Víkurfréttir - 02.06.2005, Blaðsíða 26
26 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Íþróttamótið, Hreystimeist-arinn, verður haldið á sjó-mannadaginn í íþróttahús-
inu í Garðinum klukkan 15. Að
sögn Arnars Steinars Marinós-
sonar sem skipuleggur mótið
með Hirti Guðbjartssyni, er
aðalatriðið að sem flestir taki
þátt og á sínum forsendum.
Hugmyndin að mótinu var að
fólk myndi hafa eitthvað mark-
mið til að koma sér í form. Með
þessum viðburði sem vonandi
verður fastur liður á sjómanna-
daginn, vaknar fólk vonandi
til meðvitundar um mikilvægi
hreysti. Enda er enginn nauð-
syn að vera kraftajötunn til að
taka þátt þar sem úthald og þol
skipta meiru máli hér.
Mótið er byggt á fitness tíma-
þrautum þar sem einstaklingar
eiga að þræða braut þar sem
leika þarf hinar ýmsu kúnstir.
Það er um að gera að taka alla
fjölskylduna með því brautirnar
verða aðlagaðar að aldri og
hreysti keppenda.
„Það er aðalatriðið að fólk komi
og sé með í mótinu. Enginn þarf
að hafa áhyggjur á því að tapa
þar sem ekki verður verðlaunað
sérstaklega fyrir besta tímann.
Þó verður hægt að kíkja til dóm-
arans og sjá sinn persónulega
tíma,” sagði Örn Steinar.
Foreldrar eru hvatt ir til að
koma með börn sín en byrjað
er á barnabrautinni. Eina for-
krafan er að börnin geti gengið
nokkurn vegin sjálf en foreldr-
arnir geta að sjálfsögðu hjálpað
þeim að klára þrautina. Eftir að
börnin hafa tekið þátt er komið
að unglingaflokknum, kvenna-
flokknum og að lokum að karla-
flokki. Þess má geta að byrjað
verður á því að draga bíl og
börnin verða ekki undanskilin
frá því þar sem sérútbúinn kassa-
bíll verður á brautinni.
Þátttaka í mótinu er án endur-
gjalds og skráning fer fram í
íþróttahúsinu í Garðinum á sjó-
mannadaginn.
8 Sveitarstjórnamenn og þingmenn í heimsókn hjá Norðuráli á Grundartanga:Hreysti-
meistarinn
haldinn
í Garði í
fyrsta sinn
Norðurál hefur farið af stað með umhverfisat-huganir vegna hugsan-
legs álvers í Helguvík. Árni Sig-
fússon, bæjarstjóri Reykjanes-
bæjar, vill þó tala varlega um
málið þrátt fyrir að allar athug-
anir gefi til kynna aðbygging
álvers í Helguvík sé möguleg.
Þetta ásamt fleiru kom fram
á fundi sem sveitarstjórnar-
menn, þingmenn og aðilar sem
tengjast atvinnuuppbyggingu
áttu með forsvarsmönnum
Norðuráls og forsvarsmönnum
Akranes kaupstaðar sem haldin
var á þriðjudaginn.
Á fundinum ræddi Gísli Gísla-
son, bæjarstjóri Akranes kaup-
staðar, þær gífurlegu breytingar
sem hafa átt sér stað á Akranes
í kjölfar álversins á Grundar-
tanga. „Akranes væri öðruvísi ef
álið væri ekki á Grundartanga,”
sagði Gísli á fundinum.
Atvinnuleysið á Akranesi var
um það bil 5% þegar Norð-
urál fór af stað en er nú aðeins
brot úr prósentu og ljóst þykir
að með komu álversins dróst
verulega úr atvinnuleysinu en
Norðurál leggur upp úr því að
fá fólk af svæðinu til vinnu hjá
fyrirtækinu. Ef bera á saman
Norðurál við hugsanlegt álver
í Helguvík þá munu fyrirtæki á
Suðurnesjum njóta góðs af því
á síðasta ári keypti Norðurál
þjónustu af um það bil 150 inn-
lendum aðilum þar af eru tæp-
lega helmingur þeirra staðsettir
á Vesturlandi.
Árni og Gísli sögðu á fundinum
að Reykjanesið væri betur und-
irbúið undir byggingu álvers
en Akranes þar sem svo margir
verktakar eru hér á svæðinu.
„Mér fannst koma vel fram að
það er tiltölulega auðvelt að
bæta þessu inn í okkar samfé-
lag,” sagði Árni í samtali við Vík-
urfréttir.
