Víkurfréttir - 21.07.2005, Síða 1
�������������������������������� ��������������������������
�����������������������������������������������������������
���������������������
��������
Vikurfrettir_HEKLU_borði_fin2.FH11 Tue Apr 05 14:42:09 2005 Page 1
Composite
C M Y CM MY CY CMY K
29. tölublað •
26. árgangur
Fimmtudaguri
nn 21. júlí 200
5
90,1% Suðurnesjamanna lesa Víkurfréttir vikulega
AÐSETUR: GRUNDARVEGUR 23 • 2. HÆÐ • 260 REYKJANESBÆR • SÍMI 421 0000 • WWW.VF.IS • FRÉTTAVAKT: 898 2222
Nú er allt að verða tilbúið fyrir Íslandsmótið í höggleik sem hefst á Hólmsvelli í Leiru á morgun. Verið er ljúka við lokafrágang á
öllu í sambandi við mótið og er völlurinn nú í sínu
besta ástandi. Allt hefur verið gert til að gera mótið
hið glæsilegasta. 144 keppendur eru skráðir til leiks
þar á meðal Íslandsmeistararnir frá í fyrra; Birgir
Leifur Hafþórsson og Ólöf María Jónsdóttir.
Keppendur hafa síðustu daga verið að leika æfinga-
hringi á vellinum og er samdóma álit þeirra að völlur-
inn sé frábær. „Keppendur hafa nýtt sér æfingahring-
ina vel frá því á mánudag og hefur verið stöðugur
straumur um völlinn, en hann hefur verið lokaður
öðrum en keppendum alla þessa viku,” sagði Gylfi
Kristinsson, framkvæmdastjóri GS, í samtali við
Víkurfréttir. Þá hefur verið reynt að þyngja völlinn að-
eins með því að þrengja brautir og röffið látið vaxa. Í
gær var unnið við að klára að slá í kringum teiga og
glompur, slá röffið niður sumstaðar, merkja það sem
merkja þarf og setja upp auglýsingaspjöld.
Allt að verða tilbúið fyrir Íslandsmótið
Nú er allt að verða
tilbúið fyrir Íslands-
mótið sem hefst á
Hólmsvelli í Leiru.
Þessi málari var að
ljúka við að mála
grindverkið á svölum
klúbbhússins.
Landsmótið
„í beinni“
á vefnum
kylfingur.is
Þeir sem hafa áhuga á að
fylgjast með landsmótinu í
golfi ættu ekki að koma af
tómum kofanum á vefnum
kylfingur.is. Þar verður
hægt að fylgjast með gangi
mála í máli og myndum alla
keppnisdaga.
Suð ur nes, stærsta fisk-vinnslufyrirtæki í Reykja-nesbæ, hættir starfsemi
eft ir sumarleyfi. Var starfs-
mönnum fyrirtækisins, 45 tals-
ins tilkynnt um þetta á fundi
í gær.
Að sögn Stefaníu Valgeirsdóttur,
framkvæmdastjóra Suðurnes, var
ákvörðunin tekin hjá hollenskum
eigendum og stjórnendum í sam-
ráði við viðskiptabanka fyrirtæk-
isins. Sterkt gengi krónunnar er
ein af ástæðum lokunarinnar.
Stefanía sagði í samtali við Vík-
urfréttir að starfsmenn og stjórn-
endur fyrirtækisins ætli að hittast
í dag og hjálpa hvor öðru í leit
að vinnu.
„Ef ykkur vantar úrvalsfólk hafið
þá samband því hér hjá okkur er
nóg af því,” sagði Stefanía.
HÆTTA STARFSEMI OG 45 MISSA VINNUNA