Víkurfréttir - 03.09.2015, Page 1
vf.is
Víkurfréttir
Krossmóa 4a, 4. hæð,
260 Reykjanesbær
Sími: 421 0000
Póstur: vf@vf.is
Afgreiðslan er opin
virka daga kl. 09-17
Auglýsingasíminn
er 421 0001
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
auðveldar smásendingar
eBOX flytur minni sendingar frá
Evrópu til Íslands. Sendingin þín
kemur heim með fyrstu ferð.
Auðvelt og fljótlegt.
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA
SMÆRRI SENDINGAR
einföld reiknivél
á ebox.is
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 2015 • 34. TÖLUBLAÐ • 36. ÁRGANGUR
ÞJÁLFUN
LAUS PLÁSS
Gleðilega Ljósanótt
með Víkurfréttum
XXAuk hefðbundinnar útgáfu
Víkurfrétta sem reyndar er
mjög vegleg eða 48 bls. gefa
VF út sérstakt dagskrárrit sem
dreift er í hús í Reykjanesbæ
en einnig víðar, m.a. liggur
það frammi á mörgum sýn-
ingarstöðum og verslunum.
Í ritinu sem er í handhægu
broti er að finna alla dag-
skrárliði Ljósanætur 2015,
kort af sýningarsvæðinu
og auglýsingar.
Ljósmyndaleikur
á Ljósanótt
XXVíkurfréttir efna til ljósmyndaleiks á Ljósa-
nótt. Valdar verða þrjár myndir sem fá vegleg
verðlaun. Greint verður frá því í næsta blaði
og á vf.is. Settu mynd eða myndir frá Ljósa-
nótt 2015 á Facebook síðu þína og merku þær
#vikurfrettir. Þá áttu möguleika á vinningi.
Rafræn Helguvíkurkosn-
ing verður ekki bindandi
XXBæjarráð Reykjanesbæjar hefur samþykkt
að fela bæjarstjóra að undirbúa íbúakosningu
vegna deiliskipulags í Helguvík. Lagt til að
kosningin fari fram á tímabilinu frá 8. til 20.
nóvember nk. og standi í 10 daga og að miðað
verði við 18 ára aldur kjósenda.
Þá var samþykkt á fundi bæjarráðs í morgun að
niðurstaða kosninganna verði ekki bindandi.
Bæjarráð samþykkti einnig að óska eftir því
við ráðherra að íbúakosningin fari eingöngu
fram með rafrænum hætti og að kjörskrá vegna
kosninganna verði á rafrænu formi.
XXÞað hefur verið mikið makrílfjör við og í
Keflavíkurhöfn síðustu daga og þessum sprett-
harða fiski verið landað í miklu magni frá bátum
og þá hafa stangveiðimenn ekki látið sitt eftir
liggja og einnig rifið hann upp.
„Það er búið að vera gaman að vera hér á bryggj-
unni undanfarið. Menn róta makrílnum upp og
svo hefur selur verið hér í sömu veislu. Honum
hefur ekki leiðst,“ sagði einn af nokkrum bryggju-
gestum við VF. Sem sagt makrílfjör í hæstu hæðum
þó verð hafi lækkað og erfiðar gangi að selja hann.
XXLjósanótt var þjófstartað í gærkvöldi með
söngskemmtun Bliks í auga, „Lög unga
fólksins“ í Andrews salnum á Ásbrú. Hús-
fyllir var á tónleikunum og stemmningin
frábær. Ljósanótt var síðan formlega sett
með blöðrusleppingum grunnskólabarna
við Myllubakkaskóla í morgun.
Við tekur gríðarlega umfangsmikil menn-
ingar- og fjölskyldudagskrá sem stendur fram
á sunnudagskvöld. „Við erum stolt af því
að heimamenn eru í aðalhlutverkum í dag-
skránni. Undirbúningur hefur gengið vel og
við erum tilbúin í þessa sextándu ljósahátíð
okkar,“ sagði Valgerður Guðmundsdóttir,
menningarfulltrúi Reykjanesbæjar.
Sjónvarp Víkurfrétta tók aðeins forskot á sæl-
una og leit við á aðalsýningu Ljósanætur 2015,
„Andlit bæjarins“ í aðalsýningarsal Duus-
húsa. Björgvin Guðmundsson, ljósmyndari í
áhugaljósmyndarafélaginu Ljósopi var í óða
önn að setja upp 300 myndir af bæjarbúum
sem hann myndaði í sumar. Hann stefnir að
því að gera ljósamyndabók með myndunum.
Fyrirsæturnar geta keypt myndirnar á sýning-
unni en peningana ætlar Björgvin að nota til
að fjármagna bókaútgáfuna.Þá ætlar hann að
bjóða fleirum að koma í myndatöku á Ljósa-
nótt. „Það fór eiginlega allt sumarið í þetta en
verkefnið var gríðarlega skemmtilegt.“ Hann
lýsir því í viðtali við Sjónvarp Víkurfrétta í
vikulegum þætti sem er sýndur á ÍNN frá kl.
21.30 (og svo á 2 klst. fresti í sólarhring) og
einnig á vf.is. VF-mynd/pket.
Andlit bæjarbúa á aðal sýningu Ljósanætur
Makrílveisla í Keflavíkurhöfn
ljosanott.is
Dagskrá Ljósanætur dagana
2. til 6. september n.k.
Reykjanesbær 2015