Víkurfréttir - 14.07.2016, Blaðsíða 1
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
auðveldar smásendingar
eBOX flytur minni sendingar frá
Evrópu til Íslands. Sendingin þín
kemur heim með fyrstu ferð.
Auðvelt og fljótlegt.
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA
SMÆRRI SENDINGAR
einföld reiknivél
á ebox.is
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M
• fimmtudagurinn 14. júlí 2016 • 28. tölublað • 37. árgangur
l „Það eru um 200 manns sem slasast alvarlega eða láta lífið í umferðinni hér á landi á hverju ári. Einhvern tíma hefði
það verið kallað almannavarnaástand.“ l „Við unum ekki við hálfklárað verk“. l Yfir 16.000 í þrýstihóp á Facebook
Vilja samtal við stjórnvöld
Sambærilegur hópur var stofnaður um síðustu
aldamót til að þrýsta á um tvöföldun Reykjanes-
brautar. Ísak segir nýskipaða framkvæmdahóp-
inn búa vel að þeirri vinnu sem unnin var þá.
„Þá vann fólk þetta frá grunni en nú viljum við
að þeirri vinnu sem var hafin þá, verði lokið.
Hópurinn sem starfaði í kringum aldamót vann
þrekvirki og þetta verður sennilega auðveldara
fyrir okkur í dag.“ Ísak segir það hafa komið
á óvart hversu margir meðlimir þrýstihópsins
á Facebook eru en ánægjulegt hversu margir
blandi sér í umræðuna og að krafan sér skýr. „Við
unum ekki við hálfklárað verk og viljum ljúka
þessari framkvæmd sem hófst um aldamótin og
hefur tekið alltof langan tíma.“
Ísak segir hópinn ekki ætla að standa fyrir mót-
mælum heldur láta reyna á gott samtal við yfir-
völd. „Nema auðvitað ef við náum ekki athygli
stjórnmálamanna. Þá reynum við nýjar aðferðir.
Mér finnst miður að enn sem komið er hafi
aðeins einn þingmaður kjördæmisins haft sam-
band við okkur og blandað sér í umræðuna, það
er Vilhjálmur Árnason. Þetta snýst um 23.000
manna samfélag og við höfum ekki fengið að
heyra opinberlega viðbrögð frá þingmönnum.
Fyrsti þingmaður Suðurkjördæmis er forsætis-
ráðherra og annar ráðherra ferðamála og aukin
umferð um Reykjanesbraut stafar einmitt, meðal
annars, af auknum fjölda ferðamanna,“ segir
hann. Þá gagnrýnir Ísak seinagang Vegagerðar-
innar við framkvæmdir við Reykjanesbraut en til
hafði staðið að banna vinstri beygju af Hafnavegi
út á Reykjanesbraut. „Fulltrúi Vegagerðarinnar
sagði að verkið hefði tafist vegna veðurs og að
á næstu vikum verði farið í útboð vegna undir-
ganga undir Reykjanesbraut. Hvað þýðir það
eiginlega? Það þarf að gera ráðstafanir strax til að
tryggja öryggi við þrjú gatnamót að Reykjanes-
braut. Það er ekki aðeins við Hafnaveginn, held-
ur líka við Þjóðbraut og Aðalgötu.“
Segir þrýsting almennings skipta máli
Tvöföldun á Reykjanesbraut er ekki í Samgöngu-
áætlun Alþingis til ársins 2018. Að sögn Oddnýj-
ar Harðardóttur, þingmanns og formanns Sam-
fylkingar, eru líkur á því áætlunin verði til um-
ræðu þegar Alþingi kemur saman á ný, 15. ágúst.
„Ég á von á því að ríkisstjórnin vilji ljúka málinu
fyrir kosningar,“ segir hún. Í Facebook hópnum
hefur verið skorað á þingmenn kjördæmisins að
beita sér fyrir tvöföldun Reykjanesbrautar. Að-
spurð um hvort áskorunin hafi áhrif kveðst Odd-
ný vona það. „Ég mun í það minnsta gera það og
á ekki von á öðru en að þingmenn kjördæmisins
leggi mikla áherslu á málið.“ Hún segir þrýsting
almennings alltaf skipta máli. „Fyrir vikið verður
meiri athygli á því sem þingmennirnir eru að
gera í málinu.“ Þá segir Oddný vegakerfið hér á
landi fjársvelt en að þingmenn geti beitt sér fyrir
breytingum þar að lútandi.
Hægt að auka öryggi án
stórframkvæmda
„Í svo stórri framkvæmd sem tvöföldun
Reykjanesbrautar er, þá er ekki raunhæft að hún
verði að veruleika strax þó henni verði flýtt eins
og hægt er. Það er þó vel hægt að auka umferð-
aröryggi núna strax án svo mikillar framkvæmd-
ar,“ segir Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálf-
stæðisflokks í Suðurkjördæmi og nefndarmaður
í umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis. Hann
segir að auk gatnamóta við Hafnaveg, sé mik-
ilvægt að breyta einnig gatnamótum Aðalgötu
og Þjóðbrautar við Reykjanesbraut. „Nú þegar
eru komin hringtorg við Stekk og Grænás en þar
voru mörg umferðarslys á sínum tíma. Þegar ég
var í löggunni gerði ég lítið annað en að fara í
útköll vegna slysa á þessum tveimur gatnamót-
um. Nú hafa slysin færst til á hin gatnamótin og
það þarf tafarlaust að auka öryggi við þau,“ segir
hann. Vilhjálmur nefnir að miklar breytingar
hafi átt sér stað á Suðurnesjum á undanförnum
misserum sem kalli á framkvæmdir, til að mynda
mikil fjölgun ferðamanna, fjölgun íbúa á Ásbrú
og í Reykjanesbæ, sem og í öðrum sveitarfé-
lögum á Suðurnesjum, þungaflutningar til og
frá Helguvík og fjölgun starfsmanna á og við
Keflavíkurflugvöll.
