Víkurfréttir - 25.08.2005, Side 19
VÍKURFRÉTTIR I 34. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURINN 25. ÁGÚST 2005 I 19
Sam komu hús ið Glað-heimar í Vogum mun brátt heyra sögunni til en
á næstu vikum mun húsið víkja
fyrir þremur fjölbýlishúsum
sem munu rísa á reitn um.
Fram að því mun Frístunda-
skólinn og Félagsmiðstöðin
eiga athvarf í húsinu þangað
til að þeim verður búið varan-
legt húsnæði í viðbyggingu við
Íþróttamiðstöðina.
Jóhanna Reynisdóttir, sveitar-
stjóri sagði í samtali við Víkur-
fréttir að ljóst hafi verið að húsið
þyrfti að víkja fyrr en síðar, en
þar sem verktakanum sem mun
reisa húsin hefur gengið svo vel
að selja íbúðirnar var ákveðið
að flýta framkvæmdum.
„Við erum að taka í gagnið
ráðstefnu-, veislu- og fundar-
sal í nýju viðbyggingunni við
Stóru-Vogaskóla sem mun taka
að stærstu leyti við hlutverki
Glaðheima. Verður aðstaða þar
miklu betri, enda má segja að
húsnæðið eins og það var sé úr
sér gengið fyrir löngu.”
Jóhanna segist eiga von á því
að fólk muni sakna Glaðheima
enda hafa ótal minnisstæðar
veislur og böll farið þar fram
í þau 50 ár sem húsið hefur
starfað. „Það var góður andi í
þessu húsi og sveitaböllin sem
þar voru haldin alltaf skemmti-
leg. Þegar bæjarbúar sjá nýja sal-
inn og þá glæsilegu aðstöðu sem
þar er munu þau örugglega sjá
að þessi breyting var tímabær.”
Íbúar í Vogum höfðu samband
við Víkurfréttir á dögunum
og lýstu yfir áhyggjum af fram-
tíð hússins sem er Vogabúum
mjög hjartfólgið og hlaðið minn-
ingum eftir áratuga skemmtana-
hald. Verða nú minningarnar
það eina sem eftir verður af
þessu sögufræga húsi og bæjar-
búar munu þess í stað kætast
saman í glæsilegu húsnæði í
grunnskólahúsinu.
Glaðheimar líða undir lok
Kaflaskipti í félagslífi Vogabúa:
Elsku Natan Axel, til
hamingju með 1 árs
afmælið stóri strákur.
Kveðja, mamma og
pabbi.
Afmæli