Víkurfréttir - 04.05.2005, Blaðsíða 19
VÍKURFRÉTTIR I 18. TÖLUBLAÐ I MIÐVIKUDAGURINN 4. MAÍ 2005 I 19
Þessi ungi ökuþór var ansi brattur eftir að hann hafði ekið hring
á Go-kartbraut Reis á dög-
unum. Hann var að reynslu-
aka nýjum rafbíl sem Stebbi í
Reis hefur nýlega fest kaup á,
en möguleiki er á að í sumar
geti yngri kynslóðin keyrt
slíka bíla á minni brautinni.
Ökumaðurinn, Stefán Ari,
verður fimm ára gamall í
sum ar og fór létt með að
keyra hringinn aleinn.
Annars er sumarver tíð in
komin í gang á Go-kart braut-
inni í Reykjanesbæ. Þegar ljós-
myndari Víkurfrétta átti leið
hjá um helgina var Stebbi að
leiðbeina hópi ungmenna sem
komu úr Reykjavík til að fara
í Go-kart og skreppa í Bláa
Lónið.
Stebbi segir að slíkt fyrirkomu-
lag hafi notið mikilla vinsælda
að undanförnu, en nokkuð
hafi verið að gera á brautinni
í vor. Erillinn er alltaf mestur
um helgar þar sem keyrt er
fram á kvöld, en brautin er
opin alla daga vikunnar.
Ferrari á Reis-brautinni
Sundfólk ÍRB náði glæsilegum árangri á sundmóti Ármanns um helgina. Mikið var um góðar bætingar og einnig náðu margir
lágmörkum fyrir komandi aldursflokkamót. Nú
þegar hafa 43 náð lágmörkum en stefnan er sett
á að fara með u.þ.b. 50 manna hóp.
Sundmenn í flokknum 12 ára og yngri unnu
nánast allar greinar mótsins, en ÍRB ber höfuð
og herðar yfir önnur lið í þessum flokki. Sást það
mjög glögglega þegar kom að boðsundunum.
Þar unnu sveitir ÍRB með miklum yfiburðum,
en þessi fíni árangur lofar góðu fyrir keppnina á
aldursflokkamótinu í sumar. Þar á lið ÍRB titil að
verja en forsvarsmenn ÍRB segjast ekki ætla að láta
þann titil af hendi á næstu árum.
Stighæstu einstaklingar mótsins í flokki 12 ára og
yngri komu báðir úr röðum ÍRB. Það voru þau
María Halldórsdóttir og Ingi Rúnar Árnason, hjá
þeim báðum varð það fyrir 100m bringusund.
Fyrir þennan frábæra árangur sinn fengu þau
glæsileg verðlaun í mótslok.
ÍRB sigrar á sundmóti Ármanns
Ingi Rúnar Árnason og Marta Halldórsdóttir voru stigahæstu
sundmenn mótsins í sveina og meyjaflokki.
Toyota-mót 8. flokks í knattspyrnu fór fram í Reykjaneshöllinni um
síðustu helgi. Þar voru ungir
knattspyrnusnillingar á ferð,
4-6 ára. Þetta var stór dagur hjá
krökkunum, enda fyrsta mótið
hjá allflestum keppendum.
Mótið tókst mjög vel og voru
keppendur sem og allir þeir
sem komu við í Höllinni mjög
ánægðir með mótið. Leikgleðin
leyndi sér ekki og skipti hjá
mörg um engu máli í hvort
mark ið var skor að!! Fjöldi
manns mætti í Reykjaneshöll
til að fylgjast með ungu snilling-
unum og má áætla að heildar-
fjöldinn hafi verið um 300-400
manns.
Fiskiréttahlað-
borð Njarðvíkur
Á föstudag fór fram hið ár-
lega fiskiréttahlaðborð Knatt-
spyrnudeildar Njarðvíkur.
Veislan fór fram í Stapa en
Haraldur Helgason veitinga-
maður sá um matseldina.
Fiskirétta hlað borð ið er
liður í fjáröflunarstarfi knatt-
spyrnudeildar innar fyr ir
komandi átök í sumar, en
þar var boðið upp á létta og
skemmtilega dagskrá ásamt
því að leikkmenn félagsins
í meistaraflokki og 2. flokki
voru kynntir fyrir stuðnings-
mönnum liðsins.
Fjör á Toyota-mótinu
Stofna
fjölskyldu- og
stuðningsklúbb
Keflavíkur
Stuðningsmenn knattspyrnu-
liðs Keflavíkur hafa í hyggju
að stofna stuðningsklúbb
til að skapa skemmti lega
stemmningu í kringum liðið,
en fyrsti leikur þess í úrvals-
deild er þann 16. maí nk.
Klúbburinn er öllum op-
inn, fjölskyldum og einstak-
lingum, og er takmarkið
að fá sem flesta til að taka
þátt. Í árgjaldi er innifalið
aðgöngumiðar á leiki Kefla-
víkur í Landsbanksdeild-
inni, afsláttur á Evrópuleiki,
happdrætti fyrir meðlimi á
hverjum leik, tilboð á veit-
ingastöðum í Reykjanesbæ
svo fátt eitt sé nefnt.
Hægt er að skrá sig og sína,
helst fyrir fyrsta deildarleik,
á vefsíðunni www.fsk.is eða í
síma 868-8462.