgi og er því auðveldara að spá
Keflvíkingum sigri í leiknum. En vissulega hafa
Njarðvíkingar mörgum sterkum mönnum á að
skipa eins og Friðriki Stefánssyni og Guðmundi
Jónssyni, sem hafa sýnt hvers þeir eru megnugir
þegar á móti blæs.
Keflvíkingar hafa í sjálfu sér ekki verið að spila
mjög sannfærandi að undanförnu og eiga líka við
meiðsli að stríða þar sem Falur Harðarson og
Fannar Ólafsson verða fjarri góðu gamni. Hins
vegar er ekki hægt að líta framhjá hinni miklu
breidd sem þeir hafa auk þess sem þeir geta
fengið út úr mönnum eins og Nick Bradford,
Derrick Allen og fyrirliðanum Gunnari
Einarssyni á góðum degi.
Róðurinn verður þungur fyrir Njarðvíkinga, en
Keflavíkingar hafa lært af reynslunni að það bor-
gar sig aldrei að afskrifa þá grænu fyrirfram og
verður leikurinn án nokkurs vafa æsispennandi
og skemmtilegur.
Keflavík
5 Arnar Freyr Jónsson
6 Davíð Þór Jónsson
7 Jón Norðdal Hafsteinsson
8 Sverrir Þór Sverrisson
9 Hjörtur Harðarson
10 Magnús Þór Gunnarsson
11 Halldór Halldórsson
12 Nick Bradford
13 Gunnar Einarsson
14 Gunnar Stefánsson
15 Derrick Allen
Þjálfarar: Falur Harðarson og
Guðjón Skúlason
Njarðvík
4 Friðrik E Stefánsson
5 Larry Bratcher
6 Kristján R Sigurðsson
7 Egill Jónasson
9 Guðmundur Jónsson
11 Ólafur Ingvason
12 Helgi M Guðbjartsson
13 Ragnar Ragnarsson
14 Brandon Woudstra
15 Halldór R Karlsson
Þjálfari: Friðrik Ragnarsson
Keflavík
5 Birna Valgarðsdóttir
6 Bryndís Guðmundsdóttir
7 Marín Rós Karlsdóttir
8 Erla Reynisdóttir
9 Rannveig Randversdóttir
11 Svava Ósk Stefánsdóttir
12 Erla Þorsteinsdóttir
13 Halldóra Andrésdóttir
14 Anna María Sveinsdóttir
15 María Ben Erlingsdóttir
Þjálfari: Hjörtur Harðarson
KR
4 Sigrún Skarphéðinsdóttir
5 Lilja Oddsdóttir
6 Sigrún Hallgrímsdóttir
7 Georgia O Kristiansen
8 Tinna Björk Sigmundsdóttir
9 Guðrún Sigurðardóttir
10 Hildur Sigurðardóttir
11 Kristín A Sigurðardóttir
12 Halla Jóhannesdóttir
13 Katie Wolfe
14 Hafdís Gunnarsdóttir
Þjálfari: Gréta María
Grétarsdóttir
Spennan í hámarki!
Leikmenn og þjálfarar
Bikarbladid 4.2.2004 14:39 Page 17