Víkurfréttir - 25.08.2005, Page 23
VÍKURFRÉTTIR I 34. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURINN 25. ÁGÚST 2005 I 23
www.kylfingur.isÁ Ljósanæt ur há tíð inni munu Leiðsögumenn á Reykjanesi bjóða upp á
fimm ferðir um Reykjanesbæ.
Fimmtudaginn 1. september
verður farið í göngu um Innri-
Njarðvík, þar verður sagt frá
sögu kirkjunnar og svæðisins
í kring, auk þess sem byggða-
safnið verður skoðað. Gengið
verður að Hólmfastskoti og
síðan að Garðbæ sem er með
elstu steinhúsum á svæðinu.
Gangan hefst við Innri-Njarð-
víkurkirkju, klukkan 17:00.
Laugardaginn 3. september
verður farið að Stekkjarkoti á
Fitj um. Þar verð ur fræðsla
um búsetu í Njarðvík, Fitjum
og Bolafót, auk þess sem vík-
ingaskipið, Íslendingur verður
kynnt. Gangan hefst við Stekkj-
arkot klukkan 10:00. Seinna
sama dag verður hægt að skella
sér í göngu um gamla bæinn í
Keflavík. Saga kirkjunnar verður
rakin, gengið verður að minnis-
merkinu um brunann í Keflavík
sem og í gegnum gamla hlutann
af Hafnargötunni. Þess má geta
að sá hluti breytist í göngugötu
frá klukkan 12. Gengið verður
að Pakkhúsinu, Fischerhúsi,
að gömlu tóftum gömlu Kefla-
víkur, niður Grófina og endað
við Duus hús. Gangan hefst við
Keflavíkurkirkju, klukkan 13:00.
Gengið verður í fótspor Rauð-
höfða, sunnudaginn 4. sept-
ember. Gengið er frá Hvals-
neskirkju, gömlu þjóðleiðina
til Keflavíkur að Stakksgnípu
í Keflavík. Þar er Rauðhöfði
sagður hafa steypt sér í sjóinn í
hvalslíki og synt upp í Hvalvatn
ofan við Hvalfjörð. Farið er frá
SBK í Reykjanesbæ klukkan
10:30 að Hvals nes kirkju.
Gangan tekur um tvær og hálfa
klukkustund.
Menn ing og mann l í f ið í
Höfnum verður svo skoðað
sunnudaginn 4. september.
Gengið verður að ankerinu úr
Jamestown og strandið rakið.
Þá verður landnámsbærinn
skoðaður auk hafnarinnar og
Kotvogi.
Leiðsögumenn hafa tekið virkan
þátt í hátíðadagsskrá Suðurnesja
í sumar og meðal annars tekið
þátt í Sandgerðisdögum og á Sól-
stöðuhátíðinni í Garði. Í Sand-
gerði tók einn leiðsögumaður-
inn sig til og samdi barnasögu
um geirfuglinn og las hana upp
fyrir yngstu kynslóðina á Fræða-
setrinu. Farin var hringferð um
Sandgerði auk þess sem gengið
var um Stafnes og Básenda. Á
Sólseturshátíðinni í Garði var
gengið að fornmannaleiði, Út-
skálakirkju, Skagagarði og Skála-
reyki. Gamli vitinn var heim-
sóttur sem og byggðasafnið. Þá
var hægt að velja um nokkuð
lengri göngu þar sem farið var
frá Leirunni í Garði að Garð-
skagavita og tók sú ferð um þrjá
tíma.
Leiðsögumenn Reykjaness ses.
er sjálfseignastofnun sem sett
var á laggirnar af nýútskrif-
uðum svæðisleiðsögumönnum
um Reykjanes. Hópurinn stund-
aði nám sitt við Miðstöð Sí-
menntunar á Suðurnesjum og
útskrifaðist frá Leiðsöguskóla
Íslands fyrr á árinu. Leiðsögu-
menn ses samanstendur af 15
svæðisleiðsögumönnum með
víðtæka sérþekkingu og reynslu
úr ýmsum sviðum samfélagsins.
Samsetning hópsins gerir það
að verkum að hann er fær um
að taka að sér hin fjölbreyttustu
verkefni.
Nánari upplýsingar gefur Rann-
veig L. Garðarsdóttir í síma 893
8900 eða í tölvupóstinum, rann-
veig@reykjanesguide.is.
Gönguferðir á Ljósanótt
Aldur: 14 að verða 15 :P
Skóli: Heiðarskóli.
Happatala: 10.
Stjörnumerki: Meyjan.
Æ f i r ð u e i n hv e r j a
íþrótt? Já ég æfi sund.
Uppáhaldstónlistarmað-
ur/hljómsveit? Hmm, á
erfitt með að velja.
Ertu oft á msn? Já mjög
oft.
Hvað mundirðu kaupa þér ef
þú ættir að eyða 1000 kr.? Inn-
eign, engin spurning ;)
Fórstu eitthvað erlendis í sum-
ar? Já ég fór til Ítalíu að
keppa með unglinga-
landsliðinu.
Hvaða vefsíðu
heimsækir þú
m e s t ? w w w.
b2.is og blogg-
síður og svo-
leiðis.
Hvað fer mest í taugarnar á þér?
Að hafa ekkert að gera.
Skemmtilegasta sem þú gerir?
Fara til útlanda, vera með vin-
um, og margt fleira.
Uppáhaldssjónvarpsþáttur?
Twentyfour og Lost.
Hvern myndirðu mest vilja
hitta? Einhvern frægan... Clint
Eastwood
Uppáhaldshlutur? Örugglega
rúmið mitt...
Hvaða mynd tókstu síðast á
leigu? Cool Runnings!
Besti matur? Lambahryggur-
inn hennar mömmu, nammi
namm.
Bítlarnir eða U2? Bítlarnir.
Grín- eða hryllingsmynd? Grín-
myndir !
Sól eða snjór? Sólin!!
Íþrótta- eða gallabuxur? Bæði
bara.
Pulsa eða pylsa? pUlsa.
Ung ling ur
vikunnar
Davíð Hildiberg Aðalsteinsson