Víkurfréttir - 25.08.2005, Blaðsíða 25
VÍKURFRÉTTIR I 34. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURINN 25. ÁGÚST 2005 I 25
SAMHUGUR Í VERKI
Á LUKKU-LÁKA
Vin ir og vel unn ar ar þeir ra Birk is Freys Hrafnssonar og Hjör-
dísar Gísladóttur fjölmenntu
á Lukku Láka í Grindavík um
síðustu helgi þar sem fóru fram
tónleikar til styrktar parinu, en
ófætt barn þeirra hefur verið
greint með alvarlegan hjarta-
galla og munu þau halda utan
til Boston eins fljótt og auðið
er eftir fæðingu.
Til að létta undir með þeim
verður allur aðgangseyrir lagður
inn á reikning sem hefur verið
stofnaður í Landsbankanum
í Grindavík, en auk þess rann
hluti af söluverði veitinga í sjóð-
inn. Númerið á reikningnum
er: 0143-05-63285, kt: 120961-
3149.
Á tónleikunum komu fram Kalli
Bjarni og Grétar, Óðinn Arn-
berg og Halli Valli og Smári og
er óhætt að segja að viðstaddir
hafi skemmt sér konunglega og
var stemmningin létt eins og má
sjá á myndunum.
Grétar, Kalli Bjarni og Helgi voru hressir á Lukku-Láka. Kalli og
Grétar léku nokkur lög fyrir mannskapinn af sinni alkunnu snilld.
Þau Birkir og Hjördís létu sig ekki vanta þegar bæjarbúar
komu saman til að rétta þeim hjálparhönd.
Halli Valli og Smári léku nokkur lög og vöktu mikla lukku
eins og við va að búast.