Víkurfréttir - 14.07.2005, Blaðsíða 10
10 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
ATVINNA Á HSS
Á röntgendeild er laus 100 % staða
sérhæfðs aðstoðarmanns frá og með 15.
ágúst n.k.
Viðkomandi þarf að hafa góða
tölvukunnáttu og vera góð/ur í
mannlegum samskiptum. Upplýsingar um
starfið veita geislafræðingar deildarinnar í
síma 422-0506.
Umsóknarfrestur er til 2.ágúst 2005 og skal
umsóknum skilað til Hlyns Jóhannssonar
starfsmannastjóra hlynurj@hss.is að Mánagötu 9,
230 Reykjanesbæ.
FRÉTTASÍMINN
SÓLARHRINGSVAKT
898 2222
Fegrunar- og umhverfis-nefnd Sveitarfélagsins Garðs veitti í síðustu
viku viðurkenningar fyrir
fal lega garða og snyrti legt
umhverfi húsa. Verðlaunagarð-
urinn árið 2005 er við Lyng-
braut 1 en eigendurnir eru
þau Anna Mary Pétursdóttir
og Guðmundur Knútsson. Þau
hafa áður fengið viðurkenn-
ingu enda er garðurinn þeirra
og umhverfi hússins til fyrir-
myndar.
Tveir aðrir garðar fengu við-
kenningar en þeir eru við Ein-
holt 8, eigendur eru þau S. Þóra
Gunnarsdóttir og Sævar Leifs-
son, og við húsið Björk, Garð-
braut 14 en eigendur þar eru
Oddný Harðardóttir og Eiríkur
Hermannson.
Umhverfismál í Garði
Eigendur verðlaunagarðsins með verðlaunin á
bakvið sig en það var fallegur steinn með
álplötu og áletruninni Verðlaunagarður 2005.
Garðar í Garði hljóta verðlaun
Að ofan:
Úr garðinum að Einholti 8 í Garði.
Eigendur S. Þóra Gunnarsdóttir
og Sævar Leifsson.
Til hliðar:
Úr garðinum við húsið Björk, sem
er í eigu Oddnýjar Harðardóttur
og Eiríks Hermannssonar