Vilhjálmur tekur í sama streng og Ísak og segir
stjórnmálamenn á Íslandi almennt lítinn áhuga
hafa á samgöngumálum og umferðaröryggi. „Ég
hef aldrei botnað í þessu áhugaleysi síðan ég
kom á þing. Það eru um 200 manns sem slasast
alvarlega eða láta lífið í umferðinni hér á landi á
hverju ári. Einhvern tíma hefði það verið kallað
almannavarnaástand.“
Nánari er fjallað um málið á vef Víkurfrétta,
vf.is, þar sem m.a. er að finna ítarlegri viðtöl
við viðmælendur í þessari frétt.
Lækka kostnað við
endurskoðun um
20 milljónir kr.
n Bæjarráð Reykjanesbæjar
samþykkti í síðustu viku að taka
tilboði Grant Thornton endur-
skoðunar ehf. í endurskoðun
fyrir Reykjanesbæ, Reykjaneshöfn
og Fasteignir Reykjanesbæjar á
grundvelli niðurstöðu örútboðs.
Ríkiskaup framkvæmdi útboðið fyrir
Reykjanesbæ sem gerði kröfu um
að sá endurskoðandi sem stjórnaði
verkinu myndi falla í A- flokk sam-
kvæmt Rammasamningi ríkisins og
krafist var reynslu af sambærilegum
verkefnum. Grant Thornton var með
lægsta tilboðið af þeim fyrirtækjum
sem sendu inn tilboð og stóðust
kröfulýsingu. Stefnt er að undirskrift
samnings að loknum 10 daga bið-
tíma. Alls buðu sex fyrirtæki í verkið.
Á vef Reykjanesbæjar er haft eftir Jóni
Inga Benediktssyni, innkaupastjóra
Reykjanesbæjar, að fjárhagslegur
ávinningur örútboðs á endurskoðun
fyrir Reykjanesbæ, Reykjaneshöfn
og Fasteignir Reykjanesbæjar nemi
tæplega 20 milljónum króna.
Jóga í sólsetrinu
á Garðskaga
n Hópur fólks hittist á Garðskaga í
blíðunni á dögunum og iðkaði jóga
við sjávarnið undir miðnætursól.
Verkefnið ber heitið Pop up úti jóga
og er á vegum jógakennaranna Önnu
Margrétar Ólafsdóttur og Tabitha
Tarran og hófst í byrjun júlí. Nánar
er sagt frá þessari uppákomu og
sýndar fleiri myndir í blaðinu í dag.
ÞRÝSTA Á TVÖFÖLDUN
Skipaður hefur verið framkvæmdahópur til að þrýsta á stjórnvöld að ljúka við tvöföldun Reykjanes-
brautar frá Keflavíkurflugvelli að höfuðborgarsvæðinu. Hópinn skipa þau Atli Már Gylfason, Páll
Orri Pálsson, Teitur Örlygsson, Margrét Sanders, Örvar Kristjánsson, Sólborg Guðbrandsdóttir,
Guðbjörg Sigurðardóttir, Leifur A. Ísaksson, Andri Þór Ólafsson, Kristján Jóhannsson, Marta
Jónsdóttir, Ísak Ernir Kristinsson og Guðbergur Reynisson. Í kjölfar banaslyss á gatnamótum
Reykjanesbrautar og Hafnavegar á fimmtudag í síðustu viku var stofnaður hópur á Facebook undir
yfirskriftinni „Stopp hingað og ekki lengra“ og á stuttum tíma eru meðlimir hópsins orðnir yfir
16.000. Það voru þeir Guðbergur Reynisson og Ísak Ernir Kristinsson sem stofnuðu hópinn. Fram-
kvæmdahópurinn mun vinna úr þeim tillögum sem komið hafa fram varðandi Reykjanesbraut og
segir Ísak það ekki hafa verið erfitt að finna gott fólk til setu í honum. „Næstu skref verða að fram-
kvæmdahópurinn hittist og setji fram opinbera kröfu um það hvað hann vill að komi út úr verkefn-
inu. Við sjáum fyrir okkur að hópurinn fari nýjar og áhugaverðar leiðir,“ segir hann. Frá gatnamótum Hafnavegar og Reykjanesbrautar. Þar varð banaslys í síðustu viku. VF-mynd: Aldís Ósk
Fyrstu tvær kon-
urnar á sjúkrabíl
Það er óhætt að segja að blað hafi
verið brotið í sögu sjúkraflutn-
inga á Suðurnesjum þann 16. júní
síðastliðinn þegar þær Ingibjörg
Þórðardóttir og Kolbrún Jóhanns-
dóttir voru fyrstu konurnar til að
fara saman í útkall. „Við áttuðum
okkur ekki á þessu fyrr en á leiðinni
til baka eftir útkallið þegar við fór-
um að spjalla saman,“ segja þær.
Sjá nánar á bls. 6 í blaðinu í dag.