Einnig kom fram á fundinum
að hugsanlegt álver í Helguvík
væri fyrsta álver Century Alum-
inum sem byggt yrði frá grunni.
„Álverið þyrfti að vera 200 til
250 þúsund tonn svo það yrði
samkeppnishæft til lengri tíma,”
sagði Ragnar Guðmundsson,
fjármálastjóri Norðuráls á fund-
inum.
Ef fólk heldur það að vinna í
álveri sé fyrir láglaunafólk þá
hefur það rangt fyrir sér því
meðallaun starfsmanna í álver-
inu á Grundartanga eru 4 millj-
ónir á ári. „Við auglýsum mjög
sjaldan eft ir starfsmönnum
því við höfum nú þegar langa
biðlista í störf hjá okk ur,”
sagði Kristján Sturluson, fram-
kvæmdastjóri starfsmanna og
umhverfissviðs um álver sem
vinnustað, umhverfisvöktun og
árangur.
„Fundurinn tókst mjög vel í alla
staði en það var mikilvægt að
heyra álit Gísla Gíslasonar og
forsvarsmanna Akranes kaup-
staðar,” sagði Árni í samtali við
Víkurfréttir og bætti því við að
á fundinum hafi komið fram
hversu mikils virði þetta verk-
efni er. „Jafnframt kom fram
að allar forsendur eru til staðar
ásamt því sem að orkan er til
staðar hér á Reykjanesinu.”
Hópurinn sem fór á fundinn
ætlar sér að hittast aftur eftir
mánuð. „Við viljum útvíkka
þennan hóp og halda stöðufund
eftir u.þ.b. mánuð þar sem farið
er yfir stöðuna en við ættum að
gera áttað okkur betur á hlut-
unum þá.”
Hitaveita Suðurnesja hefur beðið í fimm ár eftir rannsóknarleyfi til borunar á Brennisteinsfjöllum
en án rannsóknarleyfisins fæst enginn
orka fyrir hugsanlegt álver í Helguvík.
Júlíus Jónsson, forstjóri Hitaveitu Suður-
nesja, sagði í samtali við Víkurfréttir að
kerfið sem ósk um rannsóknarleyfi færi í
gegnum væri orðin hálfgerður brandari.
„Allir tafir má rekja til umhverfisráðu-
neytisins og undirstofnunum þess en við
verðum að fá þessi leyfi því við sköffum
ekki rafmagn án þess að fá fleiri svæði,”
sagði Júlíus.
Það þykir ljóst að ef leyfisveiting fyrir
önnur svæði tekur jafnlangan tíma og
leyfið fyrir Brennisteinsfjöll þá mun álver
í Helguvík ekki rísa á næstu árum jafnvel
áratugum. Júlíus Jónsson neitar þó að trúa
því að svona stjórnsýsla geti viðgengist.
„Það getur ekki gerst því þá er stjórnkerfið
bara óvirkt ef þetta gengur svona fyrir sig,”
sagði Júlíus og bætti því við að þetta sé
ekki eina dæmið sem þeir hafa um svona
vinnubrögð. „Þetta er samt sem áður fárán-
legasta atvikið og vonandi helst það sem
slíkt.”
Ingimar Sigurðsson, skrifstofustjóri hjá
Umhverfisráðuneytinu, sagði í samtali við
Víkurfréttir að tafirnar liggi hjá Hitaveitu
Suðurnesja. „Þetta á ekki að þurfa að taka
langan tíma nema menn komist að þeirri
niðurstöðu að það þurfi frekari rannsóknir
svo hægt sé að mæla með viðkomandi
framkvæmd,” sagði Ingimar og bætti því
við að þetta byggist allt á þeim gögnum
sem þeir hafa undir höndum. Að sögn
Ingimars má vænta niðurstöðu í næsta
mánuði.
Júlíus Jónsson sagði í samtali við Víkur-
fréttir að þegar umhverfisstofnun hafði
lagst alfarið gegn þessari umsókn var beðið
um frekari gögn en það var gert u.þ.b. 3
árum eftir að umsóknin barst þeim upp-
haflega. Að sögn Júlíusar voru gögnin um-
fangsmikil og tók það töluverðan tíma að
vinna þau gögn.
Beðið eftir Brennisteinsfjöllum í fimm ár
Reykjanes betur búið undir álver
Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, og Hjálmar Árnason,
þingmaður voru spekingslegir með þessi gleraugu og hjálmana.
Hópurinn sem heimsótti Norðurál á þriðjudaginn. Texti og myndir: Atli Már Gylfason